Skessuhorn - 26.10.2016, Qupperneq 23
MIÐVIKUDAGUR 26. OKTÓBER 2016 23
lag gerði hún öll sín verk vel. Forða-
gæslumaðurinn hrósaði henni mik-
ið fyrir umgengni. „Ég setti upp lítið
skýli fyrir heyið. Ég fékk fyrstu verð-
laun fyrir umgengni og annað slíkt.
Honum fannst svo frábært að kona
skyldi hafa fundið upp á þessu,“ seg-
ir Guðríður og hlær.
Þegar maðurinn hennar kom
heim af vertíðinni að vori, tilkynnti
hann Guðríði stutt og laggott að
hann ætlaði að skilja við hana. Það
kom flatt upp á Guðríði, en hún varð
við því og fór aftur að Stóru-Giljá.
Hún skildi strákinn eftir hjá föðurn-
um til að byrja með til að biðja um
leyfi til að fá að taka strákinn með
að Stóru-Giljá. „Ég fékk það. Það
endaði með því að drengurinn varð
eftirlæti gömlu mannanna á Giljá,“
segir hún og hlær.
Ráðskona verður
húsfreyja
Þegar hún er búin að vera á Stóru-
Giljá í um það bil ár fór hún að
ókyrrast og vildi finna sér vinnu. Þá
frétti hún af manni í Borgarfirðinum
sem vantaði ráðskonu. Maðurinn var
Einar Torfason sem varð sambýlis-
maður hennar næstu 40 árin. Þau
áttu saman fimm börn að Iðunn-
arstöðum í Lundarreykjadal. Ein-
ar gekk syni hennar úr fyrra hjóna-
bandi í föðurstað.
Barnamissir og sorg
Búskapurinn að Iðunnarstöðum var
ekki auðveldur. „Þetta var óttalegt
kot, það var það í raun og veru,“ seg-
ir hún. Guðríður missti tvö börn á
meðan hún bjó að Iðunnarstöð-
um. Sonur hennar úr fyrra hjóna-
bandi drukknaði í Tunguá. „Ég átti
kind sem var svolítið leiðinleg,“ seg-
ir Guðríður þegar hún rifjar þetta
upp. „Drengurinn var níu ára þegar
hann fór að vitja kindarinnar. Hann
vissi það að laxinn var að koma og
hann var að gá,“ segir Guðríður.
Hún telur að hann hafi verið að
kíkja eftir laxi í ánni og dottið út
í. Hann fannst skammt frá brúnni
yfir ána. „Það var lengi vel sem ég
gat ekki með nokkru lifandi móti
komið þarna nær. Það var nágranni
minn sem fann hann.“
Missirinn var sár, en Guðríður
segir að enn sárara hafi verið þeg-
ar hún missti annan son tvítugan að
aldri. „Það var alveg sama hvar hann
var eða með hverjum hann var. Það
þótti öllum vænt um hann,“ segir
Guðríður og upprifjunin er henni
mjög sár. Hannes sonur hennar lést
í bílslysi. „Ég veit ekkert hvað kom
fyrir og fæ aldrei að vita það.“
Akranes á efri árum
Guðríður og Einar bjuggu að Ið-
unnarstöðum í um það bil fjóra ára-
tugi. Þau fluttu svo saman á Akra-
nes árið 1999. Guðríður vann þá í
sláturhúsinu á Laxá í nokkurn tíma.
Einar lést árið 2004 og Guðríður
býr ein í litlu húsi á Neðri-Skaga.
Hún á fjölda afkomenda sem heim-
sækja hana og hún er stolt af af-
komendum sínum. Myndir af þeim
prýða alla veggi í litla húsinu henn-
ar. Hún er mjög félagslynd og hef-
ur gaman að því að hitta fleiri eldri
borgara og föndra. Hún er flink í
höndunum og hefur gert reiðinnar
býsn af skrauti sem prýðir heimili
hennar og hún gefur afkomendum
sínum og jafnvel gestum og gang-
andi. Einnig býr hún til skraut úr
leir og málar postulín.
Hún endar spjallið á að minn-
ast Stóru-Giljár. „Þetta er rosa-
lega fallegt hús, ég elska þetta hús,“
segir Guðríður en viðurkennir þó
að henni mislíki liturinn á húsinu
núna. En húsið mun alltaf eiga stað
í hjarta hennar. „Þarna er ég fædd, í
miðglugganum.“
klj
Fréttaveita Vesturlands
www.skessuhorn.is
Snæfellsbær
Auglýsing um kjörfundi
vegna alþingiskosninga
laugardaginn 29. september
Ólafsvíkurkjördeild:
Kjörfundur verður haldinn í Grunnskólanum í Ólafsvík. Kosning hefst
kl. 10:00 og stendur til kl. 22:00
Hellissands- og Rifskjördeild:
Kjörfundur verður haldinn í Grunnskólanum á Hellissandi. Kosning hefst
kl. 10:00 og stendur til kl. 22:00
Staðarsveitar- og Breiðuvíkurkjördeild:
Kjörfundur verður haldinn í Grunnskólanum á Lýsuhóli. Kosning hefst
kl. 11:00 og stendur til kl. 20:00
Munið eftir persónuskilríkjum.
Yfirkjörstjórn Snæfellsbæjar
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
6
Jákvæðni, metnaður og víðsýniwww.akranes.is
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
6
Kjörfundur vegna Alþingiskosninga 2016 fer fram í
Brekkubæjarskóla laugardaginn 29. október. Hefst kjörfundur
kl. 9:00 og lýkur í síðasta lagi kl. 22:00.
Brekkubæjarskóli (nýbygging, gengið inn frá Vesturgötu)
I. kjördeild Akurgerði til og með Grundartúni
II. kjördeild Hagaflöt til og með Reynigrund
III. kjördeild Sandabraut til og með Þjóðvegi
Kjósendur eru hvattir til að kjósa snemma á kjördag og hafa meðferðis
persónuskilríki. Hægt er að ná í fulltrúa yfirkjörstjórnar á kjördag
í síma 433-1315 / 864-5528 og á netfangið kosning@akranes.is.
Yfirkjörstjórn Akraness
Hugrún O. Guðjónsdóttir
Björn Kjartansson
Einar Gunnar Einarsson
Alþingiskosningar 2016
Snæfellsbær
Kjörskrá vegna alþingiskosninga
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
6
Kjörskrá vegna alþingiskosninga þann 29. október 2016 var lögð fram
samþykkt af bæjarstjórn þann 19. október.
Kjörskráin verður frá þeim degi til sýnis í Ráðhúsi Snæfellsbæjar að
Snæfellsási 2, Hellissandi, á opnunartíma skrifstofunnar.
Við viljum vekja athygli kjósenda á því að þeir geta nú kannað á
vefnum www.kosning.is hvar þeir eru á kjörskrá.
Þeir sem vilja koma að athugasemdum við kjörskrá er bent á að senda þær
með tölvupósti á krisinn@snb.is eða lilja@snb.is, eða koma þeim bréflega
í Ráðhús Snæfellsbæjar.
Bæjarstjórinn í Snæfellsbæ
AUGLÝSING UM SKIPAN Í
KJÖRDEILDIR Í BORGARBYGGÐ
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
6
Við alþingiskosningar laugardaginn 29. október 2016
er skipan í kjördeildir í Borgarbyggð sem hér segir:
Borgarneskjördeild í Hjálmakletti (Menntaskólanum) í Borgarnesi
Þar kjósa íbúar á svæðinu milli Langár og Gljúfurár.
Kjörfundur hefst kl. 9.00 og lýkur kl. 22.00.
Lindartungukjördeild í félagsheimilinu Lindartungu
Þar kjósa íbúar á svæðinu milli Hítarár og Haffjarðarár.
Kjörfundur hefst kl. 10.00 og lýkur kl. 20.00.
Lyngbrekkukjördeild í félagsheimilinu Lyngbrekku
Þar kjósa íbúar á svæðinu milli Langár og Hítarár.
Kjörfundur hefst kl. 10.00 og lýkur kl. 20.00.
Þinghamarskjördeild í félagsheimilinu Þinghamri, Varmalandi
Þar kjósa íbúar í Stafholtstungum, Norðurárdal, Bifröst og Þverárhlíð.
Kjörfundur hefst kl. 10.00 og lýkur kl. 22.00.
Brúaráskjördeild í félagsheimilinu Brúarási
Þar kjósa íbúar Hvítársíðu og Hálsasveitar.
Kjörfundur hefst kl. 10.00 og lýkur kl. 20.00.
Kleppjárnsreykjakjördeild í grunnskólanum að Kleppjárnsreykjum
Þar kjósa íbúar Hvanneyrar, Andakíls, Bæjarsveitar, Lundarreykjadals,
Flókadals og Reykholtsdals.
Kjörfundur hefst kl. 10.00 og lýkur kl. 22.00.
Vinsamlega athugið mismunandi tíma á lokun kjördeildanna.
Kjósendur eru hvattir til að athuga í hvaða kjördeild þeir eiga
að kjósa og hafa persónuskilríki með sér á kjörstað.
Á kosningavef innanríkisráðuneytisins kosning.is geta kjósendur kannað
hvar þeir eiga að kjósa og þar eru ýmsar upplýsingar varðandi kosningarnar
Á kjördag verður kjörstjórn Borgarbyggðar með aðsetur
í Hjálmakletti í Borgarnesi. Sími hennar er 433-7708.
Kjörstjórn Borgarbyggðar
Guðríður er hér að selja súrsað grænmeti á markaði sem haldinn var á vegum
félagsstarfs aldraðra og öryrkja að Kirkjubraut 40 á Akranesi í nóvember í fyrra.