Skessuhorn - 26.10.2016, Síða 12
MIÐVIKUDAGUR 26. OKTÓBER 201612
Hafdís Fjóla Ásgeirsdóttir hefur
verið ráðin verkefnastjóri á starfs-
stöð Símenntunarmiðstöðvar Vest-
urlands á Akranesi, en hún var val-
in úr hópi 32 umsækjenda. Hafdís
Fjóla er með mastersgráðu í upp-
eldis- og menntunarfræðum með
áherslu á sérkennslufræði og hef-
ur starfað síðustu ár við Fjölbrauta-
skóla Vesturlands. Hún kemur til
starfa í byrjun næsta árs. „Um leið
og við bjóðum hana velkomna til
starfa þá þökkum við Heklu Gunn-
arsdóttur fyrir vel unnin störf og
óskum henni velfarnaðar í nýju
starfi,“ segir í fréttatilkynningu frá
Símenntunarmiðstöð Vesturlands,
sem jafnframt þakkar öðrum um-
sækjendum fyrir sýndan áhuga og
óskar þeim alls hins besta.
mm
Hafdís Fjóla ráðin
verkefnastjóri
Símenntunar
Á árunum 2002-2007 fór fram
fornleifarannsókn á gamla kirkju-
stæðinu í Reykholti í Borgarfirði.
Niðurstöður þeirrar rannsókn-
ar birtast nú í bókinni „Reykholt,
The Church Excavations,“ eftir
Guðrúnu Sveinbjarnardóttur forn-
leifafræðing. Bókin er gefin út af
Þjóðminjasafni Íslands í samvinnu
við menningar- og miðaldasetr-
ið Snorrastofu í Reykholti og Há-
skólaútgáfuna.
Þó að Reykholt hafi líklega verið
höfðingjasetur allt frá því að þar var
fyrst byggt er staðurinn best þekkt-
ur fyrir búsetu Snorra Sturluson-
ar, höfundar m.a. Snorra Eddu og
Heimskringlu á fyrra helmingi 13.
aldar. Reykholt varð einn af hin-
um fyrstu stöðum, í kirkjusögulegri
merkingu orðsins, snemma á 12.
öld og var þá einnig goðorð. Elstu
fornminjar á bæjarstæðinu hafa
verið tímasettar til um 1000 og til-
heyra því annarri kynslóð byggðar
á Íslandi. Kirkja virðist hafa verið
reist á staðnum um svipað leyti eða
örlitlu síðar.
Seint á 19. öld var kirkjan færð
aðeins norðar í kirkjugarðinn, þar
sem hún stendur enn, en það veitti
aðgang að gamla kirkjustæðinu sem
var grafið upp á árunum 2002-2007.
Niðurstöðurnar eru birtar í þessari
bók. Rannsóknirnar beindust ein-
göngu að byggingunum þar sem
kirkjugarðurinn umhverfis þær var
í notkun þar til í byrjun 20. aldar.
Fjórar mismunandi byggingateg-
undir voru grafnar upp, hver ofan
á annarri, en þeim var skipt í átta
byggingarstig. Elstu þrjár bygging-
arnar voru niðurgrafnar um meira
en meter, en engar slíkar kirkjur
eru þekktar annars staðar á Norð-
ur-Atlantshafssvæðinu. Miðalda-
byggingarnar eru taldar hafa verið
stafverkshús, með fyrirmyndir t.d.
í Noregi. Byggingargerðin breytist
við siðaskiptin á 16. öld, og frá 17.
öld eru varðveittar nákvæmari lýs-
ingar á byggingunum í úttektum.
Við uppgröftinn fannst fjöldi gripa,
þar á meðal innfluttir gripir sem
unnt er að aldursgreina. Aðeins þær
grafir sem voru inni í húsgrunnun-
um voru rannsakaðar. Athyglivert
er að í 18. aldar kirkjunni var hóp-
ur einstaklinga sem tilheyrði sömu
fjölskyldunni grafinn.
mm/ Ljósm. úr safni Skessuhorns.
Bók um fornleifauppgröft í Reykholti
Guðrún Sveinbjarnardóttir og aðstoðarmenn hennar í grunni forns kirkjustæðis í
Reykholti í júní 2007. Þar fundust merkar fornminjar sem greint er frá í hinni nýju
bók. Þarna skammt frá er Sturlungareitur.
Fornleifafræðingar að
störfum við uppgröftinn í
Reykholti sumarið 2007.
Þarna kom í ljós kirkja
sem tímasett var allt aftur
á 12. öld. Grafirnar sem
hér sjást eru þó yngri,
en þær eru svo djúpar
að þær fara í gegnum
eldri jarðlög. Ef myndin
prentast vel sést móta
fyrir þremur kistum, einni
hálfopinni þar sem heilleg
beinagrind liggur.
Norðurál er eitt stærsta iðnfyrirtæki á Íslandi. Hjá fyrir tækinu starfa um 600 manns með
fjöl breytta menntun og bakgrunn. Árleg framleiðslugeta er um 300 þúsund tonn af hágæða áli.
HeilindiHagsýni Liðsheild nordural.is
MENNTUNAR- OG HÆFNISKRÖFUR:
• Sveinspróf/meistarapróf í rafeindavirkjun og a.m.k.
tveggja ára starfsreynsla frá sveinsprófi
• Þekking á netkerfum og ljósleiðurum er kostur
• Reynsla af vinnu í iðnaðarumhverfi eða við
sambærileg störf er æskileg
• Metnaður, öguð vinnubrögð og rík ábyrgðarkennd
• Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
• Sterk öryggisvitund
• Lipurð í mannlegum samskiptum
• Góð kunnátta í íslensku, ensku og almennri tölvunotkun
Norðurál Grundartanga óskar að ráða rafeindavirkja
í dagvinnu. Leitað er að metnaðarfullum og traustum
einstaklingi sem hefur áhuga á margþættum og krefjandi
verkefnum. Um framtíðarstarf er að ræða.
Umsóknarfrestur er til og með
6. nóvember nk. Umsókn ásamt ferilskrá
óskast fyllt út á www.nordural.is.
Öllum umsóknum verður svarað og trúnaði
heitið.
Nánari upplýsingar um starfið veita Hjalti Birgisson,
deildarstjóri og Elín Rós Sveinsdóttir, deildarstjóri
starfsmannaþjónustu í síma 430 1000.
Hjá Norðuráli leggjum við áherslu á jafna möguleika karla og kvenna, endur-
menntun og starfsþróun, frábæran starfsanda og samstarfsfélaga. Starfinu
fylgir góð starfsaðstaða í lifandi umhverfi þar sem metnaður og fagmennska
eru í fyrirrúmi.
RAFEINDAVIRKI
STARFSSVIÐ:
• Fyrirbyggjandi viðhald, m.a. á
fjarstýringum og mælitækjum
• Umsjón með brunakerfi og
myndavélakerfi
• Tæknilegur stuðningur og ráðgjöf um
rafeindabúnað, hvort sem um er að ræða
breytingar, viðgerðir eða nýsmíði