Skessuhorn - 11.04.2017, Side 15
ÞRIÐJUDAGUR 11. APRÍL 2017 15
yrði blindur? Þá var ekkert til sem
hét áfallahjálp en vissulega hefði
ekki sakað fyrir okkur að hafa að-
gang að slíkri aðstoð, það sér mað-
ur eftir á. Það reyndist okkur hins
vegar gæfuspor að þurfa að hugsa
hlutina svona alveg upp á nýtt. Við
ákváðum að opna fyrir alla mögu-
leika. Þannig var þetta lífsreynsla
sem mótaði okkur og styrkti til
lengri tíma. Við ákváðum strax að
lifa lífinu og láta þennan sjúkdóm
hans ekki verða okkur hindrun í að
gera allt sem við vildum og réðum
við að gera. Okkar lífssýn var því
að nýta tækifærin strax - það væri
ekki víst að þau kæmu aftur. Þessu
höfum við meðvitað farið eftir og
hefur það styrkt okkur í mörgu,
svo sem varðandi fjárfestingar, ut-
anlandsferðir og ákvörðunartöku,
svo dæmi séu tekin, svo fjölmargt í
lífinu. Þetta er viðhorf sem ég hef
geymt með sjálfri mér lengi og er
í raun í fyrsta skipti að segja frá því
núna. Gott að geta rætt þetta núna
þegar maður er hálfnaður á lífsleið-
inni,“ segir Olla.
Á höttunum eftir
hentugum stað
Olla segir að það hafi haft áhrif á
allt skipulag á heimilinu þegar Alli
hætti að aka bíl árið 1999. „Þá vor-
um við með tvö ung börn en börn-
um fylgir eins og allir vita ýmis-
legt skutl milli staða. Sjónskerðing
eiginmannsins hefur vissulega sett
okkur ákveðnar skorður og kallað á
mikla skipulagningu á ótal sviðum
og hafði þannig áhrif á allt okkar
líf. Aðstoð við sjónskerta er vissu-
lega mjög ólík milli sveitarfélaga og
af þeim sökum höfum við til dæmis
átt búsetu í Reykjavík, þótt vinnan
hafi að stórum hluta verið í Mos-
fellsbæ. Það er þess vegna mjög
umhugsunarvert hvernig smærri
sveitarfélög ætla að koma til móts
við ýmsar lögbundnar þarfir fatl-
aðra. Þessi mál hafa mikið verið í
umræðunni og verða það vafalaust
allt þar til jafnræðis við alla verð-
ur gætt og þá allsstaðar, hvort sem
sveitarfélag er stórt eða smátt. Nú
liggur fyrir að flytja á Vesturland-
ið. Það er okkur tilhlökkunarefni
að geta farið í rólegra umhverfi úti
á landi þar sem hraðinn og spennan
er ekki eins mikil og við þekkjum
á höfuðborgarsvæðinu. Það er gott
að vera að skipta um starfsvettvang
ekki síst þar sem ég tel að reynsla
og þekking mín eigi eftir að nýtast
vel. Nú erum við á höttunum eft-
ir hentugu húsnæði og aðstöðu fyr-
ir hrossin í nágrenni Borgarness.
Okkar draumur er að geta selt hest-
húsið og aðstöðuna í Mosfellsbæ
og flutt okkur á svæðið í námunda
við mína vinnu þar sem við getum
byggt upp aðstöðu fyrir hestana
okkar og tamningar. Þetta á sem-
sagt eftir að skýrast en ennþá ek ég
á milli til vinnu,“ segir Olla.
Börn þeirra Ollu og Alla eru
tvö. Lilja Ósk er 25 ára og búsett á
Laugalandi í Stafholtstungum ásamt
Hjalta Þórhallssyni og eiga þau tvö
börn. Lilja Ósk er líkt og foreldr-
ar hennar á kafi í hestamennsku en
auk þess í viðskiptalögfræði við Há-
skólann á Bifröst. Auðunn Hrafn er
21 árs og nemandi í tölvunarfræði
í HR. „Þau eru á fullu að mennta
sig bæði. Hugsanlega taka þau bara
við bókhaldsfyrirtækinu mínu, hver
veit,“ segir Olla.
„Pabbi kenndi mér
bæjarnöfnin“
Hún kveðst hlakka til að takast á við
fjölbreytt störf hjá Atvinnuráðgjöf
Vesturlands. Í þessari viku verður
til dæmis fyrsti viðverudagur á nýrri
starfsstöð SSV á Akranesi, en sam-
tökin hafa tekið á leigu skrifstofu-
rými hjá nýsköpunarsetrinu Co-
working sem er í Landsbankahúsinu
við Akratorg. Aðalskrifstofa SSV er
hins vegar í Borgarnesi. Olla segist
búa vel að staðarþekkingu á Vestur-
landi og þakkar föður sínum, Guð-
mundi Arasyni það. „Pabbi var öku-
kennari þegar ég var að alast upp og
er reyndar enn að kenna á bíl þótt
hann sé hættur annarri vinnu. Ég fór
oft með honum í ferðir vegna öku-
kennslunnar og einnig þegar hann
sem starfsmaður Vegagerðar ríkis-
ins fór um sveitir til að greiða starfs-
mönnum út launin þeirra. Þá notaði
hann iðulega tækifærið til að kenna
mér bæjarnöfnin og ýmis kennileiti
á ferð okkar. Ég bý því vel að þekkja
flesta bæi í Borgarfirði og Dölum
frá þessum ferðum og þá kynntist
ég Snæfellsnesinu ágætlega þegar
ég bjó fyrir vestan. Mér finnst það
ákveðið forskot sem ég hef í nýju
starfi að þekkja vel til á Vesturlandi.
Ekki síst þess vegna hlakka ég til að
takast á við nýtt starf,“ segir Ólöf
Guðmundsdóttir að endingu.
mm
Smiðjuvellir 32 - 300 Akranes - Sími 431 5090 - Fax 431 5091 - www.apvest.is
Gleðilega páska
Opið um páskana e
ins og venjulega.
Sama góða þjónust
an eins og alla hina
dagana.
Skírdagur, 12-14.
Föstudagurinn la
ngi, 12-13, vakt lyfja
fræðings.
Laugardagur 15.
apríl, 10-14.
Páskadagur, 12-1
3, vakt lyfjafræðings
.
Annar í páskum,
12-13, vakt lyfjafræð
ings.
Áfram veginn þó á móti blási. Ljósm. úr einkasafni. Á góðri stund að njóta lífsins. Ljósm. úr einkasafni.
Í gönguferð á æskuslóðum. Á Hafnarfjalli í fyrrasumar.
Ljósm. Lilja Ósk Alexandersdóttir.