Skessuhorn - 26.10.2016, Qupperneq 36
MIÐVIKUDAGUR 26. OKTÓBER 201636
Vörur og þjónusta
Hönnun prentgripa
& alhliða prentþjónusta
Drei bréf - Boðsbréf
Ritgerðir - Skýrslur
Reikningar - Eyðublöð
Umslög - Bréfsefni
Fjölritunar- og
útgáfuþjónustan
Getum við
aðstoðað þig?
sími: 437 2360
olgeirhelgi@islandia.is
R E S T A U R A N T
Upplýsingar í síma: 430 6767
R E S T A U R A N T
Upplýsingar í síma: 430 6767
LAUSNIN HÖFÐASELI
Opnunartími er frá kl. 8:00-16:00
alla virka daga
Daglegar ferðir milli Reykjavíkur og Borgarness
Tvær ferðir í viku í sveitir Borgarfjarðar
Skrifstofan er opin mánudaga – föstudaga
kl. 9.00 – 12.00 og 13.00 – 15.30
Sími 437-2030 - v.v@simnet.is
DAGLEGAR FERÐIR BORGARNES - REYKJAVÍK
Fréttaveita Vesturlands
www.skessuhorn.is
www.skessuhorn.is
Þjónustuauglýsingar
Skessuhorns
Auglýsingasími:
433 5500
Pennagrein
Pennagrein
Pennagrein
Jafnaðarmenn hafa sett sér tak-
mark um að bæta heilbrigðis-
þjónustu á komandi kjörtímabili,
m.a. með auknu forvarnarstarfi
og styttingu biðlista niður í 3 – 6
mánuði að jafnaði.
Ekki sé nægilegt að bæta inn
stórfelldum fjármunum í kerf-
ið, nauðsynlegt sé að endurskoða
skipulag allrar heilbrigðisþjón-
ustu, á hvaða stigum hún er veitt
og hlutverk hinna einstöku stofn-
ana, bæði hvað varðar heilsugæslu
og sjúkrahúsþjónustu. Mikilvægt
atriði í þessu sambandi er að hlut-
verk Landspítala verði skilgreint
og að heilbrigðisstofnanir utan
Reykjavíkur fái aukið hlutverk og
verði betur nýttar. Með því megi
ná betri árangri, hagkvæmni og
sátt meðal íbúanna.
Settir hafa verið að undanförnu
peningar í átak til styttingar biðl-
ista í nokkrum aðgerðaflokkum.
Meðal þeirra eru liðskiptaaðgerðir
en líklega bíða nú nær 1200 manns
eftir liðsinni á þessu sviði en bið
eftir aðgerð hefur verið u.þ.b. eitt
ár að jafnaði. Þessar aðgerðir eru
framkvæmdar á þremur sjúkrahús-
um í landinu; Akranesi, Akureyri
og á Landspítala.
Framkvæmd átaksins gengur
eftir atvikum vel miðað við þær
forsendur sem gefnar hafa verið.
Fjölgun aðgerða á Akranesi nema
um 80 á þessu ári og verða því í
heild um 180 sem er hvergi nærri
nóg. Engar ákvarðanir hafa verið
teknar um framhaldið.
Þótt þessi aukning stytti senni-
lega tímabundið biðlista í kerf-
inu, þá dugir þetta skammt. Gert
er ráð fyrir að hægt verði að halda
í horfinu þetta ár og hugsanlega
fram á það næsta en síðan muni
að óbreyttu allt fara í sama horf og
áður, biðlistar lengist. Þetta kemur
m.a. fram í mati sex nema við við-
skiptadeild Háskólans í Reykjavík
í nýlegri meistararitgerð.
Þar kemur fram að ekki tak-
ist að koma á sæmilegu jafnvægi í
þessari þjónustu með tímabundnu
átaki sem þessu. Auka verði afköst
í kerfinu til einhverrar framtíðar.
Liðskiptaaðgerðir eru ekki flokk-
aðar sem bráðaaðgerður, heldur
sem valaðgerðir sem skipulagðar
eru fyrirfram. Fagfólk er sammála
um að það fari miður vel á því að
gera aðgerðir sem þessar í bland
við bráðaaðgerðir eins og Land-
spítala og að hluta til á Sjúkrahús-
inu á Akureyri þar sem oft þarf að
aflýsa eða færa til aðgerðir vegna
óvæntra atvika, slysa eða bráða-
tilvika. Þetta veldur sjúklingum
óþægindum eins og margir hafa
upplifað og er kostnaðarsamt í
heildina.
Á Akranesi er starfseminni að
mörgu leyti háttað öðruvísi. Valað-
gerðir af ýmsu tagi eru stærri þátt-
ur. Þar er sterkur vilji til að koma
á fót sérstakri liðskiptadeild með
lágmarks tilkostnaði. Heil legu-
deild stendur nú tóm og þarfnast
ekki endurbóta svo nokkru nemi.
Með skipulags- og áherslubreyt-
ingum er hægt að fjölga aðgerð-
um á þessu sviði og gera árlega
a.m.k. 300 aðgerðir með minni-
háttar innviðabreytingum og 600
- 800 liðskiptaaðgerðir með auk-
inni sérhæfingu og faglegum um-
svifum. Að þessu þurfum við að
vinna ötullega.
Fái ég til þess stuðning í kom-
andi kosningum mun ég beita mér
í þessu brýna verkefni. Kjósum
heilbrigðara og réttlátara samfé-
lag fyrir alla.
Guðjón S. Brjánsson.
Höf. skipar 1. sæti á lista Sam-
fylkingar í NV kjördæmi.
E-deild verði
L-deild
Skoðanakannanir benda til að þjóð-
arinnar bíði vinstri stjórn á næstu vik-
um, en nú eru þrjú og hálft ár síðan
síðasta vinstri stjórn var afþökkuð af
kjósendum og sagt var að hún hefði
í þeim kosningum fengið versta af-
hroð sem nokkur ríkisstjórn á Vest-
urlöndum hefur fengið frá stríðslok-
um. Ferill þeirrar ríkisstjórnar var
hörmulegur, m.a. 100 skattahækk-
anir, niðurskurður til heilbrigðis-
mála m.a. með fækkun starfsmanna á
Landspítalanum um nokkur hundruð
á sama tíma og fjölgað var í utanrík-
isþjónustunni, árásir á stjórnarskrána
og algjör stöðnun í orkumálum sem
hefur þær afleiðingar að Silicor fær
ekki raforku til umhverfisvænnar sól-
arkísilverksmiðju á Grundartanga
sem skapa myndi á fimmta hundruð
störf á Vesturlandi. Ekki má heldur
gleyma ofuráherslu á að þjóðin tæki
á sig hundruð milljarða byrðar vegna
Icesave og ofurkapp á að troða okkur
inn í ESB.
Svona mætti lengi telja. Einnig má
minna á endalausar uppákomur milli
stjórnarflokkanna og innan þeirra,
t.d. hrökkluðust nokkrir þingmenn
Vinstri grænna úr flokknum og fengu
nafnbótina villikettir því þeir létu ekki
nógu vel að stjórn. Sú saga er komin
út í bók eftir Jón Torfason og er hún
fróðleg lesning sem fólk ætti að lesa
áður en það gengur til kosninga.
Nú hafa Vinstri grænir, Samfylk-
ingin, Píratar og Björt framtíð haf-
ið viðræður um stjórn á næsta kjör-
tímabili. Þetta eru nákvæmlega sömu
flokkarnir og nú stjórna Reykjavíkur-
borg og hefur tekist á örfáum árum
að koma borginni á kaldan klakann
fjárhagslega, sem er með ólíkindum
því borgin hafði fjárhagslega yfir-
burði yfir önnur sveitarfélög áður
en þessir flokkar tóku við stjórninni.
Það er með ólíkindum ef þjóðin ætlar
að fela þessum sömu flokkum stjórn
þjóðarskútunnar.
Ríkisstjórnin sem nú er að ljúka
störfum skilar góðu búi. Ríkissjóður
hefur verið rekinn með afgangi öll ár
kiörtímabilsins, skuldir ríkisins hafa
lækkað um hundruð milljarða sem
leiðir til lækkunar vaxtagjalda um tugi
milljarða á ári,
kaupmáttur eykst
jafnt og þétt, at-
vinnuleysi er í
lágmarki og verð-
bólga nánast engin. Það er hrollvekj-
andi ef sömu flokkar og hafa komið
Reykjavík á kaldan klakann eiga nú að
taka við góðri stöðu þjóðarsbúsins.
Ég hvet Vestlendinga til að kjósa
öflugan lista Sjálfstæðisflokksins í
kosningunum á laugardag. Haraldur
Benediktsson leiðir listann, en hann
hefur getið sér gott orð sem traust-
ur og vinnusamur þingmaður á kjör-
tímabilinu sem er að ljúka. Hann hef-
ur setið í tveimur af þýðingarmestu
nefndum þingsins; fjárlaganefnd og
atvinnumálanefnd auk þess sem hann
hefur stýrt starfshópi um uppbygg-
ingu ljósleiðaravæðingar í hinum
dreifðu byggðum landsins og fengið
mikið lof fyrir það starf.
Guðjón Guðmundsson.
Höfundur er fyrrverandi
alþingismaður.
Örfá orð um komandi kosningar
Í kosningum á laugardaginn eru val-
kostir skýrir. Valið er um hvort við
viljum halda áfram á réttri leið. Réttri
leið aukins kaupmáttar, lægri skatta,
meiri atvinnu og stöðugleika í um-
hverfi okkar.
Hin leiðin er óvissuferð, þar sem
enn er boðin fram ESB aðild að
bandalagi sem er að liðast í sund-
ur. Enn og aftur ætlar VG að svíkja
stefnu sína um andstöðu við ESB að-
ild. Það hefur hún núna gert í for-
dæmalausum stjórnarmyndunarvið-
ræðum, sem hafa verið sviðsettar.
Alvarlegast er þó sú óvissa og
óstöðugleiki sem fylgir vinstri óreið-
unni. Það er ömurlegt að vita til þess
að taka okkar bestu atvinnugrein,
sjávarútveg, og ógna tilveru hans og
þeirra byggðarlaga sem hann starfar í.
Uppboðsleið aflaheimilda er ógn við
starfsöryggi sjómanna, er vís leið til
að veikja lítil og meðalstór fyrirtæki í
útgerð. Á móti er sagt að fjármunir
eigi að renna aftur til byggðanna eft-
ir ákvörðun þeirra sem sitja við völd.
Það er nauðsynlegt að hafna slíku til-
ræði.
Um aðra atvinnuvegi er líka fjallað
af léttúð. Landbúnaður þarf kerfis-
breytingu. Enginn er samt spurður
um hvað það þýðir. Iðnaður og allt
atvinnulífið er núna farið að líða fyrir
skort á rafmagni. Núverandi stjórn-
arandstöðu tókst að stöðva frekari
virkjanaframkvæmdir.
Við höfum hafið eindurreisn heil-
brigðisþjónustunnar. Í tíð síðustu
ríkistjórnar fækk-
aði starfsmönn-
um í heilbrigðis-
þjónustu um 7%
en meðaltalsfækk-
un ríkisstarfsmanna var á sínum tíma
4%. Það eru áherslur þeirra sem þá
sátu að völdum og reyna nú að taka
aftur yfir. Af þeirri leið hefur verið
snúið og gott betur.
Valkostirnir eru því einfaldir á
laugardaginn. Ég heiti stuðningi við
ábyrga og uppbyggjandi stjórnar-
stefnu. Veljum réttu leiðina áfram.
Haraldur Benediktsson.
Höf. er oddviti Sjálfstæðisflokksins í
Norðvesturkjördæmi.
Einfalt val á laugardag
KOSNIN
GAR
2016