Skessuhorn


Skessuhorn - 11.04.2017, Blaðsíða 17

Skessuhorn - 11.04.2017, Blaðsíða 17
ÞRIÐJUDAGUR 11. APRÍL 2017 17 „Ekki var samráð haft við ungt fólk þegar ákveðið var að gera stórvægi- legar breytingar á menntakerfinu, stytta nám til stúdentsprófs um eitt ár og taka í notkun nýtt einkunna- kerfi á samræmdum prófum í grunn- skólum landsins. Ungt fólk verður fyrir miklum áhrifum af breyting- unum. Stytting á námi til stúdents- prófs getur orðið til þess að minni tími gefst til íþrótta- og tómstunda- iðkunar. Breytingarnar hafa líka nei- kvæð áhrif á andlega og líkamlega heilsu ungmenna. Ungu fólki finnst það hafa verið skilið út undan og ekki hlustað á það. Því finnst þörf á viðhorfsbreytingu innan stjórn- sýslunnar svo ráðamenn og sveit- arstjórnarfólk hlusti betur á ungt fólk á Íslandi, bæði þarfir og kröf- ur. Ungmennin óska líka eftir því að fulltrúar ungmennaráða fái að sitja fundi flestra nefnda innan sveitar- félaga.“ Þetta er á meðal þess sem fram kom á ungmennaráðstefnunni Ungt fólk og lýðræði sem fram fór á Hót- el Laugarbakka í Miðfirði dagana 5.-7. apríl. Yfirskrift ráðstefnunnar var „Ekki bara framtíðin – ungt fólk, leiðtogar nútímans.“ „Við teljum að æskilegt sé að breyta lögum og í leiðinni samræma reglur ungmennaráða um land allt,” segir í ályktun ungmennaráðsins, sem jafnframt vill að kosningaaldur verði lækkaður úr 18 árum í 16 ár. Lagt er til að breytingarnar verði í þrepum og kosningaaldur lækkaður fyrst í sveitarstjórnarkosningum en síðar í kosningum til Alþingis. „Það er þyngra og leiðinlegra að breyta lögum um kosningaaldur, en það er stórt skref að byrja á sveitar- stjórnarkosningum,“ segir Andrés Ingi Jónsson, þingmaður VG, sem mætti á ráðstefnuna. Öllum stjórn- málaflokkum var boðið að senda fulltrúa á ráðstefnuna. Málefni ungmennaráða fær meira vægi Til ráðstefnunnar Ungt fólk og lýð- ræði komu tæplega 100 ungmenni víða að frá landinu frá ungmennar- áðum félagasamtaka og sveitarfé- laga. Þar ræddu fulltrúar ungmenn- aráðanna saman og veittu hverju öðru ráð um það hvernig þau geta komið málum sínum á framfæri. Í niðurstöðum könnunar á vegum Ungmennaráðs UMFÍ í lok ráð- stefnunnar kom fram að öll ung- mennin sem komu töldu sig hafa lært eitthvað nýtt á henni. Fram kom í umræðum ráðstefnugesta að málefni ungmennaráða hafi fengið meira vægi á undanförnum árum og dæmi um að sveitarfélög fái ungt fólk með sér í skipulagsráð og nefndir á vegum sveitarfélags- ins. Það hafi verið óhugsandi fyrir tíu árum. 100 ungmenni leggja á ráðin Pallborðsumræður voru á ráðstefn- unni á föstudag. Í pallborði voru sex: Þrír fulltrúar frá VG; þingmaðurinn Andrés Ingi Jónsson, varaþingmað- urinn Gísli Garðarsson og Bjarni Jónsson, oddviti VG í sveitarstjórn Skagafjarðar; Margrét María Sig- urðardóttir, umboðsmaður barna; Guðný Hrund Karlsdóttir, sveitar- stjóri Húnaþings vestra; og Auður Inga Þorsteinsdóttir, framkvæmda- stjóri UMFÍ. Ungmennaráð UMFÍ stóð fyrir ráðstefnunni og kom ungt fólk, flest á aldrinum 16-26 ára, að allri skipu- lagningu hennar, allt frá fundum til kvöldskemmtana. Ráðstefnugestir voru til fyrirmyndar. Skemmtanir voru áfengislausar, tóbak var ekki notað, hvorki reyk né munntóbak og notaði enginn rafrettur. Á ráðstefnuna mættu fulltrú- ar ungmennaráða frá Akranesi, Borgarnes, Hólmavík, Hvamms- tanga, Búðardal, Fjallabyggð, Akur- eyri, Norðurþingi, Fljótsdalshéraði, Fjarðabyggð, Höfn í Hornafirði, Vík í Mýrdal, Árborg, Flóahreppi, Reykjavík, Hafnarfirði, Garðabæ, Seltjarnarnesi, Mosfellsbæ, Reykja- nesbæ og Garði ásamt fulltrúum ungmennaráða félagasamtaka. -fréttatilkynning frá UMFÍ. Auglýsir eftir kennurum til starfa fyrir skólaárið 2017-2018 SK ES SU H O R N 2 01 7 Grunnskóli Borgarfjarðar Grunnskóli Borgarfjarðar er þriggja starfstöðva grunnskóli með um 200 nemendur. Starfstöðvar hans eru á Kleppjárnsreykjum, Varmalandi og Hvanneyri. Tvo kennara vantar í fullar stöður að Hvanneyrardeild skólans vegna afleysinga. Um er að ræða umsjónarkennara á yngsta stigi. Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi KI og LS. Umsóknarfrestur er til 1.maí n.k. Umsóknum skal skilað skriflega til skólastjóra með upplýsingum um menntun, réttindi og starfsreynslu, ásamt ábendingu um meðmælendur. Mikilvægt er að umsækjendur hafi áhuga á að starfa með börnum, búi yfir færni í mannlegum samskiptum, frumkvæði í starfi, jákvæðni, sjálfstæði og skipulögðum vinnubrögðum og séu tilbúnir að vinna eftir stefnu og gildum skólans. Sjá heimasíðu www.gbf.is. Í samræmi við jafnréttisstefnu Grunnskóla Borgarfjarðar og Borgarbyggðar eru jafnt karlar sem konur hvött til að sækja um störf hjá sveitarfélaginu. Nánari upplýsingar veitir Ingibjörg Inga Guðmundsdóttir skólastjóri í síma 847-9262/433-7300 netfang; ingibjorg.inga@gbf.is. Lesturinn hefst kl. 13:30 og stendur til kl. 18:30. Lesarar verða leikararnir Sigurður Karlsson og Steinunn Jóhannesdóttir. Í hléum mun organisti kirkjunnar, Erla Rut Káradóttir, leika á orgel. Öllum er frjálst að koma og fara að vild á meðan lestri stendur. Hátíðarguðþjónusta á kl. 08:00 á páskadagsmorgun. Allir velkomnir. Hallgrímskirkja í Saurbæ Lestur passíusálmanna á Föstudaginn langa SK ES SU H O R N 2 01 7 Ungt fólk veit hvað það vill Svipmynd af ráðstefnunni sem fram fór á Laugarbakka í Miðfirði. Ungmennaráð UMFÍ og gestir í pallborði á ráðstefnunni. www.skessuhorn.is

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.