Skessuhorn - 21.12.2016, Blaðsíða 95
MIÐVIKUDAGUR 21. DESEMBER 2016 95
Við óskum landsmönnum öllum
gleðilegra jóla og farsældar
á komandi ári.
Þökkum viðtökurnar í upphafi
starfsemi okkar.
FISKMARKAÐUR
SNÆFELLSBÆJAR
EurostileT Bold
EurostileSCT RegularFiskmarkaður
Snæfellsbæjar
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
5
Kannanir hafa sýnt að eldvarnir eru ófullnægjandi á mörg-
um heimilum og íbúarnir því berskjaldaðir fyrir eldsvoðum.
Hættan er mest þegar líður að jólum þegar skreytingum fjölg-
ar. Svo um sjálfar hátíðirnar þarf að passa upp á enn fleira,
svo sem raforkunotkun, ástand reykskynjara, logandi kerti og
margt fleira.
Í ljósi þess að nú gengur í garð sá árstími þar sem hætta
er á eldsvoðum af völdum kertaljósa og jólaskreytinga hef-
ur Bjarni K. Þorsteinsson slökkviliðsstjóri í Borgarbyggð tek-
ið saman lista með atriðum sem nauðsynlegt er að hafa í huga
um hátíðirnar. Bjarni tekur fram að hann mælir fyrir hönd
allra slökkviliða í landshlutanum, sömu heilræða eiga allsstað-
ar við. Ábenindingar Bjarna fylgja hér á eftir.
Lágmarkseldvarnir á heimilum eru:
Virkir reykskynjarar, tveir eða fleiri.•
Léttvatns- eða duftslökkvitæki við helstu flóttaleið.•
Eldvarnateppi á sýnilegum stað í eldhúsi.•
Gætum varúðar um jól og áramót
Reykskynjarar eru sjálfsögð og ódýr líftrygging, skipta •
skal um reykskynjara á tíu ára fresti. Og rafhlöður í byrj-
un desember ár hvert eða oftar ef þörf er á.
Átt þú handslökkvitæki? Er það í lagi? Hvenær var það •
síðast yfirfarið?.
Slökkvitæki á að vera á sýnilegum stað, ekki í felum inni •
í skáp!
Ofhlöðum ekki fjöltengi og gætum að gömlum og léleg-•
um rafbúnaði.
Notum ávallt viðurkenndar rafvörur og fjöltengi með •
slökkvara og gaumljósi.
Eldvarnateppi skal vera í hverju eldhúsi og á aðgengileg-•
um og sýnilegum stað.
Gerum flóttaáætlun úr íbúðinni vegna eldsvoða með öll-•
um á heimilinu og æfum hana reglulega. Tvær greiðar
flóttaleiðir úr hverri íbúð!
Gætum varúðar í umgengni við kertaljós og skreytingar, •
skiljum börn aldrei eftir eftirlitslaus nærri logandi kert-
um eða eldi.
Aðgætum íbúðir okkar áður en gengið er til hvílu, eð• a
þær eru yfirgefnar að degi til, hvort nokkursstaðar logi á
kerti eða skreytingum.
Logandi kertaljós séu aldrei höfð í gluggu• m vegna drag-
súgs og lausra gardína.
Dreifið sem mest raforkunotkun við matseld um jól og •
áramót. Það kemur í veg fyrir hugsanleg óþægindi vegna
mikils álags á dreifikerfi rafmagns.
Ullar- eða leðurvettlingar á höndum og öryggisgleraugu •
á öll nef við meðferð flugelda um áramót.
Munum 112 neyðarlína ef slys, veikindi eða eldsvoða ber •
að höndum.
mm
Gagnleg ráð og ábendingar vegna
eldvarna og slysahættu um hátíðirnar