Skessuhorn - 26.10.2016, Page 17
MIÐVIKUDAGUR 26. OKTÓBER 2016 17
Árbók
Akurnesinga
2015 er komin út
Útgáfutilboð í Eymundsson í tilefni
af 15 ára afmælinu - til 31. október
Eldri árbækur 2001-2009 á tilboði
Gerist áskrifendur: sími 863-4972
kristjan@arbok.is
Þóra Geirlaug Bjartmarsdóttir,
5. sæti
Rúnar Gíslason,
4. sæti
Dagný Rósa Úlfarsdóttir,
3. sæti
Bjarni Jónsson,
2. sæti
Lilja Rafney Magnúsdóttir,
1. sæti
Hverjum treystir þú?
Fylgstu með okkur á facebook.com/nordvesturkjordaemi
Hópur ástralskra og indverskra skóla-
stjórnenda var á dögunum í heim-
sókn í Fjölbrautaskóla Snæfellinga í
Grundarfirði. Heimsóknin var liður
í ferðalagi þeirra um Evrópu til að
kynna sér nýjungar í kennsluháttum
og notkun tölvutækni í skólastarfi.
Þetta er í annað sinn í 12 ára sögu
skólans sem að FSN fær heimsókn
af þessu tagi. Það er því ljóst að það
eru áhugaverðir hlutir í gangi innan
veggja FSN. tfk
Ástralskir skólastjórnendur
heimsækja FSN
Hópurinn ásamt Hrafnhildi Hallvarðsdóttur skólameistara, Sólrúnu Guðjóns-
dóttur aðstoðar skólameistara og Lofti Árna Björgvinssyni kennara.
Fyrr í þessari viku hélt Borgarbyggð
tvo íbúafundi um ljósleiðaravæðingu
í sveitarfélaginu. Eins og fram hef-
ur komið í fréttum er nú unnið að
frumhönnun og kostnaðarmati á ljós-
leiðaravæðingu í sveitarfélaginu og
er verkefnið viðamikið í ljósi lands-
tærðar Borgarbyggðar. Á fundun-
um kynnti Guðmundur Daníelsson
ráðgjafi Borgarbyggðar í ljósleiðara-
málum verkefnið sem framundan er.
Fyrri fundurinn var haldinn í Brúarási
í Hálsasveit og var fjölsóttur og góð-
ur, að því er fram kemur í frétt á vef
sveitarfélagsins. Seinni fundurinn var
svo í gærkvöldi í Lyngbrekku á Mýr-
um og var ekki hafinn þegar Skessu-
horn var sent í prentun. mm
Kynntu ljósleiðaramál
á tveimur fundum
Frá fyrri fundinum sem haldinn var í Brúarási. Ljósm. Geirlaug Jóhannsdóttir.