Skessuhorn - 26.10.2016, Side 33
MIÐVIKUDAGUR 26. OKTÓBER 2016 33
Skeifunni 8 • 108 Reykjavík • Sími: 517 6460 • www.belladonna.is
Verslunin BelladonnaStærðir 38-58
Nýjar vörur í hverri viku
Ég fékk það skemmtilega verk-
efni á dögunum að heimsækja tvo
framhaldsskóla sem fulltrúi Fram-
sóknarflokksins vegna svokallaðra
skuggakosninga sem haldnar voru í
öllum menntaskólum landsins þann
13. október sl. Ég mætti í FSN
í Grundarfirði og Menntaskóla
Borgarfjarðar ásamt fulltrúum ann-
arra framboða. Ég lét í ljós ánægju
mína með það að þessar kosningar
skyldu haldnar, hvatti unga fólkið
til að láta sig stjórnmál varða, þar
ættu ekki að vera aldurstakmörk
að mínu mati og þau skyldu hafa
skoðanir eftir sínu höfði og láta
þær í ljós samkvæmt því. Og það
kom á daginn í þessum heimsókn-
um mínum, unga fólkið hefur sínar
skoðanir líkt og aðrir aldurshópar.
Það var gaman að fást við þær
spurningar sem á borð voru bornar,
t.d. hvað finnst frambjóðendum um
afglæpavæðingu á neysluskömmt-
um fíkniefna, hvað um skatt á ferð-
þjónustu, aðstoð við flóttafólk og
hvað með búvörusamningana?
Það var gaman að heyra hvað brann
á unga fólkinu og hvar þekking þess
liggur. Svo kom stóra spurningin,
er hægt að treysta kosningaloforð-
um frambjóðenda?
Mér vafðist
tunga um tönn,
sagðist ekki getað lofað því, enda
væri ég ekki mikið fyrir að gefa
út loforðalista, samt sem áður
myndi ég lofa að gera mitt besta.
Í stjórnmálum geta ekki allir orð-
ið sammála, allt of margir, þar á
meðal ég (stundum) skella hurð-
um ef einhver er ekki sammála. Ég
hef þó reynt að temja mér það að
virða skoðanir annarra. Við verðum
að treysta okkur til að eiga samtal
við einstaklinga þó þeir geti ver-
ið eða hafi verið okkur ósammála.
Ég var spurður af hverju ég væri
Framsóknarmaður. Það var spurn-
ing sem vafðist ekki fyrir mér.
Framsóknarflokkurinn er hógvær
miðjuflokkur, félagshyggjuflokk-
ur sem hefur samvinnuhugsjón að
leiðarljósi, þess vegna hef ég kosið
Framsóknarflokkinn í fjörtíu ár og
kýs núna að bjóða mig fram fyrir
hann og Norðvesturkjördæmi.
Sigurður Páll Jónsson,
Stykkishólmi.
Höf. er þriðji maður á
lista Framsóknarflokksins í
Norðvesturkjördæmi.
Pólitíkin með augum
unga fólksins
Pennagrein
Pennagrein
Pennagrein
Áherslur Dögunar í heilbrigðismál-
um taka mið af hagsmunum sjúk-
linga, heilbrigðisstarfsfólks og skatt-
greiðenda. Dögun tekur undir orð
landlæknis um að heilbrigðiskerfið
sé enn á rangri leið. Í stað þess að
efla heilbrigðisstofnanir og sjúkra-
hús fer hlutastörfum sérfræðinga
fjölgandi sem veldur því að flæði
sjúklinga á sjúkrahúsum verður
hægara sem stefnir öryggi sjúklinga
í hættu. Sérstaklega veldur ástandið
fólki með langvinna sjúkdóma erf-
iðleikum, fólki sem þarf um langan
veg að fara, til margra sérfræðinga
í borginni. Jafnan er ferðastyrkur-
inn sem Sjúkratryggingar fljótlega
uppurinn þar sem ekki er óalgengt
að það þurfi að fara í sérferðir til að
hitta sérfræðinga, aðra í myndatök-
ur og í framhaldinu ferð í aðgerð.
Dögun vill eins og fyrr greinir efla
dag- og göngudeildarstarfsemi spít-
ala svo að hægt sé að auka aðgengi
sjúklinga og veita þeim nútímalega
heildræna meðferð.
Dögun stefnir á gjaldfrjálst heil-
brigðiskerfi sem rekið er af hinu
opinbera. Snúa verður frá þeirri
stefnu einkavæðingar núverandi
heilbrigðisráðherra sem hefur kom-
ið á fót einkarekinni heilsugæslum
sem taka til sín arð. Áframhaldandi
hnignun opinbera kerfisins og upp-
bygging einkareksturs mun óðfluga
leiða til kostnaðarauka og mismun-
unar þegnanna.
Sigurjón Þórðarson
Höf. skipar 1. sæti á lista Dögunar
í NV kjördæmi fyrir alþingiskosning-
arnar.
X-T fyrir bætt
heilbrigðiskerfi
Síðastliðið vor sat ég full af kvíða,
söknuði og gremju og skrifaði pist-
il um hversu heppin ég væri. Auð-
vitað snerist pistillinn ekki bara
um heppni mína, heldur snerist
hann um það hvernig aðstæður
eru hjá fólki sem býr úti á landi og
þarf að ferðast langar leiðir til að
eignast börn. Ef ég tek sjálfa mig
sem dæmi þá er ég heppin að eiga
systkini í Reykjavík sem geta lán-
að mér herbergi og veitt mér húsa-
skjól. Það eru ekki allir svo heppn-
ir. Reykjavík er í u.þ.b. 5 klst akst-
ursfjarlægð frá Patreksfirði og þarf
ólétt kona samkvæmt læknisráði
að vera komin nálægt fæðinga-
deild a.m.k. tveimur vikum fyrir
settan dag. Í bæði skiptin sem ég
hef fætt barn hef ég þurft að vera
fjarri heimili mínu í rúmar fjórar
vikur en unnusti minn var hjá mér
í rúmar tvær vikur í hvort skiptið.
Hann gat ekki verið með mér allan
tímann þar sem réttur til fæðing-
arorlofs hefst ekki fyrr en í þeim
mánuði sem barn á að fæðast. Við
ákváðum að raska ekki rútínu tæp-
lega 2ja ára dóttur okkar með því
að flytja hana með okkur, held-
ur varð hún eftir heima í umsjá
tengdamóður og foreldra minna
sem búa öll í sama þorpi og við,
sem betur fer.
Það eru ekki allir jafn heppnir
og við að vera í þeim aðstæðum.
Fyrir utan röskun á heimilislífi þá
þarf að halda úti tveimur heimilum
og í flestum tilfellum getur hvor-
ugur aðili stundað vinnu á meðan
beðið er. Eini kostnaðurinn sem er
greiddur á meðan þessu stendur er
ferðakostnaður frá heimili að fæð-
ingadeild og til baka. Ástæðan sem
okkur er gefin er sú að við veljum
sjálf að búa á stað fjarri fæðinga-
deild og því er þetta á okkar kostn-
að. Er þetta jafnræði íbúa þessa
lands?
Í ályktun sem samþykkt var á ný-
afstöðnu flokksþingi Framsóknar-
flokksins kemur fram tillaga um að
foreldrar sem þurfi að dvelja fjarri
heimili sínu vegna fæðingar barns
fái styrk úr fæðingarorlofssjóði svo
að fæðingarorlof sé hægt að nýta
að fullu eftir fæðingu barns. Að
mínu mati er þetta engin spurn-
ing það er ekki sanngjarnt að hafa
þessar aðstæður árið 2016.
Lilja Sigurðardóttir.
Höf. er í 4. sæti á lista Framsókn-
arflokksins í Norðvesturkjördæmi.
Einnig starfar hún sem gæðastjóri
hjá Arnarlaxi hf á Bíldudal.
Hversu heppin er ég?
Pennagrein
Nýlega afhentu Rafiðnaðarsam-
band Íslands og SART, félag raf-
verktaka, öllum nemum á landinu
í rafiðnaði spjaldtölvur til eignar.
Tilgangurinn með gjöfinni er að
nemar í rafiðnaði geti nýtt sér allt
það kennsluefni sem til er í rafiðn-
aði á netinu, þ.m.t. rafbok.is sem
er með kennsluefni fyrir námið, og
í leiðinni sparast kostnaður fyrir
nemendur.
Til að efla iðnmenntun í landinu
þarf meira að koma til og geta önn-
ur fagfélög tekið sér til fyrirmyndar
þetta framlag frá rafiðnaðarmönn-
um. Jafnframt þarf hið opinbera að
setja meira fjármagn í iðnmenntun
og gera þarf fleiri skólum kleift að
taka nemendur inn í skólana. Hið
opinbera og skólarnir sjálfir mættu
setja sér lægri mörk varðandi hve
marga nemendur þarf til að hægt
sé að setja á verknámsbrautir inn-
an skólanna.
Á Íslandi hefur verið mik-
ill skortur á iðnaðarmönnum um
langt árabil. Það er dýrara að vera
með verknámsbrautir frekar en
bara bóknámsbrautir en á sama
tíma er gríðarlega mikilvægt að
ungu fólki sé gefinn kostur á fjöl-
breyttu námsúrvali innan skóla-
samfélagsins. Slíkur valkostur gef-
ur möguleika á að nemendur velji
sér ólíkar framabrautir innan skól-
ans.
Gerum verknám því meira að-
laðandi fyrir ungt fólk með hærri
launum og fleiri skólum á fram-
haldsskólastigi sem bjóða upp á
verknámsbrautir, þar sem samhliða
er hægt að ljúka stúdentsprófi. Með
því að velja þessa braut er lagð-
ur grunnur að því að gera iðnnám
eftirsóknarverðara á Íslandi sem er
hagsmunamál okkar allra.
Guðjón Viðar Guðjónsson
Höfundur er í 8. sæti á lista Sam-
fylkingarinnar í Norðvesturkjör-
dæmi.
Gerum iðnnám eftirsóknarvert
Pennagrein
Mér datt í hug um daginn þeg-
ar ég var að hugsa um kvótakerf-
ið, ef ákveðið væri að minnka yf-
irbygginguna í fjarskiptageiran-
um og takmarka fjölda fjarskipta-
verkfræðinga. Það væri búin til
regla: Þeir sem hefðu verið fjar-
skiptaverkfræðingar síðustu þrjú
árin fengju að vera það áfram, en
það ætti ekki að fjölga í stéttinni.
Það væri orðið of dýrt fyrir neyt-
endur að halda uppi öllum þess-
um tæknimönnum. Ég er ekki að
halda því fram að þetta sé gáfulegt,
en segjum bara að þetta yrði gert.
Svo væri líka hægt að leigja rétt-
inn frá sér. Þá væri ég nú aldeilis í
fínni stöðu. Ég gæti hætt að vinna
og selt réttinn til hans Stefáns sem
vinnur með mér, eða hennar Ólaf-
íu. Þau eru nýbyrjuð og hefðu lít-
inn rétt. Svo gæti ég bara slappað
af og látið þau vinna fyrir mig.
Öfundarraddir
Ég er reyndar hræddur um að fljót-
lega færi fólk að tala um óréttlæti.
Vilja láta mig borga fyrir þessi rétt-
indi og þætti helst eðlilegt að ég,
Stefán og Ólafía borguðum öll jafnt.
En segjum nú að ég stofnaði stjórn-
málaflokk, sem hefði m.a. það að
markmiði að viðhalda þessu kerfi.
Og segjum nú líka að fólk myndi
kjósa þennan flokk. Jafnvel að þetta
væri stærsti stjórnmálaflokkurinn í
landinu. Hvað væri þá hægt að segja
um þessa þjóð? Myndu ekki aðrar
þjóðir hrista hausinn yfir þessum fá-
vitum?
Fiskveiðistjórnunar-
kerfið
En svona er fiskveiðistjórnunarkerf-
ið á Íslandi. Við eigum svona stjórn-
málaflokk. Hann heitir Sjálfstæð-
isflokkurinn. Ég hvet nú þau 22%
sem eru eftir af Sjálfstæðismönn-
um að vakna. Spáið í hvað þetta er
vitlaust. Kjósið bara einhvern ann-
an. Það vill enginn kommúnisma, ja
kannse Alþýðufylkingin, en enginn
af stóru stjórnmálaflokkunum (þeim
sem mælast yfir 5%). Gerum nú
einu sinni eitthvað í þessu máli. Ég
veit vel að Stefán og Ólafía geta séð
um fjarskiptamálin alveg eins og ég,
þó ég hafi staðið mig alveg ágætlega.
Á sama hátt munu byggðir lands-
ins EKKI leggjast af þó einhverjir
í útgerðaraðlinum núverandi hætti.
Við þurfum að velja réttlæti í næstu
kosningum. Það er líka svo hagstætt
fyrir okkar sameiginlegu sjóði.
Kveðja, Reynir Eyvindsson,
Akranesi.
Höf. er á lista VG í Norðvestur-
kjördæmi.
„Minni yfirbyggingu í
fjarskiptabransanum“
KOSNINGAR2016