Skessuhorn


Skessuhorn - 11.04.2017, Blaðsíða 22

Skessuhorn - 11.04.2017, Blaðsíða 22
ÞRIÐJUDAGUR 11. APRÍL 201722 Eitt af því sem fylgir vorinu í Brekkubæjarskóla á Akranesi er árshátíðin. Hún fór fram dagana 3. - 5. apríl sl. og létu pabbar og mömmur, afar og ömmur, frændur og frænkur sig ekki vanta frekar en venjulega. Atriðin voru fjölbreytt og komu allir nemendur í 1. – 6. bekk fram. Hefð er fyrir ljóðalestri nemenda í 7. bekk og svo er allt- af stór hópur unglinga sem einn- ig kemur fram auk þess að sjá um allt sem þarf til þess að svona sýn- ingar verði að veruleika. Atriðin voru tengd saman með persónum úr Galdrakarlinum í Oz sem voru á leið á árshátíðina. Ekki var annað að sjá og heyra en að flestir hafi skemmt sér kon- unglega. Vilja nemendur og starfs- fólk Brekkubæjarskóla þakka öll- um þeim sem komu á sýningarnar og sýndu með því þessu skemmti- lega og lærdómsríka skólastarfi áhuga. Hallbera Jóhannesdóttir Ljósm. Kolbrún Sigurðardóttir. Árshátíð Brekkubæjarskóla

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.