Skessuhorn - 26.10.2016, Side 13
MIÐVIKUDAGUR 26. OKTÓBER 2016 13
Við ætlum að
byggja upp fyrsta flokks heilbrigðiskerfi og efla Heilbrigðisstofnun Vesturlands
gera betur við barnafjölskyldur, lengja fæðingarorlof í 12 mánuði og
hækka barnabætur
leggja áherslu á matvælaöryggi, lýðheilsustefnu og landbúnað í sátt
við byggð og náttúru
tryggja öruggar samgöngur - tvöföldun Vesturlandsvegar
standa vörð um menntastofnanir á Vesturlandi
styðja betur við ungt fólk, hjálp við kaup á fyrstu fasteign og betra
námslánakerfi
tryggja öldruðum og öryrkjum 300 þúsund króna lágmarksframfærslu
ná sátt um afgjald vegna auðlindanýtingar, starfsumhverfi útgerðar og
kjör sjómanna
styðja við uppbyggingu á fjölbreyttu atvinnulífi í sátt við umhverfið
| Guðjón Brjánsson | Inga Björk Bjarnadóttir | Hörður Ríkharðsson | Pálína Jóhannsdóttir
1 2 3 4
FRUMHERJI HF. – ÞEGAR VEL ER SKOÐAÐ
www.frumherji. is
Stykkishólmur 2016
Bifreiðaskoðun verður hjá Bílaverkstæðinu
Dekk & Smur, Nesvegi 5
Fimmtudaginn 3. nóvember
Föstudaginn 4. nóvember
Tímapantanir í síma 438 – 1385
Lokað í hádeginu kl. 12.00 – 13.00
S
K
E
S
S
U
H
O
R
N
2
01
6
Það stefnir í metár í íslenskum
kvikmyndaiðnaði en búast má við
að velta í framleiðslu á kvikmynd-
um, myndböndum og sjónvarps-
efni hér á landi muni tvöfaldast á
þessu ári ef mið er tekið af veltu
fyrstu sex mánuða ársins. Áætl-
uð velta þessa árs er 24,4 millj-
arðar króna í samanburði við 11
milljarða króna veltu á síðasta ári.
Þegar horft er á tímabilið janú-
ar til júní á þessu ári eru umsvif-
in þegar orðin tvöföld á við það
sem var á sama tíma í fyrra. Frá
árinu 2008 hafa umsvifin á þess-
um markaði fimmfaldast en árið
2008 var veltan rúmir 4,4 millj-
arðar króna.
Kristinn Þórðarson, framleið-
andi hjá Truenorth og formaður
Sambands íslenskra kvikmynda-
framleiðenda (SÍK), segir mikla
grósku í íslenskri kvikmyndagerð
en staðreyndin sé að veltuaukn-
inguna megi nær eingöngu rekja
til þess að undanfarin ár hafi verið
gríðarlegur áhugi erlendra fram-
leiðenda á að koma til Íslands.
„Árið 2016 er engin undantekn-
ing því hingað kemur hver stór-
myndin af annarri. Kvikmynda-
gerðarfólk Fast and Furious voru
við tökur í vetur norður í landi og
Akranesi og framleiðendur Forti-
tude komu aftur til Íslands í tök-
ur á þáttaröð númer tvö. Seinni
part ársins hafa fjögur banda-
rísk stórverkefni komið til lands-
ins. Áhrif þessara verkefna á Ís-
land eru mjög jákvæð og nægir að
nefna aukningu ferðamanna auk
beinna tekjutengdra áhrifa sem
dreifist á alla landsbyggðina því
verkefnunum fylgja yfirleitt tök-
ur utan höfuðborgarsvæðisins.
Erlendir framleiðendur og leik-
stjórar eru fyrir löngu búnir að
uppgötva hversu stórfengleg ís-
lensk náttúra er og nýta sér það
við gerð sinna mynda á meðan
fjármagn til íslenskra kvikmynda
er svo takmarkað að íslenskir
framleiðendur hafa ekki efni á að
fara langt út fyrir sitt nærsvæði og
nýta náttúruna á sambærilegan
hátt. Þess vegna er brýnt að styðja
betur við uppbyggingu íslenskrar
kvikmynda- og sjónvarpsgerðar
með hærri fjárframlögum enda er
þetta orðinn einn öflugasti mið-
ill í heiminum. Það þarf að auka
framleiðslu á íslensku efni bæði
fyrir heimamarkað og sem út-
flutningsvöru en það hefur sýnt
sig að útlendingar er sólgnir í ís-
lenskt efni.“
Guðný Guðjónsdóttir, forstjóri
Sagafilm, tekur undir orð Krist-
ins og segist finna fyrir stóraukn-
um áhuga hjá erlendum dreif-
ingaraðilum og sjónvarpsstöðv-
um á íslensku efni í kjölfar vel
heppnaðra sjónvarpsþáttaraða
líkt og Réttur og Ófærð. „Nordic
Noir, íslenskt umhverfi, íslensk-
ar sögur og tónn er vinsælt efni
um þessar mundir. Við þurfum
að hamra járnið á meðan það er
heitt, styrkja Kvikmyndasjóð enn
frekar og stórauka framleiðslu á
íslensku efni bæði fyrir íslenska
þjóð sem og fyrir erlenda dreif-
ingu. Kvikmyndagerðin hefur
verið að eflast mikið síðastliðin
ár bæði í gæðum og fagmennsku
en við höfum tækifæri til að gera
enn betur, framleiða meira og
dreifa víðar. Við eigum að leggja
áherslu á íslenskt hugverk og
hinn sterka miðil sem sjónvarp-
ið er.“
-tilkynning
Stefnir í metár í íslenskum
kvikmyndaiðnaði
Tökur á kvikmyndinni Fast-8 fóru m.a. fram í Mývatnssveit og á Akranesi í vor.
Ljósm. mm.