Skessuhorn - 11.04.2017, Síða 18
ÞRIÐJUDAGUR 11. APRÍL 201718
Á síðasta ári voru 20.734 nýskráð-
ir bílar hér á landi sem er þriðjungs
aukning frá árinu áður. Þar að auki
voru nýskráðir hér á landi 1.702
bílar sem áður höfðu verið skráð-
ir erlendis. Helmingur nýrra bíla
voru bílaleigubílar. Nýskráðir hóp-
bílar voru 235 auk þess sem fluttir
voru inn 198 notaðir hópbílar. Velta
í sölu nýrra bíla nam 121 milljarði
kr. 2016 og jókst um fjórðung frá
árinu áður.
Í Árbók bílgreina 2017, sem
Rannsóknasetur verslunarinn-
ar gefur út, má sjá að tekjur ríkis-
ins af bílgreinum 2016 hafi numið
tæplega 38 milljörðum króna. Þær
hafi skipst þannig að vörugjöld af
bensíni og dísilolíu hafi numið 22
milljörðum króna, vörugjöld vegna
innfluttra bifreiða 8,4 millj. kr, bif-
reiða- og úrvinnslugjöld 6,6 millj-
arðar kr. og vanrækslugjöld 383
millj. kr. Skráningargjöld vegna ný-
skráninga og eigendaskipta numu
368 millj. kr og umferðaöryggis-
gjald 156 millj. kr.
Fjöldi innfluttra nýrra og not-
aðra atvinnubíla 2016 var eftirfar-
andi: Sendibílar voru 1.773 nýir og
776 notaðir, 235 nýir og 198 notað-
ir hópbílar og 215 nýir og 206 not-
aðir vörubílar.
Þá kemur fram í Árbók bílgreina
að 76% allra nýrra bíla á Íslandi
2016 voru „litlausir“, þ.e. skráðir
í litunum grár, hvítur eða svartur.
Grái liturinn er langvinsælastur.
Til gamans má geta þess að eng-
inn bleikur bíll var fluttur til lands-
ins árin 2015 og 2016. Einnig kem-
ur fram að meðalaldur fólksbifreiða
á skrá í árslok 2016 var 12,5 ár,
nýir bílar losuðu að meðaltali 26%
minna koltvíoxíð út í andrúmsloftið
en nýir bílar árið 2010. mm
Sitthvað um bílainnflutning
í Árbók bílgreina
Í
Árbók bílgreina kemur m.a. fram að ekki var fluttur inn einn bleikur bíll árin 2015
og 2016.
Einn gamall og góður á sýningu á Akranesi fyrir nokkrum árum. Ljósm. úr safni.
Hin árlega stórsýningu Bifhjólafj-
elagsins Rafta og Fornbílafjelags
Borgarfjarðar í Brákarey í Borgar-
nesi verður laugardaginn 13. maí
klukkan 13 til 17. Sýningin hef-
ur fyrir margt löngu skapað sér
verðugan sess meðal áhugafólks
um bíla og mótorhjól. Þessi dag-
ar er til að mynda sá sem marg-
ir viðra fáka sína fyrst úr vetrar-
geymslunni. Af þeim sökum má sjá
hundruði óvenjulegra ökutækja á
ferðinni og á leið í Borgarnes.
„Það er góðæri í landinu þann-
ig að við höfum aldrei fengið jafn
marga sýningaraðila til að verða
með okkur og nú. Þeir verða alls
16 talsins. Þetta er bæði hjólaum-
boð, útivistaraðilar og sölufólk
með verkfæri og vörur af ýmsu
tagi. Fjórhjól og sexhjól verða fyr-
ir bændur og búalið auk t.d. smur-
efna og efna til að hreinsa ryð og
lakk,“ segir Unnar Bjartmarsson
sem undirbýr nú hátíðina af krafti
ásamt fleirum Röftum og fornbíla-
félögum. Unnar segir að Hilm-
ar Lúthersson Snigill númer eitt
verði í Raftaheimilinu með brot af
þeim hjólum sem hann hefur gert
upp um ævina, en þau eru orðin
æði mörg og gaman að geta heiðr-
að karlinn aðeins. Þá er uLata-
bæjarökutækin komin í Borgar-
nes og verða þau til sýnis. Á vel
við að þau séu komin í Borgarnes
þar sem Magnús Scheving íþrótta-
álfur og frumkvöðull sleit barns-
skónum. „Camaro verður 50 ára á
árinu og munum við að sjálfsögðu
halda upp á það. Svifnökkvi verð-
ur á Borgarfirðinum þennan dag
og mun hann taka með sér farþega
á rúntinn. Háfjara er um klukkan
13:30 svo það verða kjöraðstæður
til að kynna nökkvann bæði á sjó
og sandi,“ segir Unnar.
Hann segir að sjálfsögðu von-
ast við til þess að veðrið verði gott
svo fornbílar og mótorhjól flykk-
ist til þeirra í Borgarnes, það sé
eiginlega partur af sýningunni
líka. „Við höfum verið að reyna
að breikka flóruna á sýningunni
til þess að fólk sjái eitthvað nýtt
og ferskt á hverju ári. Aðgangur
er að sjálfsögðu ókeypis en kaffi
og vöfflusala verður á staðnum,“
segir Unnar. Aðstaða klúbbanna í
Brákarey er sífellt að batna enda
töluverð vinna búin að fara fram.
Unnar segir mörg handtök þó eft-
ir fram á sýningardag en kveðst
hlakka til góðs dags. mm
Stórsýning Rafta og
Fornbílafjelagsins verður
13. maí í Brákarey
Eldri bílar af ýmsu tagi verða til sýnis í Brákarey.
Pússaðir vélfákar í hundraðatali í Borgarnesi á síðasta ári.
Í liðinni viku var Sigurfari - sigl-
ingafélag Akraness formlega tek-
ið inn í Íþróttabandalag Akraness
á aðalfundi ÍA. Þar með er félagið
orðið fullgilt aðildarfélag. Sig-
urfari var stofnaður í mars á síð-
asta ári og hefur félagið vaxið og
dafnað síðan þá. Fyrsti formaður
var Eyjólfur Magnús Eyjólfsson.
Hann gaf ekki kost á sér til starfa
og var Guðmundur Benediktsson
kosinn formaður félagsins á síð-
asta aðalfundi.
Guðmundur segir í samtali við
Skessuhorn að markmið félagsins
sé að vekja áhuga á og stuðla að
iðkun sjóíþrótta af öllu tagi, hvort
sem menn velja að synda, róa, nota
vindinn á ýmsan máta, eða nota
vélarafl. „Félagið er ekki ríkt af
veraldlegum eignum enn sem kom-
ið er. Okkur vantar húsnæði undir
félagsaðstöðu þar sem hægt er að
geyma jafnvel smærri báta, vesti og
ýmsar græjur sem fylgja íþróttinni.
Á stefnuskránni er að eignast báta
og búnað til kennslu og jafnvel út-
leigu,“ segir Guðmundur.
Í sumar er ætlunin er ætlunin að
halda siglinganámskeið fyrir byrj-
endur á aldrinum 10-14 ára. „Sigl-
ingaklúbburinn Brokey í Reykja-
vík hefur samþykkt að lána til þess
seglbáta af gerðinni Topper Topaz
sem henta vel til kennslu. Við njót-
um mikillar velvildar Siglingasam-
bands Íslands og Brokeyjar og sigl-
ingaklúbbsins Þyts í Hafnarfirði,
en þessir klúbbar hafa sýnt mikinn
áhuga á þessu starfi hér á Skagan-
um. Siglingasamband íslands færði
okkur m.a. kennsluefni um sigling-
ar, sem dreift var á bókasöfn bæjar-
ins, og klúbbarnir eru tilbúnir að
útvega okkur siglingaþjálfara og
jafnvel þjálfa einhvern héðan í það
embætti,“ segir Guðmundur.
„Við ætlum að reyna að hafa
starfið eins sýnilegt og hægt er
í sumar, m.a. með því að gefa al-
menningi kost á að reyna sig á
seglskútum, kajökum og öðru sem
félagsmenn hafa að bjóða. Faxa-
flóamót kjölbáta fer fram seinni
partinn í júní eins og síðustu ár.
Síðasta sumar vorum við kepp-
endum innan handar með aðstöðu
og líkaði þeim það mjög vel. Þetta
verður endurtekið í ár og Brokey-
ingar, sem standa að baki þessari
keppni, hafa lýst áhuga á að gera
meira úr þessum atburði til að
styrkja starf okkar Sigurfarafólks,“
segir Guðmundur Benediktsson
að endingu.
Rétt er að benda á Facebook síðu
Sigurfara og heimasíðuna, http://
ia.is/sigurfari/ en þar eru viðburðir
næstu mánaða kynntir.
mm/ Ljósm. úr safni.
Sigurfari orðið fullgilt aðildarfélag
Íþróttabandalags Akraness
Feðgar á gæðastund. Gísli rakari og sonur hans á veiðum á kajak skammt frá
ströndinni á Akranesi.
Skúturnar frá Brokey á móti á Akranesi.