Skessuhorn


Skessuhorn - 26.10.2016, Page 19

Skessuhorn - 26.10.2016, Page 19
MIÐVIKUDAGUR 26. OKTÓBER 2016 19 Þekking Gæði Þjónusta Grensásvegi 46 - 108 Reykjavík - sími 5113388 „Stykkishólmur er á réttri leið,“ skrifar Sturla Böðvarsson bæjar- stjóri í vikulegum pistli á heima- síðu Stykkishólmsbæjar. Tilefnið er úttekt Vísbendingar, tímarits sem fjallar um viðskipti og efnahag. Mið- illinn hefur í mörg ár skoðað fjár- hag sveitarfélaga og gefið sveitar- félögunum einkunn. „Þegar núver- andi meirihluti bæjarstjórnar Stykk- ishólms tók við var Stykkishólmur í 34. sæti af 36 sveitarfélögum á list- anum. Eftirlitsnefnd með fjármál- um sveitarfélaga hafði gefið bæjar- stjórn rauða spjaldið og allt stefndi í mikil vandræði og íbúum fækkaði,“ skrifar Sturla. „Núverandi meiri- hluti hefur frá fyrsta degi leitað allra leiða til þess að rétta reksturinn við og gæta hófs í skattlagningu en um leið setja af stað ýmsar framkvæmdir til þess að koma á öflugri hreyfingu sem skilar sér í auknum tekjum og bættum rekstri. Einkunnagjöf Vís- bendingar skilaði sér strax 2015 eftir uppstokkun seinni hluta ársins 2014 og færðist Stykkishólmur þá upp úr 34. sæti í 24. sæti. Nú hafa þau tíð- indi gerst að hagræðing og breytt stjórnun bæjarfélagsins hefur skilað okkur í 14. sæti í einkunnagjöf Vís- bendingar sem er í raun ótrúleg- ur árangur, en sýnir að við erum á réttri leið. Við getum ótrauð hald- ið áfram við að byggja upp samfé- lagið og bæta aðstöðuna í þágu bæj- arbúa,“ skrifar Sturla jafnframt. Hann fer í pistli sínum yfir helstu framkvæmdir á vegum bæjarins það sem af er þessu ári. Þar á meðal er endurgerð og malbikun Víkurgötu, malbikun og steypa gangstétta við Stykkishólmur kominn upp í fjórtánda sæti á lista Vísbendingar gatnamót Aðalgötu og Borgar- brautar, framkvæmdir við 550 fer- metra byggingu Amtbókasafns við Grunnskólahúsið og bætt að- gengi fatlaðra við Grunnskólann og Íþróttamiðstöðina. „Á sviði skóla- mála og menningarmála hefur ver- ið mikil gróska. Bæjarstjórn hefur samþykkt eftir vandaðan undirbún- ing bæði Skólastefnu Stykkishólms og Menningarstefnu Stykkishólms sem stjórnendur skólanna og menn- ingarstofnana bæjarins munu fylgja fram með sínu fólki. Það má með sanni segja að það ríki bjartsýni í Stykkishólmi á þessum haustdögum og það mátti vissulega merkja það við setningu Norðurljósahátíðar í Stykkishólmskirkju í gær [fimmtu- dag] þar sem kirkjukór og organisti Stykkishólmskirkju fengu heiðurs- viðurkenningu Stykkishólmsbæjar. Í lok þessa pistils vil ég hvetja bæjar- búa til þess að njóta þeirra viðburða sem boðið er uppá um helgina í nafni Norðurljósahátíðar 2016,“ segir Sturla Böðvarsson. mm

x

Skessuhorn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.