Skessuhorn - 11.04.2017, Blaðsíða 11
ÞRIÐJUDAGUR 11. APRÍL 2017 11
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
7
Melahverfi 2, íbúðarhúsalóðir við Háamel.
Svæðið sem nú er úthlutað úr, er fyrsti áfangi að nýrri byggð
sunnan Melahverfis.
Lóðirnar eru fyrir eftirfarandi byggingargerðir:
Einbýlishús á einni hæð, neðan götu: nr. 2, 4, 6 og 8
Parhús tveggja hæða, ofan götu: nr. 3, 5, 7, 9, 11 og 13
Parhús einni hæð, neðan götu: nr. 10, 12, 14 og 16
Fjölbýlishús, 8 íbúðir á tveimur hæðum: nr. 1
Tekið verður við umsóknum á þar til gerðum umsóknareyðublöðum
frá og með 10.04.2017 á skrifstofu sveitarfélagsins að Innrimel 3,
301 Akranes. Umsóknareyðublöð, úthlutunarreglur, deiliskipulag
ásamt greinargerð er hægt að nálgast á heimasíða Hvalfjarðar-
sveitar www.hvalfjardarsveit.is eða á skrifstofu Hvalfjarðarsveitar.
Umsóknum í þessa fyrstu úthlutun skal skilast fyrir 02.05.2017.
Nánari upplýsingar eru veittar á skrifstofu sveitarfélagsins.
Skúli Þórðarson
Sveitarstjóri Hvalfjarðarsveitar
Lóðarúthlutun í nýju hverfi sunnan
við Melahverfi í Hvalfjarðarsveit
„Við frændurnir, ég og Óli Tóm-
as, byrjuðum veiðitímabilið á hinni
árlegu ferð okkar í Grímsá í Borg-
arfirði,“ sagði Elías Pétur Þórar-
insson sem var að koma úr fyrsta
veiðitúrnum á tímabilinu, en leyfi-
legt er að renna fyrir sjóbirting 1.
apríl ár hvert. Það er Hreggnasi,
leigutaki árinnar, sem sér um sölu
veiðileyfa í Grímsá.
„Væntingar okkar voru ekki
miklar þar sem áin var búin að vera
í flóði dagana áður og veðurspáin
gerði ráð fyrir snjóbyl. Við hófum
veiðar um hálf tíu leytið neðarlega
í ánni. Þá var mikill klaki og krapi í
ánni sem gerði veiðina nær ómögu-
lega. Fyrsti fiskurinn kom því ekki
fyrr en um hádegið en þá lönduðum
við fallegum 62 cm silfurbjörtum
sjóbirtingi í hylnum Smugu. Eftir
það reyndum við ýmsa staði svo sem
Laxfoss og Hörgshyl sem vanalega
hafa gefið okkur fiska, en brugð-
ust okkur í þetta sinn. Við ákváð-
um að enda daginn
á neðsta svæðinu, í
Hólmavaðskvörn og
Langadrætti. Þegar
þangað var komið
hafði veðrið gjör-
breyst og komið var
logn og hiti. Í fyrsta
kastinu í Hólma-
vaðskvörninni var
hann á, fínn 61 cm
fiskur sem sést á
meðfylgjandi mynd.
Í Langadrætti var
sömu sögu að segja,
strax var fiskur í
flugunni og enduð-
um við á að landa
fimm sjóbirtingum
þar í beit. Allir voru
þeir á bilinu 50-60
cm,“ sagði Elías
sem að vonum var
hress með veiðina.
gb
Góð sjóbirtingsveiði í Grímsá
Ólafur Tómas Guðbjartsson með flottan sjóbirting úr
Grímsá. Ljósm. Elías Pétur.
Límtré Vírnet hefur undanfarið
verið í samstarfi við arkitektana
Hjördísi Sigurgísladóttur og Denn-
is Davíð Jóhannesson um hönnun
steinullareiningahúsa. Hjördís og
Dennis hafa séð um aðaluppdrætti,
Límtré Vírnet hannað burðavirkið
og öll deilivinna hefur verið sam-
vinna beggja aðila. „Límtré Vírnet
hannar ekki útlit húsanna held-
ur snýr þáttur fyrirtækisins meira
að útfærslunni. Okkar hlutverk er
að leysa tæknileg atriði sem snúa
að framleiðslu, eins og við höfum
reyndar verið að gera undanfarin
ár, þegar fólk hefur komið til okk-
ar með teikningar,“ segir Andri í
samtali við Skessuhorn. Hann tek-
ur skýrt fram að fyrirtækið hyggist
ekki hefja fjöldaframleiðslu húsa til
þess að eiga sem „hilluvöru“. Ein-
ungis verði framleitt eftir pöntun-
um og er framleiðslugeta fyrirtæk-
isins nokkuð öflug með tilkomu
nýrrar einingalínu sem staðsett er
á Flúðum.
„Það er því möguleiki að leggja
inn pöntun í hús eins og Hjördís
og Dennis teiknuðu þar sem allar
teikningar og öll hönnun er tilbú-
in. Við höfum unnið að því und-
anfarið og stefnum að því í fram-
tíðinni að eiga tilbúnar teikningar
af þremur til fjórum týpum af hús-
um sem þá er hægt að setja í fram-
leiðslu eftir pöntun. Við viljum
gjarnan vera valmöguleiki á þeim
markaði,“ segir Andri „Að eiga til-
búnar teikningar af nokkrum gerð-
um einingarhúsa er þróunarverk-
efni sem hefur í raun verið í gangi
hjá okkur í mörg ár, enda er það
yfirleitt besta leiðin að gefa svona
verkefnum tíma, maður rekst alltaf
á eitthvað sem betur má fara. En
við teljum okkur hafa lært töluvert
af þeim verkefnum sem við höfum
unnið að síðasta áratuginn og rúm-
lega það, því nú eru einhver hús úr
steinullareiningum frá okkur orðin
milli 10 og 15 ára gömul.“
Margir kostir við
einingarnar
Andri hefur orð á því að eininga-
hús úr steinullareiningum og
límtré séu hugarfóstur Guðmund-
ar Magnússonar, eins stofnanda
Límtrés Vírnets. Hann er stund-
um kallaður guðfaðir límtrésins.
„Þetta er eiginlega hans hugarfóst-
ur. Guðmundur hefur reist tölu-
vert af sumarhúsum, einbýlis- og
tvíbýlishúsum úr steinullareining-
um. Hann segir einn helsta kost-
inn við þessi hús að þau séu alveg
myglufrí. Það er mikill kostur, en
eitt stærsta vandamálið, sérstak-
lega eftir hraðann sem einkenndi
byggingar á árunum 2006 til 2007,
voru myglur og önnur rakatengd
vandamál,“ segir Andri. Þá segir
hann einingahúsin hafa komið vel
út úr loftþéttleikaprófunum. „Þessi
hús myndu flokkast sem léttbyggð
hús og Guðmundur hefur látið
loftþéttleikaprófað þau. Þær próf-
anir hafa leitt í ljós að einingarnar
eru mjög þéttar, en þær eru þann-
ig gerðar að stál er límt sitt hvor-
um megin á steinullina. En þeim
mun þéttari sem hús eru þeim mun
minni kólnun verður í húsunum.
Þau tapa síður hita og þannig spar-
ast orka,“ segir hann.
Hagkvæm lausn
Hvað varðar verð og annað slíkt
segir Andri það að mestu fara eftir
hverju húsi fyrir sig. „Það er verið
að skoða hönnun húsa sem ættu að
vera enn fljótreistari og hagkvæm í
byggingu. Til dæmis sjá arkitekt-
arnir Hjördís og Dennis fyrir sér
að þessi hús sem þau hafa hannað
verði mjög hagkvæm. Hins veg-
ar getum við ekkert fullyrt um
heildarbyggingarkostnað þar sem
okkar hluti er kannski 25-30% af
heildarkostnaði en við teljum að
þetta sé hagvæm lausn. Endan-
legur byggingakostnaður fer síðan
mikið eftir öðrum þáttum,“ segir
Andri og bætir því við að ástæðan
sé sú að Límtré Vírnet framleiði í
raun bara efni í skelina á húsinu,
„Getum vonandi boðið nokkrar
útfærslur einingahúsa í náinni framtíð“
steinullareiningar og límtré. „Við
komum ekki til með að reisa hús-
in, við erum framleiðendur límt-
résbitanna og eininganna. Hvað
kostar að reisa húsin og innrétta
þau er síðan allt annar handlegg-
ur og í ekki á okkar könnu,“ seg-
ir Andri. Hann telur þó að sá hluti
hússins sem fyrirtækið kemur að sé
hagkvæmur. „Þegar kemur að skel
húsa úr steinullareiningum og þá
held ég að ég geti fullyrt að það
sem snýr að okkur sé hagkvæmt og
samkeppnishæft við aðrar bygg-
ingarlausnir,“ segir hann. „Ef allt
gengur eftir þá vonandi getum við
boðið upp á nokkrar útfærslur ein-
ingahúsa úr steinullareiningum
og límtré í náinni framtíð,“ segir
Andri Daði Aðalsteinsson að lok-
um.
kgk
Parhús úr steinullareiningum með límtrésburðarvirki. Samstarfsverkefni Límtrés Vírnets og arkitektanna Hjördísar Hjördísar
Sigurgísladóttur og Dennis Davíðs Jóhannessonar.