Skessuhorn - 11.04.2017, Qupperneq 23
ÞRIÐJUDAGUR 11. APRÍL 2017 23
Krossgáta Skessuhorns
Hér er ný krossgáta fyrir lesendur að leysa. Auk þess birt-
um við lausn á krossgátu síðustu viku. Þeir sem vilja geta
sent Skessuhorni lausnarorð/in á netfangið: krossgata@
skessuhorn.is fyrir klukkan 15 á mánudögum. Athug-
ið að fullt nafn og heimilisfang þarf að fylgja með lausn-
inni. Þeir sem ekki hafa aðgang að tölvupósti sendi lausnir
á: „Skessuhorn - krossgáta, Kirkjubraut 56, 300 Akranesi
(póstleggja þarf lausnir í síðasta lagi á föstudegi). Dreg-
ið verður úr réttum innsendum lausnum og fær vinnings-
hafinn bókargjöf frá Skessuhorni; „Pétrísk íslensk orðabók
með alfræðiívafi,“ eftir sr. Pétur Þorsteinsson.
Alls bárust 63 lausnir við krossgátunni í blaðinu í síðus-
tu viku. Lausnin var: „Starfsemi.“ Vinningshafi er Birgir
Óskarsson, Asparfelli 6, 111 Reykjavík.
Bæn
Von
Þys
Blað
Glaður
Eðli
Skæði
Góðar
Augn-
hár
Lærðu
Birta
Fann
leið
Harð-
indi
Flan
1050
Læti
Elfur
Skýr
Hand-
fjötlun
1
Rödd
Á fæti
Gruna
Frelsi
Hvíldi
5 9
Kylfa
Grípa
Ljúfur
Þegar
Málmur
Há-
sæti
Einn
Offur
Brenna
Hindrun
Kona
Hnoða
Spann
Áköf
Algleymi
Berg-
málar
Sniðug
3 Bein
Sk.st.
Rölta
Loforð
Reykur
Félag-
ar
Röð
Einstigi
Haka
Píla
8 Flýtir
Suddi
Mat
Ferskur
Villt
Blíða
Þula
Fas
Bit
Ágóða
Pípur
Svefn
Ílát
Utan
Sér eftir
Nettur
Tölur
Á skipi
Tónn
Korn
Fá-
dæma
Morgunn
Einkum
Þys
2 Sigrar
Hægar
Hávaði
6
Áburður
Utan
Átt
Samhlj.
Fræg
Depill
Ekki
Duft
Ellegar
Dýrka
Leit
Étandi
Tölur
Líka
4
Þar til
Samhlj.
Stytta
For-
faðir
Eyða
Raki
Krókur
7
1 2 3 4 5 6 7 8 9
M V
I L M K V O Ð A V I T U N D
Ð A U Á L N Í P A G A R
N Æ R F E L L D U R K L Á R
I Ð G L I T I V U A G I
V O Ð Á A F R E K Æ S
E R Í T U R S K Ý N O T A
R Æ S A R A M A S U D D I R
T Æ R Ó S Á R A R E D R Ú
A U Ð U G T Ö M M I L
B U R I N N A Ð A U I O F
Ð D R Ý P U R L A K K U
N Á R I T A L A L D N A R
U N U N K A R L H A Ö R
I L A R T Ö R M R Ó T
M A L U R U N G A R Ó R
Ó L A R P E N A R K L A S A
Á Ð U G A R N A A Á U E U
I R A R N A Ú R R Æ Ð I Ð
S T A R F S E M I
L
A
U
S
N
Ú
R
S
ÍÐ
A
S
T
A
B
L
A
Ð
I
Í Dölum er í undirbúningi ferða-
þjónustuverkefnið Iceland Up Close
- Vetur og myrkur í Haukadal. Eins
og nafnið gefur til kynna er um að
ræða verkefni í vetrarferðaþjónustu
og að því standa Bjarnheiður Jó-
hannsdóttir og Reynir Guðbrands-
son á Jörva, Ásta Ósk Sigurðardóttir
og Jóel Bæring Jónsson á Saursstöð-
um og Sigurbjörg Kristmundsdóttir
og Pétur Guðsteinsson á Giljalandi.
„Okkur langar að bjóða upp á ferðir á
haustin og veturna, gera út á myrkrið,
nánd við náttúruna og bjóða fólki að
taka þátt í því sem er að gerast í sveit-
inni,“ segir Bjarnheiður á Jörva í sam-
tali við Skessuhorn. „Á öllum bæjun-
um þremur er gisting í smáum stíl og
við höfum hugsað okkur að starfa að
Iceland Up Close utan háannatíma
í ferðaþjónustu. Starfsemi verður
þannig í október og nóvember og síð-
an aftur í febrúar og mars. Með þessu
sjáum við tækifæri til að lengja tíma-
bilið og gera ferðaþjónustuna nær því
að vera heilsársstarf hjá okkur,“ seg-
ir hún.
Þemað verður að sögn Bjarnheið-
ar vetur, myrkur, þögn og rólegheit.
„Hugsunin er að bjóða upp á öðru-
vísi ferðir, rólegheitaferðir, göngu-
ferðir í nágrenninu. Hér verður eng-
inn asi og allt fær sinn tíma. Hóparnir
verða litlir, helst viljum við ekki taka á
móti mikið fleiri en tíu manns í einu.
Það skiptir okkur máli að umgjörðin
sé afslöppuð, þjónustan persónuleg
og fólk fái að kynnast okkur svolítið,“
segir hún.
Á þróunarstigi
Að sögn Bjarnheiðar er verkefnið enn
á þróunarstigi og því langt því frá að
vera fullmótað. „Til dæmis höfum
við ekki ákveðið hvort við munum
gera út á norðurljósin sérstaklega.
Myrkrið verður aðalatriðið en við
erum ekki viss hvort ferðamenn sem
ekki þekkja til hér á landi átti sig á því
að myrkrinu fylgja norðurljós,“ segir
hún. „Hins vegar erum við hér í dal
þar sem eru sárafáir bæir og nánast
engin ljósmengun. Það er því mik-
ið myrkur og þar með sjást norður-
ljósin mjög vel, sem og stjörnubjart-
ur himininn. Það er sú upplifun sem
okkur langar að fanga en við eigum
eftir að kanna það betur hvort næg-
ir að gera út á myrkrið eða hvort við
þurfum að vekja athygli á norðurljós-
unum og stjörnubjörtum himninum
í sömu andrá,“ segir Bjarnheiður.
Prufuferðir í haust
Aðspurð segir Bjarnheiður að stefnt
sé að því að hleypa verkefninu af
stokkunum næsta vetur. „Þar sem við
erum enn á þróunarstigi þá erum við
ekkert farin að bjóða ferðir til sölu.
Verkefni sem þetta þarf að fá tíma í
mótun ef ætlunin er að gera þetta al-
mennilega. En stefnan er að koma á
prufuferðum í haust, breyta síðan því
sem þarf í samræmi við þá reynslu og
fara síðan af stað af fullum krafti eftir
áramót,“ segir hún og vonast að sjálf-
sögðu til að Iceland Up Close festi
sig í sessi sem afþreyingarmögu-
leiki í Dölum. „Það sárvantar afþrey-
ingu fyrir ferðamenn í Dalina, þar er
nóg pláss til að bæta við. Til dæm-
is er engin ferðaskrifstofa starfandi í
sveitarfélaginu og aðeins tveir ferða-
skipuleggjendur með skráð leyfi.
Þannig að við Dalamenn megum
spýta í lófana þegar kemur að afþrey-
ingu og ég vona að þetta verkefni
okkar verði einn af mörgum afþrey-
ingarmöguleikum í Dölum í fram-
tíðinni,“ segir Bjarnheiður Jóhanns-
dóttir að lokum.
kgk/ Ljósm. Dagur Þórarinsson.
Vetur og myrkur í Haukadal
Haukadalur að nóttu
til. Myndin er tekin við
afleggjarann heim að Jörva.