Skessuhorn - 26.10.2016, Page 14
MIÐVIKUDAGUR 26. OKTÓBER 201614
Íslendingar ganga til alþingis-
kosninga laugardaginn 29. októ-
ber næstkomandi. Framboðslistar
hér í Norðvesturkjördæmi eru tíu
talsins. Þeir eru eftirfarandi, í staf-
rófsröð eftir listabókstaf: A-listi
Bjartrar framtíðar, B-listi Fram-
sóknarflokks, C-listi Viðreisnar,
D-listi Sjálfstæðisflokks, E-listi
Íslensku þjóðfylkingarinnar, F-
listi Flokks fólksins, P-listi Pírata,
S-listi Samfylkingarinnar, T-listi
Dögunar og V-listi Vinstri hreyf-
ingarinnar græns framboðs.
Norðvesturkjördæmi er fá-
mennasta kjördæmi landsins og
hefur átta sæti á Alþingi, þar af eitt
jöfnunarþingsæti. Alls eru 21.479
á kjörskrá í kjördæminu í komandi
Alþingiskosningum, 0,7 prósent-
um fleiri en árið 2013. Kosninga-
bærir karlar í NV-kjördæmi eru
10.995 en konur 10.484.
Kosningarétt eiga allir íslenskir
ríkisborgarar sem hafa náð 18 ára
aldri á kjördag og eiga lögheimili
á Íslandi. Jafnframt eiga kosninga-
rétt íslenskir ríkisborgarar sem
flutt hafa lögheimili sitt til ann-
arra landa eftir 1. desember 2007
og náð hafa 18 ára aldri á kjördag.
Einnig eiga kosningarétt þeir ís-
lenskir ríkisborgarar sem flutt
hafa lögheimili sitt til útlanda fyrir
1. desember 2007 og sótt hafa sér-
staklega um til Þjóðskrár Íslands
að fá að kjósa í komandi alþing-
iskosningum fyrir 29. september
síðastliðinn.
Kjósendur eru á kjörskrá í því
sveitarfélagi þar sem þeir eiga
skráð lögheimili fimm vikum fyrir
kjördag, eða í síðasta lagi 24. sept-
ember 2016. Flutningur lögheim-
ilis eftir þann tíma breytir ekki
skráningu á kjörskrá.
Kjósendur kynni sér
kjörfundi og kjörstaði
Almennt eru kjörstaðir í fjölmenn-
ari kjördeildum opnir frá klukkan
9:00 til 22:00, en á því eru undan-
tekningar eins og lög gefa heimild
til. Sem dæmi má nefna að kjör-
fundur í Skorradalshreppi fer fram
í íbúðarhúsnæðinu á Indriðastöð-
um og opnar kl. 12 á hádegi. Þá
eru sumar kjördeildir í Borgar-
byggð og Snæfellsbæ sem verða
opnaðar kl. 10:00 eða síðar og
eru opnar skemur en til kl. 22:00.
Kjósendur eru hvattir til að kynna
sér upplýsingar um kjörfundi í
þeim sveitarfélögum þar sem þeir
eru á kjörskrá. Nokkur sveitar-
félög auglýsa kjörfundi í Skessu-
horni vikunnar en að öðrum kosti
geta kjósendur nálgast upplýsingar
um kjörstaði og kjörfundi á skrif-
stofum sveitarfélaganna eða á vef-
síðum þeirra á netinu. Ef einhver
er ekki viss hvar hann á að kjósa þá
má benda á vefinn www.kosning.
is. Til vinstri á þeim vef er hægt
að smella á flipa sem heitir „Hvar
er ég á kjörskrá?“. Þar geta kjós-
endur slegið inn kennitölu sína
og fengið að vita hvar þeir eiga að
mæta á kjörstað.
Þá eru kjósendur minntir á að
hafa meðferðis á kjörstað löggild
persónuskilríki, svo sem gilt vega-
bréf eða ökuskírteini.
kgk
Kosið verður til Alþingis laugardaginn 29. október
Atkvæði greitt í kosningum til
Alþingis fyrir þremur árum síðan.
Eins og sagt var frá fyrr á þessu ári
fór í sumar fram tilraunaverkefni á
vegarkafla í kríuvarpinu á milli Rifs
og Hellissands. Tilraunaverkefnið
fólst í því að nokkrir stuttir vegar-
kaflar voru málaðir í nokkrum litum
til að athuga hvort það myndi koma
í veg fyrir að ungarnir settust á veg-
inn en kríuungadauði er mjög al-
gengur á þessum slóðum enda um-
ferð mikil. Það var Hanna Kristrún
Jónsdóttir sem sá um verkefnið fyrir
Sjávarrannsóknarsetrið Vör en nið-
urstöður tilraunaverkefnisins gefa
til kynna að kríuungar forðist rauð-
malaðan veg. Vegurinn var málaður
í grænum, bláum og rauðum lit og
reynt að kanna hvort litirnir drægju
úr því að ungarnir færu eins mikið
út á veginn þar sem hann væri ekki
lengur í felulitum og safnaði heldur
ekki eins miklum hita í sig.
Úrtakið reyndist þó minna en
aðstandendur verkefnisins vonuð-
ust eftir og því var erfitt að segja
til um hvort litirnir hafi virkað eins
og til var ætlast. Sýndu tölfræði-
próf að ungadauði á græna litnum
hafi farið minnkandi með sumr-
inu og að ungadauði var mjög lít-
ill á rauða litnum allt sumarið. Úti-
lokað er að blái liturinn verði not-
aður áfram ef áframhald verður á
þessari rannsókn en mikil aukning
varð á ungadauða á þeim lit þegar
leið á sumarið. Einnig gæti sá vegs-
potti sem valinn var haft áhrif á
niðurstöðurnar þar sem kríuvarpið
virðist vera að færast frá þeim stað
og nær Rifi. Ekki er því ljóst hvort
þessu verkefni verði haldið áfram á
næsta ári en um sjötíu fuglar dráp-
ust á tilraunasvæði verkefnisins en
150 fuglar á vegarspotta stutt frá.
þa
Einna helst að kríungar
forðist rauða vegamálningu
Ungadauði á græna svæðinu fór
minnkandi þegar leið á sumarið.
Rauði liturinn reyndist best. Útilokað er hins vegar að blái liturinn verði notaður
áfram, ef áframhald verður á þessari rannsókn, en mikil aukning varð á
ungadauða á þeim lit þegar leið á sumarið.
Þessa dagana er verið að hefja fram-
kvæmdir í Rifshöfn á Snæfellsnesi.
Endurbyggja á stálþilið við Norð-
urkantinn en þilið sem er fyrir er
orðið 52 ára og ástand þess lélegt.
Tæring er komin í það og leka fyll-
ingarefni út um göt á því. Rekið
verður niður nýtt stálþil 207 metra
langt fyrir framan gamla þilið.
Þekjan verður brotin og ný steypt
ásamt því að allar lagnir verða end-
urnýjaðar og einnig masturshúsin
og lýsing.
Undirbúningur fyrir verkið hef-
ur staðið yfir í dálítinn tíma en fyrr
á árinu bauð hafnarsjóður út stál-
þilsefni, festingar og kanttré og var
samið um kaup á stálþili að upphæð
77,3 milljónir króna við Guðmund
Arason ehf og við Húsasmiðjuna
um kaup á kanttré að upphæð 1,6
milljónir. Um miðjan ágúst voru
svo opnuð tilboð í rekstur og frá-
gang á stálþilinu, broti á þekju,
uppsetningu á stigum, fríholtum og
pollum. Í það verk bárust þrjú til-
boð og var gengið til samninga við
lægstbjóðanda Hagtak hf. í Hafnar-
firði að upphæð krónur 137,2 millj-
nir. Á áfanganum að vera lokið 1.
maí 2017. Strax eftir áramót verður
svo boðin út steypa á þekju, bygg-
ing masturshúsa, endurnýjun lagna
of fleira.
Gert er ráð fyrir að öllum fram-
kvæmdum ljúki fyrir áramótin
2017-2018 og er heildarkostnað-
ur áætlaður 511,4 milljónir króna.
Þegar þessum framkvæmdum verð-
ur lokið er búið að endurbyggja all-
ar bryggjur og viðlegukanta í Rifs-
höfn að undanskildum 120 metra
löngu stálþili við Austurkant sem
byggt var í tveimur áföngum, þeim
fyrri 1969 og hinum síðari 1979.
þa
Framkvæmdir að hefjast við
Norðurkant Rifshafnar
Fyrsta íslenska sumargotssíldin á
vertíðinni veiddist í síðustu viku eft-
ir að skipin fundu síldina loks djúpt
vestur af Reykjanesi og Faxaflóa.
Að sögn Alberts Sveinssonar, skip-
stjóra á Víkingi AK, er síldin mjög
dreifð á stóru svæði en hún virðist
vera vel haldin og meðalvigtin er
um 300 grömm. Um hádegisbilið í
gær sagði Albert að skipið væri út
af Eyjafirði á leið til Vopnafjarðar.
Reiknað var með því að skipið komi
til hafnar seint í gærkvöldi.
,,Það gekk ekkert of vel að finna
síldina að þessu sinni. Við fórum
ásamt Venusi NS fyrst til síldveiða
fyrir miðjan mánuðinn en þá var
ekkert að sjá fyrir vestan landið.
Við fórum því í einn kolmunnatúr
og síðan var aftur skroppið vestur
fyrir land. Þá sást lítið og vegna
brælu, sem spáð var, fórum við til
Reykjavíkur. Þar vorum við þar til
að fregnir bárust af því að vart hefði
orðið við síld. Við fórum því aftur
út og tókum fyrsta holið sl. laug-
ardag,“ segir Albert í samtali við
vef HB Granda. Hann bætti við
að fjögur skip hefðu verið komin á
miðin.
Albert segir erfitt að gera sér
grein fyrir því hvort mikið sé af síld
vestan við landið. ,,Lóðningarn-
ar voru ekki mjög sterkar en síld-
in virðist vera dreifð yfir mjög stórt
svæði. Ástandið virðist vera svipað
alls staðar. Veiðin er minnst um há-
degisbilið en meiri fyrst á morgn-
ana og svo síðdegis,“ sagði Albert.
mm
Sumargotssíldin fannst djúpt
vestur af Reykjanesi