Skessuhorn - 26.10.2016, Page 29
MIÐVIKUDAGUR 26. OKTÓBER 2016 29
Þjóðahátið Vesturlands
Laugardagur 29. okt 2016
Íþróttasalur Vesturgata, Akranesi
kl. 14.00 – 17.00
Frábær dagur fyrir alla fjölskylduna!
Fara og kjósa - og koma svo og njóta
Þjóðahátiðar Vesturlands
Allir velkomnir!
Ókeypis inn!
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
6
Margar sortir af alþjóðlegum mat til sölu, einnig fullt af ókeypis
sýnishornasmakki. Sé það gott er um að gera að kaupa kaupa!
Aðeins reiðufé engin kort!
Allir krakkarnir í Halloween búningum sem syngja eða skemmta
á annan hátt munu fá ókeypis nammi! Verðlaun fyrir bestu
búningana! Frábær dagur fyrir alla
Kvenfélagasamband Íslands í sam-
vinnu við Ljósmæðrafélag Íslands
og kvenfélögin í landinu stóð fyr-
ir Húfuverkefni árið 2010 í til-
efni af 80 ára afmæli Kvenfélaga-
sambandsins. Húfuverkefnið snér-
ist um að prjóna húfur og færa öll-
um börnum sem fæddust á landinu
það árið. Það árið fæddust 4907
börn og fengu þau öll húfu. Kven-
félag Ólafsvíkur ákvað fyrr á þessu
ári að taka þetta verkefni upp aft-
ur og færa öllum börnum sem
fæðast í Snæfellsbæ kvenfélags-
húfu að gjöf. Höfðu þær samband
við Fanný Berit Sveinbjörnsdóttur
ljósmóður og Sigrúnu Erlu Sveins-
dóttur hjúkrunarfræðing á HVE í
Ólafsvík um að aðstoða við þetta
verkefni. Tóku þær verkefnið að
sér með mikilli ánægju og munu
þær sjá um að öll börn sem fæðast
í Snæfellsbæ fái litla gjöf frá Kven-
félagi Ólafsvíkur. Fyrstu húfurnar
voru svo afhentar á dögunum og
munu kvenfélagskonur í Kvenfé-
lagi Ólafsvíkur sjá til þess að það
sé alltaf nóg til.
Endurvekja húfuverk-
efnið í Snæfellsbæ
Á myndinni eru þær Elfa Eydal Ármannsdóttir formaður KÓ, Fanný Berit Svein-
björnsdóttir ljósmóðir, Aðalheiður Nanna Þórðardóttir gjaldkeri KÓ og Sigrún Erla
Sveinsdóttir hjúkrunarfræðingur.
www.skessuhorn.is