Skessuhorn - 26.10.2016, Síða 30
MIÐVIKUDAGUR 26. OKTÓBER 201630
Helgina 25.-27. nóvember næst-
komandi verður haldin kvik-
myndahátíðin Frostbiter í Bíó-
höllinni á Akranesi. Aðstandendur
hátíðarinnar eru Skagamaðurinn
Ársæll Rafn Erlingsson og Lovísa
Lára Halldórsdóttir. Hátíðin hef-
ur þá sérstöðu að einungis verða
sýndar hryllingsmyndir og eru
það nýmæli hér á landi. Hátíðar-
gestir standa frammi fyrir miklu
úrvali af myndum en rúmlega
fjörutíu kvikmyndir verða sýnd-
ar á hátíðinni, flestar stuttmyndir.
Það má því búast við fjörugri helgi
í lok nóvember á Skaganum þar
sem uppvakningar munu mögu-
lega láta sjá sig á götum bæjarins,
á milli þess sem vampírur, draugar
og sitthvað yfirnáttúrulegt þenur
taugar áhorfenda í Bíóhöllinni.
Um 200 umsóknir
bárust
Alls verða um fjörutíu myndir
sýndar á hátíðinni bæði innlendar
sem erlendar. „Við auglýstum eftir
stuttmyndum til þess að taka þátt
í hátíðinni á netinu. Okkur bár-
ust margar umsóknir, mun fleiri
en við bjuggumst við. Þegar upp
var staðið voru þetta um 200 um-
sóknir alls staðar að úr heimin-
um, t.d. Brasilíu, en flestar bárust
þó frá Bandaríkjunum og Spáni.
Það voru smá vonbrigði hversu
fáar norrænar myndir við fengum.
Flóran sem við fengum af mynd-
um var mjög skemmtileg og við
fengum fólk til að aðstoða okkur
að velja þær bestu. Við ákváðum
að velja tólf íslenskar stuttmyndir
og 25 erlendar. Þær eru af ýmsum
toga; sumar eru hálfgerðar grín-
myndir en aðrar eru mjög skugga-
legar. Þær eiga það þó allar sam-
eiginlegt að vera stórgóðar,“ segir
Lovísa í samtali við Skessuhorn.
Aðeins verður keppt um verð-
laun í flokki stuttmynda en það
verða einnig sýndar myndir í fullri
lengd. „Myndirnar sem við erum
með í fullri lengd sækja ekki um
heldur erum við að velja þær úr
sjálf. Af myndum í fullri lengd
verður til dæmis ný kvikmynd eft-
ir Erling Óttar Thoroddsen sem
heitir Child Eater, en hann var að
frumsýna hana í Bandaríkjunum á
dögunum. Við erum líka mjög glöð
að Erlingur ætlar að koma á hátíð-
ina og fræða áhorfendur um gerð
myndarinnar auk þess sem hann
mun svara spurningum. Erlingur
er búsettur í New York og verður
líklega eini leikstjórinn sem kem-
ur gagngert til landsins til að vera
viðstaddur hátíðina, allir leikstjór-
arnir lýstu yfir áhuga á því en fjár-
magn hátíðarinnar er ekki mik-
ið svo við getum ekki fengið alla
til landsins þó svo að við vildum
það,“ segir Ársæll.
Barið á uppvakningum
Þau Lovísa og Ársæll ætla ekki að-
eins að bjóða upp á kvikmynda-
sýningar á hátíðinni heldur vilja
þau einnig verða með öðruvísi
viðburði. „Frostbiter snýst að
langmestu leyti um kvikmyndirn-
ar en við reynum að brjóta upp
dagskrána. Við stefnum að því
að halda smá teiti degi áður en
formleg setning hátíðarinnar fer
fram. Við munum einnig bjóða
upp á frekar óvenjulegt námskeið
á meðan hátíðinni stendur. Marg-
ir muna eftir kvikmyndinni Dead
Snow sem naut töluverða vinsælda
hérlendis fyrir nokkrum árum.
Í myndinni var verið að berja á
nasista-uppvakningum. Hingað
til lands munu nokkrir aðstand-
enda myndarinnar koma og miðla
reynslu sinni til hátíðargesta;
hvernig best sé að búa til gott upp-
vakningaatriði. Farið verður yfir
gervin og hvernig uppvakning-
ar haga sér og hvernig best sé að
berja á þeim. Það verður því nokk-
urs konar uppvakinga „workshop“
þar sem farið verður yfir þetta allt
saman. Ef allt gengur eftir munu
þau mögulega skjóta flott upp-
vakningaatriði með hátíðargest-
um. Þetta gæti orðið mjög áhuga-
vert,“ segir Ársæll.
Vantaði vettvang fyrir
hryllingsmyndir
Ársæll og Lovísa eru bæði útskrif-
uð úr Kvikmyndaskóla Íslands
og hafa búið til stuttmyndir bæði
innan skólans og utan; oftar en
ekki hafa þau unnið að hryllings-
myndum. Lovísa segir að skort-
ur á tækifærum til þess að koma
hryllingsmyndum á framfæri hér á
landi hafi verið kveikjan að hátíð-
inni. „Ég hef gert þrjár hryllings-
stuttmyndir og rak mig á það þeg-
ar ég var að reyna að koma þeim
á framfæri að það var í raun ekki
vettvangur til þess hérna heima.
Ég fór síðan með eina stuttmynd-
ina erlendis og kynntist þar svo-
lítið því sem vantaði hér heima. Í
stað þess að bíða og vona að einn
daginn myndi verða til vettvangur
til að kynna hryllingsmyndir á Ís-
landi fórum við Ársæll bara í það
að búa þennan vettvang til,“ seg-
ir Lovísa. „Það er líka mjög lít-
ið gert af hryllingsmyndum á Ís-
landi og hefur verið í gegnum tíð-
ina. Við vonum líka að þessi há-
tíð verði svolítill innblástur fyrir
þá sem vilja eða eru að gera hryll-
ingsmyndir á Íslandi. Við vilj-
um fá fjölbreyttari flóru af slíkum
myndum hér á landi. Hryllings-
myndir geta verið alls konar; þetta
geta verið draugamyndir, splatter
eða sálfræðitryllar. Það er margt í
boði en Íslendingar hafa gert lítið
af slíkum myndum sem er í raun
skrítið þar sem það er mikið af
hryllingssögum í menningararfi
okkar Íslendinga, menn hafa ver-
ið að segja hryllingssögur hér alla
tíð,“ segir Lovísa.
Draugalegt Bíóhús
Hátíðin mun öll fara fram á Akra-
nesi og að langmestum hluta í
Bíóhöllinni á Akranesi. Það eru þó
hugmyndir uppi um að dreifa há-
tíðinni á tvo til þrjá staði á Akra-
nesi til viðbótar þar sem hátíðin
er orðin aðeins stærri en upphaf-
lega stóð til. „Það stóð alltaf til að
halda hátíðina á Akranesi. Þetta er
heimabærinn minn og ég ákvað að
taka hér upp lokaverkefnið mitt í
Kvikmyndaskólanum. Sú hjálp og
aðstoð sem ég fékk við gerð þeirr-
ar myndar var alveg ómetanleg.
Það var rosalega gaman að finna
fyrir því hvað bæjarbúar voru til-
búnir að aðstoða. Sú upplifun
hjálpaði til við að velja stað á há-
tíðina. Síðan erum við bæði bara
svo heilluð af þessum bæ. Það er
margt við hann; fjallið, vitarnir og
Bíóhöllin sjálf. Bíóhöllin er alveg
sniðin að þessari hátíð, tignarleg
bygging sem stendur við sjóinn,
hún er pínu draugaleg. Ég held
að Bíóhöllin hjálpi til við að skapa
drungalega stemningu í skamm-
deginu í nóvember,“ segir Ársæll.
Vona að hátíðin
verði árleg
Ársæll og Lovísa hafa lagt hart að
sér að koma hátíðinni á fót en þau
vona að sú vinni skili sér að lok-
um. „Þetta hefur verið mjög mik-
il vinna og hark. Við erum bæði
að vinna við annað svo allur okk-
ar frítími fer í þetta þessa stund-
ina og lítið sofið. Við höfum verið
að fá einhverja styrki sem er mjög
jákvætt en við erum sjálf að setja
pening í þetta verkefni svo það
gangi upp. Eins og staðan er núna
þá vitum við ekkert hvað munu
margir sækja hátíðina. Við vonum
að við fáum góðar viðtökur því við
stefnum að því að þetta verði ár-
leg hátíð á Akranesi. Við höfum
mikinn metnað fyrir þessu verk-
efni. Það eru margar hugmynd-
ir sem við höfum varðandi hátíð-
ina, sumar stórar en við ætlum að
byrja og sjá hvernig þessi fyrsta
hátíð mun ganga áður við förum
að láta okkur dreyma um eitthvað
stærra. Við vonumst til þess að sjá
sem flesta Vestlendinga á Frostbi-
ter,“ segir Lovísa að endingu.
bþb
Hryllingsmyndahátíð á Akranesi í nóvember
Þau Ársæll Rafn Erlingsson og Lovísa Lára Halldórsdóttir sjá um hátíðina Frostbiter. Þau eru bæði útskrifuð úr Kvikmynda-
skóla Íslands; Ársæll af leiklistarbraut en Lovísa af handrita- og leikstjórnarbraut. Hér sést Ársæll í hlutverki í mynd sem sýnd
verður á hátíðinni.
Frostbiter hátíðin verður haldin í fyrsta
skiptið helgina 25.-27. nóvember.
Skagamaðurinn Knútur Haukstein Ólafsson er einn af þeim sem mun sýna stuttmynd á hátíðinni. Hér sést svokölluð stilla úr
stuttmyndinni hans Inferno.