Skessuhorn - 11.04.2017, Side 1
FRÉTTAVEITA VESTURLANDS – www.skessuhorn.is 15. tbl. 20. árg. 11. apríl 2017 - kr. 750 í lausasölu
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/
S
ÍA
–
1
6
-3
0
6
7
Greiðslumat á � mínútum
fyrir viðskiptavini allra banka
Nú geta allir gert fullgilt greiðslumat á arionbanki.is
og fengið nákvæma mynd af greiðslugetu sinni með
nokkrum smellum.
Kynntu þér þessa spennandi nýjung
Fluconazol
ratiopharm
Fæst án lyfseðils
Eru bólgur og
verkir að hrjá þig?
Verkir í liðum?
Landnámssetur Íslands,
Brákarbraut 13 – 15, Borgarnesi
Á Sögulofti Landnámsseturs
Föstudagur 21. apríl kl. 20
Sunnudagur 30. apríl kl. 17
Miðapantanir:
landnam@landnam.is
sími 437-1600
Hollustuhádegishlaðborð alla
páskadagana opið 10:00 - 21:00
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
7
www.skessuhorn.is
Minnum á fríar
smáauglýsingar á
vef Skessuhorns
Það vekur ávallt lukku hjá unga fólkinu þegar litlu ungarnir taka að klekjast úr eggjum sínum. Þegar ljósmyndari Skessu-
horns var á ferðinni í Grundarfirði nýlega voru nokkrir ungar komnir á kreik og verða þeir orðnir sprækir og upp á sitt besta
um páskana. Á meðfylgjandi mynd er Ísey Káradóttir í páskagír með einn ungann. Ljósm. Berglind Jósepsdóttir.
Kvikmyndin The Fate of the Fu-
rious, einnig þekkt sem Fast &
the Furious 8, eða Fast-8, verð-
ur heimsfrumsýnd í Bíóhöllinni á
Akranesi miðvikudaginn 12. apríl
klukkan 18:00. Myndin verður
frumsýnd í öðrum bíóhúsum hér
á landi síðar sama kvöldið, sem og
víða í Evrópu og næstu daga verð-
ur hún frumsýnd í Bandaríkjun-
um, Suður-Ameríku og Asíu.
Kvikmyndin var sem kunnugt
er að hluta til tekin upp á Akra-
nesi síðasta sumar en einnig á Mý-
vatni. Hafa glöggir kvikmynda-
áhugamenn af Akranesi séð Sem-
entsverksmiðjunni og Faxabraut-
inni bregða fyrir í „trailer“ fyrir
myndina. Margir Skagamenn bíða
því útgáfu hennar með eftirvænt-
ingu. Leiða má líkur að því að
þeir fjölmenni á sýningar Fast-8
til að berja augum á hvíta tjaldinu
Vin Diesel, Dwayne „The Rock“
Johnson, Michelle Rodriguez,
Charlize Theron, Scott Eastwo-
od, Jason Statham og síðast en
ekki síst Akranesi.
Seljist upp á frumsýninguna
klukkan 18:00, eða ef áhugasam-
ir bíógestir komast af einhverjum
ástæðum ekki þá, má geta þess að
önnur sýning er á dagskrá í Bíó-
höllinni kl. 21:00 sama kvöld.
kgk
Heimsfrum-
sýning Fast-8
á Akranesi
Vin Diesel og Dwayne „The Rock“
Johnson verða í eldlínunni í nýjustu
mynd The Fast and the Furious
seríunnar.
Samsett mynd: Skessuhorn/ÞIT.
Helgi Helgason, framkvæmdastjóri
Heilbrigðiseftirlits Vesturlands,
gagnrýndi seinagang í kerfinu og í
samskiptum við stjórnsýsluna, eink-
um Umhverfisstofnun, þegar hann
fór yfir ársskýrslu eftirlitsins á að-
alfundi Heilbrigðisnefndar Vestur-
lands 29. mars síðastliðinn. Ingibjörg
Valdimarsdóttir, formaður heilbrigð-
isnefndarinnar, hafði sömuleiðis orð
á því í sínu erindi að Umhverfis-
stofnun hefði verið sein til svara, líkt
og undanfarin ár, þegar þreifingar
áttu sér stað á síðasta ári um breytta
verkaskiptingu milli heilbrigðiseftir-
lita í landinu og stofnunarinnar.
Til marks um þann seinagang Um-
hverfisstofnunar sem Helgi og Ingi-
björg vísa til má benda á að í niður-
lagi ársskýrslu heilbrigðiseftirlitsins,
sem undirrituð er af Helga, stendur
orðrétt: „Það er áhyggjuefni hvað
stjórnsýslan gengur hægt. Að fá af-
greiðslu ráðuneytis vegna samþykkta
sveitarfélaga sem þarf að staðfesta
tekur oft marga mánuði eða ár. Illa
gengur að fá fram breytingar á reglu-
gerðum í kjölfar úrskurða og reglu-
gerðir eru misvísandi. Þá má nefna
að HeV fékk í maí 2016 svar við bréfi
sem sent var til Umhverfisstofnunar
í janúar 2010 um dýrahald á þynn-
ingarsvæði.“
kgk
Tók sex ár að fá svar Umhverfisstofnunar
Helgi Helgason, framkvæmda-
stjóri Heilbrigðiseftirlits
Vesturlands, gagnrýndi
seinagang í stjórnsýslunni og
sér í lagi Umhverfisstofnunar á
aðalfundi Heilbrigðisnefndar
Vesturlands og í ársskýrslu
eftirlitsins.
Ljósm. úr safni Skessuhorns.
Gleðilega
páska!