Skessuhorn - 11.04.2017, Síða 25
ÞRIÐJUDAGUR 11. APRÍL 2017 25
Tveir líffræðingar (par) sem eru
ólmir í að ganga í rannsóknar-
störf í Ólafsvík leita að leiguhús-
næði
Við erum tveir líffræðingar (par),
Jóhann og Jónína, sem störfum hjá
Hafrannsóknastofnun og erum bú-
sett í Reykjavík. Við komum til með
að hefja störf í starfstöðinni í Ólafs-
vík um leið og okkur hefur tekist
að finna hentugt leiguhúsnæði.
Við erum reyklaus og róleg og
mikið útivistarfólk. Við erum barn-
laus enn sem komið er og þurfum
því ekki mikið pláss en erum opin
fyrir öllum möguleikum. Vonin
er að finna húsnæði í Ólafsvík en
við erum einnig tilbúin að skoða
möguleika fyrir utan bæjarfélagið
ef einhverjir eru. Það má ná í okkur
í síma 866-7092/848-7023 eða
með tölvupóst jonina.herdis.olafs-
dottir@hafogvatn.is.
Óska eftir húsnæði
Óska eftir húsnæði til leigu sem
fyrst á Akranesi eða rétt fyrir utan.
Arco1366@gmail.com.
Óskum eftir húsnæði á Akranesi
Hjón með tvö börn óska eftir 4. her-
bergja íbúð til leigu sem fyrst. Erum
að flytja til Íslands frá Danmörku
eftir 14 ára búsetu. Erum reglusöm
og skilvís. Vinsamlegast hafið sam-
band í síma 856-2999, Jörgen.
Óskum eftir húsnæði í Borgarnesi
Hjón með eitt barn óska eftir 3-4
herbergja húsnæði, helst lang-
tímaleigu. Erum reglusöm og skilvís.
Vinsamlegast hafið samband í síma
848-2318 Þórir eða 849-2835 María.
Óska eftir húsnæði
Erum hjón með 3 börn sem óska
eftir húsnæði til leigu sem fyrst á
Akranesi eða rétt fyrir utan, helst
með 4 svefnherbergjum. rakel-
osk92@hotmail.com.
Heil húseign allt að 8 svefnher-
bergi
Til leigu er Heiðarbraut 57
Akranesi, um er að ræða hús með
allt að 8 herbergjum, tvö baðher-
bergi og eldhús. Gæti hentað fyrir
verktaka eða fyrirtæki sem vantar
húsnæði fyrir starfsfólk. Eignin
er laus strax. upplýsingar í síma
775-3939, Geir.
Hnífabrýningar
Brýni flestar gerðir bitjárna. Er á
Akranesi. Uppl. í síma 894-0073.
Markaðstorg Vesturlands
LEIGUMARKAÐUR
Hvalfjarðarsveit -
þriðjudagur 11. apríl
Páskaliljusala kvenfélagsins
Lilju. Dagana 11. og 12. apríl nk.
verða konur úr kvenfélaginu
Lilju á ferð um Hvalfjarðarsveit
að selja páskaliljur. Allur ágóði af
sölunni rennur til Björgunarfélags
Akraness. „Við hvetjum ykkur til
að taka vel á móti sölukonum nú
sem endranær,“ segir í tilkynn-
ingu.
Stykkishólmur -
þriðjudagur 11. apríl
Kynningarfundur strandhreinsi-
verkefnis í Ráðhússloftinu kl. 15.
Snæfellsnes hefur verið valið sem
fyrsta íslenska svæðið fyrir sam-
norræna strandhreinsiverkefnið
Nordic Costal Cleanup 2017.
Verkefnið er í undirbúningi en
þann 6. maí næstkomandi munu
sjálfboðaliðar ganga fyrirfram
ákveðnar strandlengjur og tína
rusl sem verður flokkað og sent í
endurvinnslu. Kynntu þér málið á
fundinum!
Dalabyggð -
þriðjudagur 11. apríl
Íbúafundur verður haldinn í Dala-
búð og hefst kl. 20. Á dagskrá eru
ársreikningur Dalabyggðar árið
2016, fjárhags- og framkvæmda-
áætlun árið 2017, lagning ljós-
leiðara ofl. Íbúar Dalabyggðar eru
hvattir til að mæta á fundinn og
taka þátt í umræðum.
Grundarfjörður -
miðvikudagur 12. apríl
Kynningarfundur strandhreinsi-
verkefnis skrifstofu Svæðisgarðs-
ins kl. 15. Snæfellsnes hefur verið
valið sem fyrsta íslenska svæðið
fyrir samnorræna strandhreinsi-
verkefnið Nordic Costal Cleanup
2017. Verkefnið er í undirbúningi
en þann 6. maí næstkomandi
munu sjálfboðaliðar ganga fyrir-
fram ákveðnar strandlengjur og
tína rusl sem verður flokkað og
sent í endurvinnslu. Kynntu þér
málið á fundinum.
Helgafellssveit -
fimmtudagur 13. apríl
Páskamótið í PÍTRÓ í Setrinu
kl. 20. Spilað verður með sama
sniði og á Íslandsmótinu. Allir
velkomnir, bæði spilamenn og
áhorfendur. Verðlaun í boði BB &
sona. Spilagjald 1.000 kr. á mann.
Kaffi á könnunni.
Grundarfjörður -
sunnudagur 16. apríl
Sænsk ungmenni í Grundar-
fjarðarkirkju kl. 17. Vikarbyn og
Vattnäs spelmannslag er hópur
23 ungmenna sem spila á fiðlu.
Þau eru á aldrinum 13-15 ára.
Hópurinn spilar hefðbundna
tónlist frá Dalarna, Svíþjóð og
öðrum norðurlöndum auk írskra
þjóðlaga. Verið velkomin að
hlusta á mjúka polska, ljúfa valsa,
hressa skottísa og önnur danslög
sem svo oft hljóma í félagsheim-
ilum sveitarfélags þeirra.
Nýfæddir Vestlendingar
Á döfinni
6. apríl. Drengur. Þyngd 4.242 gr.
Lengd 57 sm. Foreldrar: Dagný
Vilhjálmsdóttir og Sigurður
Ólafsson, Reykholti. Ljósmóðir:
Helga R. Höskuldsdóttir.
8. apríl. Drengur. Þyngd 4.120
gr. Lengd 55 sm. Foreldrar:
Ragnheiður D. Benidiktsdóttir og
Svavar Áslaugsson, Grundarfirði.
Ljósmóðir: Erla Björk Ólafsdóttir.
Pennagrein
ÝMISLEGT
Í síðasta tölublaði var
fæðingarþyngd eins
barns misrituð. Beðist er
velvirðingar á þessum
mistökum og hér er myndin
af nýburanum endurbirt
með réttri þyngd.
3. apríl. Stúlka. Þyngd 3.164 gr.
Lengd 50 sm. Foreldrar: Berglind
Björk Gunnarsdóttir og Ólafur Elí
Hjartarson, Akranesi. Ljósmóðir:
Valgerður Ólafsdóttir.
LEIÐRÉTTING
„Dauðdóm sinn kvað hann upp og
glotti/ Þorpsbúa hann hafði að háði
og spotti.“ Þannig segir í ágætum
texta um örlög fiskvinnslufólks. Nú
er stefnan að leggja fiskvinnslu í rúst
á Akranesi í annað sinn. Bætist Ski-
paskagi á langan lista byggðarlaga
þar sem er sviðin jörð eftir kvótakerf-
ið. Hringinn í kringum landið búa
menn við nagandi óvissu um að kvót-
inn hverfi í þorpunum, eða bíða eft-
ir ölmusu í nafni byggðakvóta. Með
lögum um stjórn fiskveiða hafa mörg
byggðalög farið mjög illa ef ekki ver-
ið lögð í eyði.
Meðfylgjandi tafla gefur mynd af
því hvernig staðan var fljótlega eftir
að kvótakerfið var sett á. Gott er að
sjá hver hlutur Vesturlands og Vest-
fjarða er myndarlegur áður en Hafró
týndi 354 þúsund tonnum af þorski.
Breytingin til dagsins í dag er svaka-
leg. Það er hverjum landsbyggðar-
þingmanni til skammar að hafa varið
kvótakerfið og þá skortveiði sem það
boðar. Gleymum því ekki að fyrir daga
kvótakerfisins veiddum við u.þ.b 400
þúsund tonn áratugum saman. Það er
smjörklípa að segja að illa hafi verið
farið með afla áður fyrr. Sambærilegt
magn í dag myndi fá góða meðferð
og virðisauka. Kvótinn var settur á til
að „vernda“ stofnana var sagt. Dæmi
nú hver fyrir sig. Veiðin er u.þ.b. 240
þúsund tonn. En hafið er fullt af fiski
og fólki bann-
að að bjarga sér.
T.d. er einn bát-
ur frá Akranesi á
þorksnetum þeg-
ar flóinn er fullur
af fiski. Svo segja
menn á sama tíma
að fé vanti í inn-
viði. Gleymum því ekki að þessir inn-
viðir voru byggðir upp með fiskveið-
um og sölu fiskafurða. Guðmundur
Kjærnested, sú mikla hetja, er barð-
ist fyrir okkur í þorskastríðunum gaf
kvótakerfinu ekki háa einkunn. Til
hvers var barist, sagði hann, ef auð-
lindin er á fárra höndum.
Skagamenn og góðir landsmenn!
Losum okkur við óréttlátt kvóta-
kerfi í fiskveiðum og bindum veiðar
við byggðarlögin og leyfum fólki að
bjarga sér. Með stórauknum veiðum
þarf ekkert veiðigjald. Virðisaukinn
og veltan kemur í gegnum veiðarnar
og blómlegt mannlíf í sveltum byggð-
um þessa lands. Tökum höndum
saman og leggjum þessa viðurstyggð
af sem kvótakerfið er. Landsbyggð-
arþingmenn verða að fara að standa
undir nafni og hætta að verja þetta
kerfi. Varðmenn kvótakerfis leynast
víða því miður. Nú er nóg komið.
Stefán Skafti Steinólfsson.
Fréttaveita Vesturlands
www.skessuhorn.is
Þjóðarmeinið kvótakerfi
í sjávarútvegi
Getir þú barn þá birtist það
hér, þ.e.a.s. barnið!
www.skessuhorn.is