Skessuhorn - 11.04.2017, Page 16
ÞRIÐJUDAGUR 11. APRÍL 201716
Leikararnir Steinunn Jóhannes-
dóttir og Sigurður Karlsson ætla að
skipta með sér flutningi Passíusál-
manna í Hallgrímskirkju í Saurbæ
á föstudaginn langa, 14. apríl.
Áætla þau að hefja lestur klukkan
13:30 og áætla að ljúka honum um
klukkan 18:30. Um tónlistarflutn-
ing í upplestrarhléum sér Erla Rut
Káradóttir. Þau Steinunn og Sig-
urður eru bæði vel kunnug skáld-
skap Hallgríms Péturssonar og
sögu hans og Guðríðar Símonar-
dóttur, því þau léku hlutverk þeirra
hjóna í sýningu Þjóðleikhússins á
Tyrkja-Guddu, leikriti sr. Jakobs
Jónssonar, leikárið 1983-84. Hin
síðari ár hafa bæði fengist við rit-
störf hvort í sínu lagi. Steinunn
hefur m.a. fjallað um tímabil í ævi
Guðríðar og Hallgríms í heimilda-
skáldsögunum Reisubók Guðríðar
Símonardóttur og Heimanfylgju.
Sigurður hefur verið mikilvirk-
ur þýðandi bókmennta úr finnsku
og hlotið margvíslega viðurkenn-
ingu og lof fyrir verk sín. Reynd-
ar kom hann nýverið á skjá lands-
manna þegar hann lék föðurinn í
sjónvarpsþáttunum Föngum sem
sýndir voru á RUV. Steinunn og
Sigurður hafa aldrei leikið sam-
an eftir þennan flutning í Þjóð-
leikhúsinu árið 1984 fyrr en nú á
föstudaginn langa. Í gamni segjast
þau því ætla að endurnýja hjúskap-
arheitið frá uppfærslunni á Tyrkja-
Guddu.
Vísað til sögunnar
Vorið 1651 settust hjónin Hall-
grímur Pétursson og Guðríður
Símonardóttir að í Saurbæ á Hval-
fjarðarströnd þar sem Hallgrím-
ur tók við prestsskap. Þar áttu þau
eftir að lifa sín bestu ár saman og
þar vann Hallgrímur sín stærstu
afrek á sviði skáldskaparins. Hann
lauk við að yrkja Passíusálmana
árið 1659 og sendi þá kollega sín-
um til umsagnar, sr. Jóni Jóns-
syni á Melum í Melasveit. Sr. Jón
gaf sálmunum bestu meðmæli og
hvatti Hallgrím til þess að dreifa
þeim víðar til þess að „svoddan
ljós mætti fleirum lýsa“. Skáld-
ið tók til við að gera afrit vor-
ið 1660 og sendi Passíusálmana
þremur konum, sem hann þekkti
vel til, þeim Ragnhildi Árnadóttur,
sem fædd var og uppalin á Ytra-
Hólmi, Helgu Árnadóttur í Híta-
rdal og mágkonu hennar Kristínu
Jónsdóttur í Einarsnesi. Allar voru
konur þessar giftar lærðum mönn-
um. Ári síðar sendi Hallgrímur
fjórða handritið biskupsdótturinni
í Skálholti, Ragnheiði Brynjólfs-
dóttur.
Þegar Hallgrímur lauk við að
yrkja Passíusálmana var rúmlega
öld liðin frá því að Siðaskiptin
voru formlega lögfest á Íslandi.
Með Siðaskiptunum voru klaust-
ur lögð niður og aflétt einlífis-
kröfu presta, þeir máttu nú ganga
í hjónaband og til varð ný stétt,
stétt prestskvenna og prestsheim-
ili eða prestssetur urðu mennta-
og menningarmiðstöðvar, sem
konur veittu margvíslega forystu.
Fyrirmyndin var hjónaband fyrr-
um munksins og nunnunnar Mar-
teins Lúthers og Katarinu af Bora
og heimilishald þeirra í Witten-
berg. „Það er full ástæða til að
minnast þess hvernig skáldið Hall-
grímur Pétursson treysti á fulltingi
kvenna við það að útbreiða hróður
Passíusálmanna. Og það er ástæða
til þess að minna á hlutverk prests-
konunnar á 17. öld, þ.á.m. konu
skáldsins, Guðríðar Símonardótt-
ur,“ segir Steinunn Jóhannesdótt-
ir. mm
Endurnýja hjúskaparheitið við altari Hallgrímskirkju
Svipmynd úr uppfærslu á leikritinu um Tyrkja-Guddu í Þjóðleikhúsinu 1983-84.Uppstillt mynd tekin í Hallgrímskirkju í Saurbæ í síðustu viku þegar Steinunn og
Sigurður æfðu lesturinn. Ljósm. mm.
Það hvílir mikill hátíðleiki yfir lestri Passíusálmanna í Saurbæ á föstudaginn
langa. Það er prestakallið sem stendur fyrir viðburðinum en Steinunn Jó-
hannesdóttir skipuleggur.
Á síðasta ári voru skráðir 69 nýir
gististaðir á Vesturlandi og það
sem af er árinu 2017 hefur Heil-
brigðiseftirlit Vesturlands gef-
ið út 18 starfsleyfi vegna heima-
gistingar og 15 til viðbótar bíða
afgreiðslu. Því hefur verið sótt
um samtals 33 leyfi frá áramót-
um. Þetta kom fram í máli Helga
Helgasonar, framkvæmdastjóra
HeV, á aðalfundi Heilbrigðis-
nefndar Vesturlands miðvikudag-
inn 29. mars síðastliðinn. Miðað
við þetta kvaðst hann ekki eiga
von á öðru en að skráðum gisti-
stöðum á Vesturlandi myndi fjölga
verulega árið 2017, miðað við síð-
asta ár.
Starfsmönnum eftirlitsins hef-
ur ekki fjölgað, þeir eru eftir sem
áður aðeins tveir. Hafði Helgi því
orð á því að álagið væri orðið mik-
ið á starfsfólkið. „Það er orðin dá-
lítið mikil yfirkeyrsla í eftirlitinu,
það verður bara að segjast alveg
eins og er. Verkefnum er alltaf
að fjölga,“ sagði Helgi á fundin-
um og tók heimagistinguna sem
dæmi. „Nýjasta verkefnið, heima-
gisting, er að verða algjör martröð
í eftirliti. Gefin hafa verið út 18
starfsleyfi frá áramótum í heima-
gistingu og 15 bíða afgreiðslu.
Sennilega hefur aldrei verið jafn
langur skussalisti hjá eftirlitinu og
þessa dagana,“ sagði Helgi.
Jafnframt gagnrýndi hann ný
gistihúsalög, sem tóku gildi um
áramótin. Einföldun og skilvirkni
hefðu verið yfirlýst markmið
þeirrar lagasetningar en Helgi
sagði aftur á móti að einföldunin
væri engin, skilvirknin mjög slæm
og að menn vissu ekkert hvernig
þeir ættu eftir að fara eftir lög-
gjöfinni. kgk
Stefnir í mikla fjölgun gististaða
Á síðasta ári komu tæplega 1,8 millj-
ónir ferðamanna til landsins. Lang-
flestir þeirra, eða um níu af hverjum
tíu, gistu í Reykjavík á ferð sinni, að
jafnaði í fjórar til sex nætur. Sam-
kvæmt því voru gistinætur í borg-
inni í fyrra um 5,2 milljónir og má
lauslega áætla að ferðamenn hafi
eytt 160 milljörðum króna miðað
við fjölda gistinátta og 30 þúsund
kr. meðalútgjöld á dag. Í tilkynn-
ingu frá Höfuðborgarstofu segir
að reynsla ferðamanna af Reykja-
vík árið 2016 hafi verið mjög jákvæð
en níu af hverjum tíu sumargest-
um og tæplega 92% gesta að vetri
töldu reynsluna af borginni frábæra
eða góða. Einungis 1% töldu hana
slæma. Þessi niðurstaða hefur já-
kvæða áhrif á upplifun ferðafólks af
landinu í heild og því afar ánægjuleg
fyrir ferðaþjónustu á landsbyggð-
inni í ljósi þess að flestir erlendir
ferðamenn gista hluta úr ferð sinni
í Reykjavík.
Í könnuninni segjast ferðamenn
ætla að mæla með borginni við
aðra, eða 96% gesta utan sumar-
tíma og 94% sumargesta. Erlendir
gestir borgarinnar eru ánægðastir
með sundlaugarnar af þeim þáttum
sem spurt var um. Þetta kemur fram
í könnun sem nefnist Dear Visitors
og Rannsóknir og ráðgjöf ferða-
þjónustunnar (RFF) framkvæmdi
fyrir Höfuðborgarstofu á síðasta ári.
Könnunin var gerð meðal erlendra
gesta við brottför frá landinu í Leifs-
stöð en alls fengust þrjú þúsund gild
svör. Niðurstöðurnar eru jafnframt
fengnar úr greinagerð sem byggir
á sambærilegum könnunum (RFF)
fyrir Höfuðborgarstofu í þrettán ár
eða frá 2004-2016.
mm/ Ljósm. Ragnar Th.
Höfuðborgin fær jákvæða umsögn
erlendra ferðamanna