Skessuhorn - 26.10.2016, Blaðsíða 39
MIÐVIKUDAGUR 26. OKTÓBER 2016 39
Klettagörðum 15 | 525 7700 | flytjandi.is
DAGLEGA Á FERÐINNI MEÐ
VÖRUR UM ALLT LAND
Eimskip Flytjandi veitir samræmda flutningaþjónustu
um land allt og eru áfangastaðirnir 80 talsins.
Skallagrímsmenn gerðu góða ferð
norður yfir heiðar síðasta fimmtu-
dag þegar þeir sigruðu Þór Ak. í
nýliðaslag Domino‘s deildar karla
í körfuknattleik. Skallagrímur var
sterkara liðið á vellinum, leiddi
bróðurpart leiksins og sigraði að
lokum með 90 stigum gegn 81.
Borgnesingar mætti ákveðnir til
leiks og náðu ellefu stiga forskoti
eftir aðeins sjö mínútna leik. Þá
tóku heimamenn við sér og minnk-
uðu muninn í eitt stig með góðum
kafla. Eftir það var jafnt á með lið-
unum allt fram að leikhléi. Skalla-
grímsmenn voru ívið sterkari en
heimamenn aldrei langt undan.
Það var ekki fyrr en á síðustu mín-
útu fyrri hálfleiks að Þór komst
yfir og leiddi með þremur stigum,
50-47 í hálfleik.
Skallagrímur minnkaði muninn í
eitt stig snemma í þriðja leikhluta
en eftir það tóku heimamenn góðan
sprett. Þeir komust mest tíu stigum
yfir skömmu eftir miðjan leikhlut-
ann. En Borgnesingar voru hvergi
af baki dottnir. Þeir sýndu úr hverju
þeir eru gerðir og náðu forystunni
á nýjan leik fyrir lokafjórðunginn.
Forskotið létu þeir aldrei af hendi
og þrátt fyrir að það hafi verið að-
eins tvö stig stóran hluta fjórða leik-
hluta þá komust heimamenn aldrei
nær. Skallagrímsmenn bættu svo í á
lokamínútunum og innsigluðu níu
stiga sigur, 81-90.
Flenard Whitfield var atkvæða-
mestur Skallagrímsmanna með 29
stig og tólf fráköst. Darrel Flake
skoraði 21 stig og tók átta fráköst
og Sigtryggur Arnar Björnsson
skoraði 15 stig og tók sex fráköst.
Skallagrímur krækti sér með sigr-
inum í fyrsta sigur vetrarins og hef-
ur tvö stig eftir þrjá leiki í 10. sæti
deildarinnar.
Næsti leikur liðsins er heima-
leikur gegn ÍR fimmtudaginn 27.
október.
kgk
Fyrsti sigur Skallagríms í hús
Flenard Whitfield lék vel í fyrsta sigri
Skallagríms í vetur.
Ljósm. Skallagrímur Körfubolti á
Facebook.
Skallagrímskonur háðu dramatíska
viðureign gegn Keflavík síðasta mið-
vikudag en urðu að játa sig sigraðar
eftir framlengingu. Á laugardag var
komið að næsta leik þegar þær tóku
á móti Haukum í Borgarnesi. Skalla-
grímskonur lögðu grunn að góð-
um sigri í upphafsfjórðungnum. Þær
leiddu allan leikinn og þó Haukar hafi
gerst ágengir undir lokin sigldu Borg-
nesingar sigrinum heim og unnu með
13 stigum, 70-57.
Leikurinn fór fremur hægt af stað
og staðan var 9-7 þegar fyrsti leik-
hluti var rúmlega hálfnaður. Eftir það
skelltu Skallagrímskonur í lás í vörn-
inni og tóku afgerandi forystu. Hauk-
ar skoruðu aðeins sjö stig í upphafs-
fjórðungnum gegn 18 stigum Skalla-
gríms. Eftir það var saga leiksins sú
að Skallagrímur leiddi en Haukar
eltu. Munurinn hélst meira og minna
óbreyttur allt til hálfleiks. Staðan í
hléinu var 32-20 fyrir Skallagrím.
Lítið breyttist í leiknum fyrst eftir
hléið. Áfram leiddu heimakonur af-
gerandi og náðu mest 17 stiga for-
skoti. Aftur minnkuðu Haukar mun-
inn niður í tólf stig en ekkert benti
til þess að þær ætluðu að gera neina
alvöru atlögu að forskotinu, ekki fyrr
en um miðjan lokafjórðunginn. Þá
náðu þær mjög góðum kafla og voru
aðeins þremur stigum frá Skallagrími
og útlit fyrir að lokamínúturnar yrðu
æsispennandi. Skallagrímskonur voru
hins vegar ekki á þeim buxunum. Þær
hertu tök sín í bláloki og sigldu sigr-
inum heim. Þær unnu með 70 stigum
gegn 57, sem fyrr segir.
Tavelyn Tillman var atkvæðamest
leikmanna Skallagríms með 24 stig,
sjö fráköst og fjórar stoðsending-
ar. Sigrún Ámundadóttir kom henni
næst með 16 stig, níu fráköst og sex
stoðsendingar. Jóhanna Björk Sveins-
dóttir skoraði tíu stig og fór mikinn í
fráköstunum, en hún reif niður hvorki
fleiri né færri en 19 slík.
Skallagrímur situr í fimmta sæti
Domino‘s deildarinnar með sex stig
eftir fyrstu fimm leiki vetrarins, jafn
mörg stig og liðin tvö í sætunum fyr-
ir ofan. Næst leika Skallagrímskonur
í kvöld, miðvikudaginn 26. október,
þegar Njarðvíkingar koma í heim-
sókn í Borgarnes.
kgk
Skallagrímskonur sigldu
sigrinum heim
Jóhanna Björk Sveinsdóttir keyrir að körfunni í leiknum gegn Haukum.
Ljósm. karfan.is á Facebook.
Eftir öruggan sigur á Haukum síð-
astliðinn miðvikudag tók Snæ-
fell tók á móti Stjörnunni í Dom-
ino‘s deild kvenna í körfuknattleik
á laugardaginn. Bæði lið höfðu þrjá
sigra úr fyrstu fjórum leikjum vetr-
arins en það var ekki að sjá á leik
liðanna á laugardag. Snæfell gerði
út um leikinn strax í fyrsta leikhluta
og unnu að lokum öruggan sigur,
70-50.
Gunnhildur Gunnarsdóttir fyrir-
liði gaf tóninn með tveimur þriggja
stiga körfum strax í upphafi leiks
og eftir aðeins rúmar tvær mínútur
var staðan orðin 10-0 fyrir Íslands-
meisturunum. Skömmu síðar var
staðan orðin 22-6 og gestirnir vissu
ekki hvort þær voru að koma eða
fara. Að upphafsfjórðungnum lokn-
um var eins og Snæfell væri endan-
lega búið að taka Stjörnuna á taug-
um og forskot þeirra öruggt, 32-6.
Vörn Snæfells var nær óaðfinnan-
leg gegn óstyrkum leikmönnum
Stjörnunnar. Á hinum enda vallar-
ins spiluðu þær gestina sundur og
saman og fengu hvert opið skotið á
fætur öðru. Að fyrri hálfleik lokn-
um var staðan 47-23 fyrir Snæfelli
og aðeins formsatriði að klára leik-
inn.
Snæfell lék áfram gríðarsterka
vörn í síðari hálfleik en slakaði að-
eins á í sóknarleiknum. Liðið fékk
engu að síður góð skot og skoraði
auðveldar körfur en bætti aðeins
lítillega við forskot sitt. Það kom
hins vegar ekki að sök því Stjarnan
átti aldrei möguleika. Það var ekki
fyrr en um miðjan lokafjórðung-
inn að gestirnir náðu að minnka
muninn úr 30 stigum og niður í 20,
sem skipti engu fyrir úrslit leiksins.
Snæfell sigraði með 70 stigum gegn
50.
Taylor Bron var stigahæst Snæ-
fellskvenna með 19 stig og þrjú frá-
köst að auki. Gunnhildur skoraði
17 stig og tók fjögur fráköst, Pá-
lína Gunnlaugsdóttir var með 14
stig og fjögur fráköst og Berglind
Gunnarsdóttir með tólf stig og þrjú
fráköst.
Snæfell situr eftir leikinn í topp-
sæti deildarinnar með átta stig, jafn
mörg stig og Keflavík sem er í öðru
sæti, eftir fyrstu fimm leiki vetrar-
ins. Næst leikur Snæfell í kvöld,
miðvikudaginn 26. október þegar
liðið heimsækir Grindavík.
kgk
Gerðu út um leikinn í fyrsta leikhluta
Taylor Brown lék vel í vikunni rétt eins og Snæfellsliðið allt sem vann öruggan
sigur á bæði Haukum og Stjörnunni. Ljósm. sa.
Snæfell heimsótti Keflavík í Dom-
ino‘s deild karla í körfuknattleik
síðastliðinn fimmtudag. Hólmarar
létu finna fyrir sér í fyrri hálfleik en
heimaenn fundu fjölina sína í þeim
síðari og unnu að lokum 29 stiga sig-
ur, 111-82.
Keflvíkingar byrjuðu betur í leikn-
um og höfðu yfirhöndina fyrstu mín-
úturnar. Eftir það hrukku leikmenn
Snæfells í gang. Þeir jöfnuðu metin,
komust síðan yfir og kláruðu upp-
hafsfjórðunginn með látum og leiddu
19-27 að honum loknum. Þeir áttu
hins vegar erfitt uppdráttar í upp-
hafi annars leikhluta og Keflvíkingar
komust náðu forystunni á nýjan leik
áður en hann var hálfnaður. Eftir það
leiddu heimamenn en Snæfellingar
fylgdu þeim fast á eftir. Staðan í hálf-
leik 48-43, Keflavík í vil.
Það var síðan í síðari hálfleik að
Keflvíkingar virtust hrökkva í gang.
Þeir náðu tíu stiga forskoti um miðj-
an þriðja leikhluta og bættu við for-
skot sitt allt til leiksloka. Snæfelling-
um tókst ekki að halda í við heima-
menn og urðu að lokum að sætta sig
við stórt tap, þrátt fyrir góðan fyrri
hálfleik. Lokatölur í Keflavík 111-82,
heimamönnum í vil.
Sefton Barrett var atkvæðamestur
leikmanna Snæfells með 24 stig, átta
fráköst og sjö stoðsendingar. Viktor
Marinó Árnason skoraði 15 stig og
gaf 15 stoðsendingar, Sveinn Arnar
Davíðsson skoraði tólf stig og tók
fimm fráköst og Árni Elmar Hrafns-
son skoraði tólf stig einnig.
Snæfell er án stiga á botni deildar-
innar eftir fyrstu þrjá leiki vetrarins.
Næst mæta þeir Þór Þorlákshöfn á
útivelli föstudaginn 28. október.
kgk/ Ljósm. karfan.is á Facebook.
Slæmur síðari hálfleikur varð Snæfelli að falli
Skagamenn lögðu land undir fót
og mættu Hetti austur á Egilsstöð-
um síðasta fimmtudag. Var það ekki
mikil frægðarför, því þunnskipað
lið ÍA tapaði mjög stórt. Síðastlið-
inn sunnudag léku þeir aftur og þá
á heimavelli gegn liði Vestra. Hvor-
ugt lið hafði sigrað leik í vetur og
því tækifæri fyrir Skagamenn að
krækja í fyrstu stig tímabilsins í 1.
deild karla. En svo varð ekki, eft-
ir góðan fyrri hálfleik náðu gestirn-
ir að kroppa í forystuna allan síð-
ari hálfleikinn. Þeir komust að lok-
um yfir og sigruðu með fimm stig-
um, 77-82.
Jafnt var á með liðunum fyrstu
mínútur leiksins en um miðjan
fyrsta leikhluta áttu Skagamenn
góðan kafla og komust tíu stig-
um yfir. Gestirnir klóruðu aðeins
í bakkann en ÍA leiddi 22-15 fyr-
ir annan fjórðunginn. Skagamenn
voru áfram sterkari, leiddu með
fimm til sjö stigum lungann úr öðr-
um leikhluta en luku fyrri hálfleik
af krafti og höfðu ellefu stiga for-
skot í leikhléinu, 44-33.
Skagamenn misstu hins veg-
ar flugið í upphafi síðari hálfleiks.
Gestirnir byrjuðu af krafti, náðu
að jafna um miðjan þriðja leikhluta
og spenna farin að færast í leikinn.
Skagamenn bitu frá sér og komust
aftur yfir og leiddu með sex stig-
um fyrir lokafjórðunginn. Í upphafi
hans gerðu gestirnir annað áhlaup
og náðu að þessu sinni forystunni
og létu hana aldrei af hendi. Mun-
aði mest níu stigum seint í leiknum
en leikmenn ÍA reyndu hvað þeir
gátu á lokamínútunum en höfðu
ekki erindi sem erfiði. Lokatölur
77-82 fyrir Vestra.
Derek Shouse var stigahæstur
Skagamanna með 18 stig, sjö frá-
köst, þrjár stoðsendingar og þrjá
stolna bolta. Jón Orri Kristjánsson
skoraði 14 stig, tók ellefu fráköst,
gaf fjórar stoðsendingar og varði
þrjú skot. Áskell Jónsson skoraði 13
stig, Björn Steinar Brynjólfsson tólf
og Ómar Örn Helgason tíu.
Skagamenn eru enn stigalausir í
næstneðsta sæti deildarinnar eftir
fjóra leiki, rétt eins og lið Ármanns
sem situr á botninum. Þessi tvö lið
mætast í Reykjavík föstudaginn 28.
október næstkomandi.
kgk/ Ljósm. jho.
ÍA tapaði naumlega í botnslag 1. deildar