Skessuhorn


Skessuhorn - 11.04.2017, Blaðsíða 7

Skessuhorn - 11.04.2017, Blaðsíða 7
ÞRIÐJUDAGUR 11. APRÍL 2017 7 VILTU VERÐA KOKKUR? Nánari upplýsingar hjá Sjonna á Galito, eða sendið fyrirspurnir á galito@galito.is Okkur vantar tvo matreiðslunema til starfa sem fyrst Vinsamlegast sendið umsóknir á galito@galito.is sími 430 6767 · galito.is Með því að nota límtré í burðargrindur landbúnaðarbygginga eins og fjósa, hesthúsa, reiðhalla, fjárhúsa og fleiri gerða, og klæða grindurnar með steinullareiningum fást mjög hlýleg og falleg hús sem eru fljótuppsett, endingargóð og illtendranleg. Ekki skemmir fyrir að þessi hús eru hagkvæm í viðhaldi og rekstri. Ráðgjöf til viðskiptavina Starfsmenn okkar búa yfir áratuga reynslu við hönnun og fram- leiðslu húsanna. limtrevirnet.is Aðalskrifstofa - Borgarbraut 74 - 310 Borgarnes Söluskrifstofa - Vesturvör 29 - 200 Kópavogur Netfang - sala@limtrevirnet.is Aðalnúmer: 412 5300 | Söludeild: 412 5350 Við framleiðum landbúnaðarbyggingar Fjós Fjarhús Hesthús Bæjarráð Akraneskaupstaðar hef- ur samþykkt að heimild verði veitt fyrir nýju 100% stöðugildi á vel- ferðar- og mannréttindasviði bæjar- ins. Um er að ræða starfsmann hjá félagsþjónustu Akraneskaupstað- ar, á sviði barnaverndar. Í lok árs 2016 var farið yfir fjölda tilkynn- inga til barnaverndar Akraneskaup- staðar og í kjölfarið var sviðsstjóra velferðar- og mannréttindasviðs fal- ið að greina stöðu málaflokksins. Óskað var eftir samstarfi við Róbert Ragnarsson stjórnsýslufræðing MA við greiningu á stöðu barnavernd- ar og samanburði við önnur sveitar- félög. Í samanburðinum voru skoð- aðir þættir svo sem stöðugildafjöldi starfsmanna í barnavernd og heild- arfjölda í félagsþjónustu, fyrirkomu- lag bakvakta og greiðslna og vinnu- lag í barnavernd. Í félagsþjónustuteymi Akranes- kaupstaðar eru fjórir starfsmenn í jafn mörgum stöðugildum; félags- málastjóri, félagsráðgjafi og tveir starfsmenn sem helga sig barna- verndarstarfi. Í niðurstöðum Ró- berts segir að vísbendingar séu um að álag á barnaverndarstarfsmenn á Akranesi sé meira en almennt gildir um barnaverndarstarfsmenn á landinu, sé miðað við svokall- aða Gautaborgaraðferð, sem not- uð er til að mæla vinnuálag í barna- vernd. Aðferðin mælir vinnuálag en er ekki mælikvarði á gæði vinn- unnar. „Starfsmenn í öllum sveitar- félögum í samanburðarhópnum búa að jafnaði við meira álag en æskilegt er talið samkvæmt Gautaborgarað- ferðinni. Starfsmenn hjá Akranes- kaupstað búa við mun meira álag en hjá hinum sveitarfélögunum,“ segir í skýrslu Róberts. Að mati Róberts er ekki æskilegt að stuðla að mikilli sérhæfingu starfsmanna í fámennri starfseiningu líkt og hjá félagsþjón- ustu Akraneskaupstaðar. Því leggur hann til að verklagi og starfslýsing- um starfsmanna verði breytt, þann- ig að störfin verði þverfaglegri. Þá leggur hann til að bætt verði við einu stöðugildi starfsmanns í félags- þjónustu. „Verkefni þess starfs- manns verði að mestu í barnavernd, við könnun og meðferð mála. Í það minnsta í upphafi. Þeim starfsmanni verði jafnframt falið að vinna verk- efni á sviði félagslegrar ráðgjafar og fjárhagsaðstoðar, og málefna fatlaðra barna til að stuðla að þekkingaryfir- færslu á milli verkefna í félagsþjón- ustu,“ segir í skýrslunni. grþ Fjölga starfsmönnum barnaverndar Skaginn 3X er nú langt kominn með uppsetningu vinnslubúnaðar og lestarkerfis í Engey RE, nýjan ísfisktogara HB Granda. Síðastlið- inn föstudag var haldin móttaka við Norðurgarð í Reykjavík og skipinu siglt þangað og því formlega gef- ið nafn. Skipið var svo til sýnis fyr- ir almenning í Reykjavíkurhöfn á laugardaginn. Eftir það var siglt að nýju á Akranes þar sem Skaginn 3X lýkur við frágang búnaðar og fín- stillingar áður en haldið verður til veiða síðar í þessu mánuði. Búnaðurinn í Engey RE er sá fyrsti sinnar tegundar og hefur fyr- irtækið Skaginn 3X hannað, þró- að og smíðað hann á Akranesi og á Ísafirði. Búnaðurinn mun stór- bæta vinnuumhverfi sjómanna um borð auk þess sem hann mun auka afkastagetu skipsins og hámarka virði afurða úr afla þess. „Við erum afar ánægð og stolt að taka á móti Engey RE 91 sem er glæsilegur ís- fisktogari og án efa eitt tæknivædd- asta fiskiskip landsins. Við munum taka á móti tveimur ísfisktogurum, Akurey og Viðey, í flotann á næstu mánuðum en þau skip verða með sama búnaðinum og er í Engey. Við reiknum með að Engey fari í sína fyrstu veiðiferð í lok apríl,” segir Vilhjálmur Vilhjálmsson, forstjóri HB Granda. „Um að ræða stærsta þróunar- verkefni sem ráðist hefur verið í um borð í fiskiskipi hérlendis. Þessi nýja tækni grundvallast fyrst og fremst á nýjum aðferðum við meðhöndl- un fisksins og aukinni sjálfvirkni í vinnslukerfinu sem flýtir aðgerð og frágangi á afla sem skilar mun betri gæðum. Með nýrri myndavélatækni er hver einasti fiskur myndaður, tegundagreindur og stærðarflokk- aður. Myndavélatæknin heldur utan um allan feril fisksins allt þar til að löndun lokinni. Með þessu erum við komin með möguleika á rekjanleikakerfi sem á sér enga hliðstæðu allt frá veiðum til neyslu, ef menn kjósa svo,” segir Ingólfur Árnason, framkvæmdastjóri Skag- inn 3X, en fyrirtækið fékk á dög- unum Nýsköpunarverðlaun Íslands fyrir þennan nýja búnað. „Þetta er annað skipið sem er búið hinu bylt- ingakennda SUB-CHILLING™ kerfi, sem gerir kleift að kæla fisk- inn niður að -1°C án þess að frysta hann. Með þessari tækni er hægt að geyma fiskinn í körum án þess Engey RE í hópi tæknivæddustu fiskiskipa í heimi að nota ís. Skaginn 3X hefur sótt um sex ný einkaleyfi fyrir vinnslu- búnaðinn sem settur var um borð í Engey,” segir Ingólfur enn fremur. Nautic ehf. sá um hönnun skipsins. Samtals eru klefar fyrir 17 manns um borð í skipinu, 15 eins manns klefar og einn tveggja manna klefi. mm

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.