Skessuhorn


Skessuhorn - 24.05.2017, Blaðsíða 25

Skessuhorn - 24.05.2017, Blaðsíða 25
MIÐVIKUDAGUR 24. MAÍ 2017 25 Kokkur í Borgarfirði Ferðaþjónustan Staðarhúsum ehf. óskar eftir að ráða kokk í rúmlega 50% starf í sumar. Erum staðsett 15 km norðan við Borgarnes. Nánari upplýsingar í síma 865-7578. Engin krafa um menntun. stadarhus@ gmail.com Hraust, stundvíst og hresst fólk óskast til starfa Eigum við samleið? Óskum eftir fólki til sumarafleysinga og fram- tíðarstarfa við laxvinnslu. Við erum að hausa, flaka, snyrta, beinhreinsa og pakka fullt af laxi aðallega til útflutnings á ferskum og unnum íslenskum laxi. Önnur tilfallandi störf við framleiðslu. Hafðu sam- band með því að senda tölvupóst á edalfiskur@edalfiskur.is og tölum saman. 26 ára kona frá Pakistan óskar eftir starfi Ammara Asam Ghani er ung kona frá Pakistan sem óskar eftir að starfa til lengri tíma í Borgarbyggð. Amm- ara er að læra enskar bókmenntir í háskólanum í Punjab Lahore en hefur áhuga á að flytja til Íslands þar sem maðurinn hennar býr í Borgar- byggð. Áhugasamir hafið samband við Andra í síma 775-9077. Óska eftir íbúð Hjón með eitt lítið barn óska eftir íbúð til leigu í Borgarnesi í langan tíma. Malgo: 786-1548. Húsnæði óskast Hjón með 3 börn óska eftir leigu- húsnæði í Borgarnesi. Anna 865-1873. Sammi 892-2944. Óska eftir húsnæði Er einstæð með 3 börn, vantar íbúð sem fyrst á Akranesi, 3-4 herbergja. Er með öruggar tekjur og borga alltaf á réttum tíma. rakelosk92@ hotmail.com Óska eftir hornsófa eða sófa með tungu Verður að vera með frekar háu baki og harðri setu. Helst ekki eldri en 2ja til 3ja ára. Vinsamlegast sendið tölvupóst: linus069@gmail.com eða hringið í síma 865-7133. Hnífabrýningar Brýni flestar gerðir bitjárna. Er á Akranesi. Uppl. í síma 894-0073. Markaðstorg Vesturlands ATVINNA Í BOÐIStykkishólmur - miðvikudagur 24. maí Heimiliskötturinn – Drápsvél í krútt- búningi? Menja von Schmalensee, Náttúrustofu Vesturlands fjallar um að kettir eru veiðiklær sem geta haft neikvæð áhrif á dýr. Rætt verður um áhrif þeirra, sambandið við manninn og hvað hægt sé að gera til að takmarka neikvæð áhrif katta. Fyrirlesturinn verður haldinn á efstu hæð ráðhúss Stykkishólms- bæjar kl. 20. Aðgangur ókeypis. Borgarbyggð - fimmtudagur 25. maí Hátíðarmessa á kirkjudegi í Borgar- neskirkju kl. 14. Vígslubiskupinn í Skálholti séra Kristján Valur Ingólfs- son heimsækir söfnuðinn á kirkju- degi, en kirkjudagur er vígsludagur kirkjunnar. Hann predikar og þjónar fyrir altari ásamt sóknarpresti. Kirkjukórinn syngur undir stjórn Steinunnar Árnadóttur. Velkomin í þakkargjörð fyrir helgidóm okkar, kirkju og kristni. Akranes - fimmtudagur 25. maí Guðsþjónusta í Akraneskirkju kl. 14 – Dagur aldraðra – Sr. Þráinn Har- aldsson þjónar. Hljómur, kór eldri borgara syngur. Stjórnandi Hljóms er Lárus Sighvatsson. Organisti Sveinn Arnar Sæmundsson. Borgarbyggð - fimmtudagur 25. maí Drengjakór Reykjavíkur lýkur starfs- ári með tónleikum í Reykholtskirkju í Borgarfirði á Uppstigningardag kl. 17. Um blandaða dagskrá verður að ræða, létt lög héðan og þaðan. Allir eru velkomnir, enginn aðgangseyrir. Borgarbyggð - fimmtudagur 25. maí Mugison í Englendingavík í Borgar- nesi kl. 21. Mugison og hljómsveit spiluðu á alltof fáum tónleikum þegar þau fylgdu eftir síðustu plötu kappans, Enjoy! fyrir síðustu jól. Það var mál manna og kvenna að hljómsveitin hafi aldrei hljómað betur, Rósa Sveinsdóttir bættist í hópinn í fyrra og spilar á saxafón. Þá hafa þau Tobbi og Rósa tekið uppá því að radda eins og englakór í fallegu lögunum - og Addi og Guðni halda ballestinni eins og sannir skriðdrekar. Mugison er þekktur fyrir kraftmikla og einlæga sviðsframkomu - allt lagt í sölurnar á hverjum einustu tónleikum. Þetta er einstakt tækifæri til þess að upp- lifa tónlist sem spannar allan tilfinn- ingaskalann. Ekki missa af þessu! Miðaverð er 4.500.- Borgarbyggð - laugardagur 27. maí Hestamannafélögin Faxi og Skuggi halda sitt árlega gæðingamót. Mótið verður haldið á félagssvæði Skugga við Vindás og hefst kl. 9. Mótið er jafnframt úrtaka fyrir FM 2017. Akranes - laugardagur 27. maí ÍA mætir HK/Víkingi í 1. deild kvenna á Jaðarsbökkum klukkan 14. Akranes - sunnudagur 28. maí Guðsþjónusta í Akraneskirkju kl. 11. Sr. Eðvarð Ingólfsson þjónar. Sveinn Arnar Sæmundsson og félagar úr Kór Akraneskirkju. Dalabyggð - mánudagur 29. maí Sælingsdalslaug verður lokuð 29. maí - 2. júní vegna árlegs viðhalds og námskeiða starfsmanna. Akranes - þriðjudagur 30. maí Skagamenn taka á móti Gróttu í 16-liða-úrslitum Borgunarbikars karla kl. 19:15. Aðeins eru skráðar sex viðureignir milli þessara félaga, en Skaginn hefur unnið þær allar með markatölunni 19-4. Síðasti skráði leikur var 2011. Mætum öll á völlinn og styðjum strákana til sigurs. Áfram ÍA! Nýfæddir Vestlendingar Á döfinni 9. maí. Drengur. Þyngd 4.180 gr. Lengd 53 sm. Foreldrar: Írena Líf Styrkársdóttir og Andri Kárason, Mosfellsbæ. Ljósmóðir: Hrafnhildur Ólafsdóttir. 14. maí. Stúlka. Þyngd 4.080 gr. Lengd 54 sm. Foreldrar: Sara Eir Þorleifsdóttir og Birgir Þór Þorbjörnsson, Hvammstanga. Ljósmóðir: Jóhanna Ólafsdóttir. 22. maí. Stúlka. Þyngd 2.952 gr. Lengd 47 sm. Foreldrar: Anna Karolina Belko og Helgi Þórarinsson, Akranesi. Ljósmóðir: Lára Dóra Oddsdóttir / Ragna Þóra Samúelsdóttir. 19. maí. Drengur. Þyngd 5.012 gr. Lengd 56 sm. Foreldrar: Katrín Valdís Hjartardóttir og Guðmundur Valsson, Akranesi. Ljósmóðir: Hafdís Rúnarsdóttir. LEIGUMARKAÐUR ÓSKAST KEYPT Getir þú barn þá birtist það hér, þ.e.a.s. barnið! www.skessuhorn.is ÝMISLEGT Í gær voru fjölmargir nemendur Brekkubæjarskóla á Akranesi saman komnir á Langasandi. Krakkarnir eru í 1.-6. bekk og háð var sandkastalakeppni. Keppnin er hluti af vornámi nemenda skólans þar sem hefðbund- in kennsla er brotin upp og árgangar kynnast betur í gegnum leik og starf. Þegar blaðamaður Skessuhorns leit við var mikið líf og fjör á sandinum og gleðin alls- ráðandi. bþb Sandkastalakeppni á Langasandi Það var líf á Langasandi í gær. Mikinn fjölda af glæsilegum kastölum var að finna á Langa- sandi. Krakkarnir léku sér í sjónum eftir erfiða byggingavinnu. Það er ekki leiðinlegt að leika sér í sjónum. Til að búa til fallegan kastala er hugmyndavinnan mikilvæg. Hér velta menn vöngum yfir næstu skrefum. Þessi ungi herramaður var að vonum ánægður með þennan stórglæsilega kastala.

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.