Skessuhorn - 11.04.2017, Qupperneq 8
ÞRIÐJUDAGUR 11. APRÍL 20178
Ný lög um
þjónustu við
fatlað fólk
LANDIÐ: Þorsteinn Víg-
lundsson félags- og jafnrétt-
ismálaráðherra hefur lagt
fram á Alþingi frumvarp að
nýjum heildarlögum sem
fjalla um þjónustu við fatlað
fólk með þörf fyrir mikinn
stuðning. Ýmis nýmæli eru
í frumvarpinu sem hefur það
meginmarkmið að innleiða
ákvæði samnings Sameinuðu
þjóðanna um réttindi fatlaðs
fólks í íslenska löggjöf. Sam-
hliða leggur ráðherra fram
frumvarp til breytinga á lög-
um um félagsþjónustu sveit-
arfélaga. Meðal þess sem
frumvarpið tekur á er að lög-
fest er notendastýrð pers-
ónuleg aðstoð (NPA) og fyr-
irkomulag þeirrar þjónustu
sem sveitarfélögin skulu inn-
leiða á grundvelli aukinna
framlaga frá ríkinu á árunum
2017 – 2022. Þá eru stjórn-
unar- og eftirlitsheimild-
ir ráðherra styrktar þannig
að hann getur nú skorið úr
um ágreining um hvort regl-
ur sveitarfélags eigi sér full-
nægjandi lagastoð. Skerpt er
á skilum milli laga um mál-
efni aldraðra og laga sem
gilda um þjónustu við fatl-
að fólk þegar um er að ræða
fólk sem er 67 ára og eldra.
Kveðið er á um að ráð-
herra skuli veita starfsleyfi
einkaaðilum sem hafa það
að meginmarkmiði að veita
fötluðu fólki þjónustu. Loks
eru ýmis nýmæli í frumvarp-
inu varðandi þjónustu við
fötluð börn og fjölskyldur
þeirra. Má þar m.a. nefna að
sveitarfélög skuli bjóða fötl-
uðum börnum frístunda-
þjónustu eftir að skóladegi
lýkur og eftir atvikum áður
en dagleg kennsla hefst, og
að auki á öðrum dögum en
lögbundnum frídögum þeg-
ar skólar starfa ekki. Einn-
ig eru í frumvarpinu nýmæli
sem lúta að bættri þjónu við
börn með samþættar geð- og
þroskaraskanir. Áhugasöm-
um er bent á að hægt er að
kynna sér efni frumvarpsins
í heild sinni á vef ráðuneyt-
isins.
-mm
Móðurskóli um-
ferðarfræðslu
AKRANES: Grundaskóli
á Akranesi og Samgöngu-
stofu hafa endurnýjað samn-
ing þess efni að skólinn verði
áfram móðurskóla í umferð-
arfræðslu hér á landi. Á fundi
skóla- og frístundaráðs Akra-
neskaupstaðar í liðinni viku
var þessu fagnað. -mm
Íbúafundur í
kvöld
DALIR: Íbúafundur verður
haldinn í Dalabúð í Búðar-
dal í kvöld, þriðjudaginn 11.
apríl og hefst kl. 20. Á dag-
skrá eru ársreikningur Dala-
byggðar árið 2016, fjárhags-
og framkvæmdaáætlun árið
2017, lagning ljósleiðara og
fleira. Á vefsíðu Dalabyggð-
ar eru íbúar hvattir til að
mæta á fundinn og taka þátt
í umræðum.
-mm
Stjórnvöld ekki
sögð standa
við loforð
LANDIÐ: Í Ríkisfjármála-
áætlun 2017 til 2022 eru
framlög til framhaldsskól-
anna skorin verulega nið-
ur. Stjórn Félags framhalds-
skólakennara gagnrýnir
stjórnvöld harðlega fyrir að
efna ekki þau loforð sem yf-
irvöld menntamála gáfu þeg-
ar námstími til stúdentsprófs
var styttur. „Loforð um að
allur fjárhagslegur ávinning-
ur af styttingunni yrði ekki
tekinn út úr rekstri fram-
haldsskólanna heldur nýtt-
ur til þess að auka þjónustu
við nemendur hafa nú verið
svikin. Ekki er þar heldur að
sjá efndir á þeim fyrirheit-
um stjórnvalda að jafna laun
opinberra starfsmanna við
sambærilega hópa á almenn-
um markaði. Stjórn Fé-
lags framhaldsskólakennar-
ar skorar á Alþingi að standa
vörð um íslenskt mennta-
kerfi og spyrna við fótum
gegn áframhaldandi fjár-
sveltum framhaldsskólum,“
segir í tilkynningu frá stjórn-
inni.
-mm
Aflatölur fyrir
Vesturland
dagana 1. - 7. apríl
Tölur (í kílóum)
frá Fiskistofu:
Akranes 2 bátar.
Heildarlöndun: 8.810 kg.
Mestur afli: Eskey ÓF:
5.490 kg í tveimur löndun-
um.
Arnarstapi 3 bátar.
Heildarlöndun: 67.578 kg.
Mestur afli: Bárður SH:
52.008 kg í fimm löndunum.
Grundarfjörður 3 bátar.
Heildarlöndun: 156.535
kg.
Mestur afli: Hringur SH:
66.009 kg í einni löndun.
Ólafsvík 9 bátar.
Heildarlöndun: 118.616
kg.
Mestur afli: Steinunn SH:
49.667 kg í þremur löndun-
um.
Rif 7 bátar.
Heildarlöndun: 429.241
kg.
Mestur afli: Magnús SH:
180.845 kg í sjö löndunum.
Stykkishólmur: Engar land-
anir voru á tímabilinu.
Topp fimm landanir á
tímabilinu:
1. Tjaldur SH - RIF:
72.181 kg. 1. apríl.
2. Hringur SH - GRU:
66.009 kg. 4. apríl.
3. Örvar SH - RIF:
51.148 kg. 2. apríl.
4. Helgi SH - GRU:
47.803 kg. 3. apríl.
5. Farsæll SH - GRU:
42.723 kg. 3. apríl.
-grþ
Árekstur tveggja bíla varð á Kambs-
vegi, skammt frá Hrútsstöðum í
Dölum, síðdegis á miðvikudag í
liðinni viku. Færð var varhugaverð,
hiti um frostmark og slabb á veg-
inum. Minniháttar slys urðu á fólki
en bílana þurfti að fjarlægja með
aðstoð dráttarbíls.
sm
Harður árekstur tveggja bíla á Kambsvegi
Alþýðusamband Íslands framkvæm-
ir reglulega verðkannir á matvöru.
Í vörukörfu ASÍ hefur matarverð
lækkað frá því í september 2016 hjá
öllum þeim tíu verslununum sem
skoðaðar voru vikuna 20.–24. mars
síðastliðinn. Mest er lækkunin 5,6%
hjá Hagkaup og 5,5% hjá Krónunni.
Minnsta lækkunin er hjá Samkaup-
Strax, 0,2% og Víði 0,4%. Á um-
ræddu tímabili má sjá verðbreytingar
í öllum vöruflokkum bæði hækkan-
ir og lækkanir. Grænmeti og ávextir
hafa lækkað töluvert í verði hjá öllum
verslununum og brauð og kornvörur
hjá öllum nema hjá Víði. Á meðfylgj-
andi súluriti má sjá verðbreytingar á
vörukörfu ASÍ frá september 2016
til mars 2017. Lækkunin er sem fyrr
segir 0,2%-5,6%. mm
Vöruverð hefur lækkað í öllum
verslunum síðan í haust
Á fundi sveitarstjórnar Borgarbyggð-
ar síðastliðinn föstudag var samþykkt
samhljóða að fela sveitarstjóra, í sam-
vinnu við þá lögmenn sem unnu að
vörn vegna krafna ríkissjóðs í þjóð-
lendumálum, að höfða mál fyrir hér-
aðsdómi samkvæmt kröfulýsingu til
ógildingar þeim úrskurðum Óbyggða-
nefndar frá 30. október 2016 á svæð-
um sem tilgreind eru í þjóðlendumál-
um nr. 1 og 3/2014 í Borgarbyggð.
Um er að ræða land á Langavatnsdal í
Borgarbyggð sem ríkissjóði var dæmt
eignarhald yfir með úrskurði síðast-
liðið haust. mm
Höfða mál vegna þjóðlendna í Langavatnsdal
Á þessu korti eru skyggðu svæðin
þjóðlendur samkvæmt niðurstöðum
Óbyggðanefndar síðastliðið haust.
Undirbúningsnefnd vegna aldar-
afmælis sjálfstæðis og fullveldis Ís-
lands hefur ráðið Ragnheiði Jónu
Ingimarsdóttur, menningarfull-
trúa Eyþings, sem framkvæmda-
stjóra vegna undirbúnings hátíðar-
halda í tilefni aldarafmælis sjálfstæð-
is og fullveldis Íslands 2018. Ragn-
heiður Jóna hefur tíu ára reynslu af
störfum á vettvangi menningar og
lista, undanfarin ár hefur hún starf-
að sem menningarfulltrúi Eyþings
og sem verkefnastjóri uppbygging-
arsjóðs Norðurlands eystra. Ragn-
heiður Jóna er alin upp á Hvanneyri
í Borgarfirði. Hún lauk MA-prófi í
menningarstjórnun frá Háskólanum
á Bifröst og BA-prófi í nútímafræði
frá Háskólanum á Akureyri. Starf
framkvæmdastjóra var auglýst laust
til umsóknar 4. febrúar síðastlinn og
bárust 79 umsóknir um starfið.
Þingsályktun um hvernig minnast
skuli aldarafmælis sjálfstæðis og full-
veldis Íslands var samþykkt á Alþingi
í október á síðasta ári og afmælis-
nefndin kjörin í desember sama ár.
Verkefni nefndarinnar er að undir-
búa viðburði, verkefni og hátíðar-
höld allt árið 2018, þegar öld er lið-
in frá því að íslenskt ríki, sjálfstætt,
frjálst og fullvalda, var á ný stofn-
að með sambandslögunum 1918. Í
nefnd um aldarafmæli sjálfstæðis og
fullveldis Íslands eru Einar K. Guð-
finnsson, Þórunn Sigurðardóttir,
Einar Brynjólfsson, Þorsteinn Sæ-
mundsson, Páll Rafnar Þorsteins-
son, Guðlaug Kristjánsdóttir og
Kristján Möller. mm
Undirbýr aldarafmæli sjálfstæðs fullvalda ríkis