Skessuhorn - 26.10.2016, Blaðsíða 38
MIÐVIKUDAGUR 26. OKTÓBER 201638
Kveikirðu á kertum í
skammdeginu?
Spurning
vikunnar
(Spurt á Akranesi)
Sveinborg Kristjánsdóttir:
Já, ég kveiki á kertum í skamm-
deginu. Það er svo fallegt og
notalegt.
Inga Þóra Lárusdóttir:
Já, það er svo kósí.
Sjöfn Magnúsdóttir:
Alltaf, því það er svo notalegt.
Haustið er uppáhaldstíminn
minn.
Kristín Helga Ragnarsdóttir:
Já, það lýsir upp skammdegið.
Eyrún Jónsdóttir:
Já, af því ég ólst upp við að það
sé kveikt á kertum. Ég er líka al-
gjört jólabarn.
Síðastliðinn föstudag var dregið í
bikarkeppni Körfuknattleikssam-
bands Íslands, auk þess sem sam-
bandið kynnti nýjan samstarfsaðila,
Ölgerðina. Mun bikarkeppni KKÍ
bera nafnið Maltbikarinn næstu þrjú
árin.
Dregið var í 32-liða úrslitum karla,
þar sem 31 lið er skráð til leiks. Því
var dregið í 15 viðureignir en eitt lið
situr hjá og fer beint í næstu umferð.
Í 16-liða úrslitum kvenna eru tólf
lið skráð til leiks. Dregið var í fjórar
viðureignir og fjögur lið sitja hjá og
fara beint í átta liða úrslit.
Sex körfuknattleikslið af Vestur-
landi eru skráð til leiks í bikarkeppn-
ina að þessu sinni. Snæfell, ríkjandi
bikarmeistarar kvenna, tekur á móti
Val en Skallagrímur situr hjá og fer
beint í átta liða úrslit.
Í bikarkeppni karla taka Grund-
firðingar á móti Fsu, ÍA fær Fjölni
í heimsókn, Snæfell heimsækir Val
og Skallagrímsmenn sækja Breiða-
blik heim.
Allir leikirnir í 32-liða úrslitum
karla og 16-liða úrslitum kvenna
fara fram dagana 5.-7. nóvember
næstkomandi. kgk
Dregið í bikar-
keppni KKÍ
Kristófer James Eggertsson, ungur
Snæfellsbæingur, hefur undanfar-
in tvö ár stundað nám við Maltby
Academy í Suður-Englandi. Þar
hefur hann lagt stund á íþróttafræði
ásamt því að æfa og spila knatt-
spyrnu með Sheffield FC. Hann
útskrifaðist úr náminu nú í sumar
og kom heim til Íslands. Í sumar
æfði hann svo með meistaraflokki
Víkings Ólafsvíkur. Maltby Aca-
demy hélt svo uppskeruhátíð sína á
dögunum. Þar fékk Kristófer James
viðurkenningu fyrir framúrskarandi
árangur yfir allan skólann ásamt því
að vera valinn leikmaður ársins í
sínum flokki. Eru þetta meðal virð-
ingarmeiri verðlauna sem skólinn
veitir á hverju ári.
Kristófer James stefnir á háskóla-
nám í Bandaríkjunum og byrjar
nám í Barton community college í
janúar næstkomandi. Þar mun hann
æfa og spila fótbolta með Barton
Cougars en hann hefur fengið styrk
út á fótboltann til að stunda nám og
fótbolta.
þa
Snæfellsbæingur
gerir það gott í
fótboltanum
Nemendur Grunnskólans í Borg-
arnesi hlupu Norræna skólahlaup-
ið mánudaginn 17. október sl. Nor-
ræna skólahlaupið fór fyrst fram á Ís-
landi árið 1984, en allir grunnskólar
á Norðurlöndunum geta tekið þátt í
hlaupinu á hverju hausti. Með Nor-
ræna skólahlaupinu er leitast við
að hvetja nemendur til þess að æfa
hlaup og auka með því útiveru og
hreyfingu og að skýra nauðsyn þess
að hreyfa sig og stuðla þannig að
betri heilsu.
Flestir nemendur hlupu 2,5 km
og fengu mjólk að drekka að hlaupi
loknu. Lukkudýr körfuknattleiks-
deildarinn kom í heimsókn og tók
smá upphitun með krökkunum áður
en þau lögðu af stað í hlaupið og tók
á móti þeim að hlaupi loknu.
sös
Krakkar í Borgarnesi hlupu Norræna skólahlaupið
Fyrr á þessu ári ákvað KSÍ að út-
deila 453 milljónum króna í svo-
kallað EM-framlag til knattspyrnu-
félaga hér á landi. ÍA og Víkingur
Ólafsvík fengu langhæsta framlag-
ið af liðunum á Vesturlandi; ÍA 17
milljónir og Víkingur Ólafsvík 14,3
milljónir. Skessuhorn greindi frá
því í ágúst að ÍA hefði tekið ákvörð-
un um að nota peninginn í uppeld-
isstarf félagsins.
Víkingur Ólafsvík hefur nú tek-
ið ákvörðun hvernig félagið hyggst
nýta sinn pening. Í svari Jónas-
ar Gests Jónassonar við fyrirspurn
Skessuhorns kemur fram að Vík-
ingur ætlar sér að nota peninginn
í að efla starf félagsins enn frekar.
„Meistaraflokkur karla náði sínum
besta árangri í sumar, varð í 10.
sæti í Pepsí deildinni og meistara-
flokkur kvenna náði einnig sínum
besta árangri og vann sér rétt til að
spila í hinni nýju 1. deild á næsta
ári. Yngri flokka starfið hefur geng-
ið vel og reynt er að halda úti starfi
í öllum flokkum svo allir iðkend-
ur hafi verkefni. Núna eru um 140
iðkendur að æfa knattspyrnu í yngri
flokkum en þess má geta að um 250
krakkar eru í Grunnskóla Snæfells-
bæjar en yngri flokkar keppa í sam-
eiginlegu liði Snæfellsness. Mikið
samstarf er á milli meistaraflokka
og yngri flokka og þess má geta að
sex leikmenn meistaraflokkanna
voru aðstoðarþjálfarar hjá yngri
flokkum á þessu ári,“ segir í Jónas
Gestur.
bþb
Víkingur Ó. ætlar að nota
EM-framlagið í að efla starfið frekar
Svipmynd úr viðureign Vesturlandsliðanna í Pepsídeildinni í sumar. Hér er Einar
Hjörleifsson að verja vítaspyrnu Garðars Gunnlaugsonar úr ÍA.
Á dögunum var frumsýnd í Moskvu
óperan „Skáldið og biskupsdótt-
irin“. Tónlistin er Alexöndru
Chernyshovu og handritið eftir
Guðrúnu Ásmundsdóttir leikkonu.
Fyrstu tónleikar voru í Gogol-safn-
inu, og aðrir tónleikar voru í hinni
virtu tónlistarakademíu Gnessin
í Moskvu. Flytjendur frá Íslandi
voru: Alexandra Chernyshova
sópran, Jónína Erna Arnardóttir
píanó, og Guðrún Ásmundsdótt-
ir leikkona. Ásamt íslenskum tón-
listarmönnum komu fram óperu-
söngvarar frá Moskvu, þeir Ser-
gey Telenkov bass-barítón, Arte-
miy Mezikov tenór, Lubov Molina
kontraalt, Valeria Zelenskaja sópr-
an og Valeria Petrova píanó.
„Það var hátíðleg stund í Gogol-
safninu 14. október síðastliðinn er
Alexandra Chernyskhova kynnti
óperu sína „Skáldið og biskups-
dóttirin“ fyrir fullum sal,“ segir frú
Berglind Ásgeirsdóttir, sendiherra
Íslands í Moskvu. Guðrún Ás-
mundsdóttir, leikkona og handrits-
höfundur, fór yfir samstarf þeirra
Alexöndru og móðir tónskálds-
ins skýrði söguþráð verksins fyrir
rússneskum áhorfendum. „Það var
stórkostlegt að hlusta á rússnesku
söngvarana syngja ótrúlega vel ís-
lenskan texta um samband Hall-
gríms Péturssonar og Ragnheiðar
biskupsdóttur. Fyrir utan fallegan
söng þá var sviðsframkoma Alex-
öndru einstaklega heillandi. Hún
er gott dæmi um þann mannauð
sem innflytjendur geta fært land-
inu. Eftir 13 ár á Íslandi hefur
hún afrekað ótrúlega mikið,“ segir
Berglind.
kgk
Óperan Skáldið og biskupsdóttirin
frumsýnd í Moskvu
Að lokinni vel heppnaðri frumsýningu.