Skessuhorn - 12.07.2017, Síða 6
MIÐVIKUDAGUR 12. júlÍ 20176
Makrílveiðar
hafnar
MIÐIN: Makrílveiðar
nokkurra upsjávarveiði-
skipa hófst í síðustu viku
austan við landið og fóru
strax vel af stað. Í veið-
unum taka meðal annarra
þátt Venus NS og Vík-
ingur AK, nýju skip HB
Granda, en auk þess var
Huginn VE að veiðum
um miðja vikuna. Stóru
skipin voru þá mörg enn
á kolmunnaveiðum. Afli
skipanna var í upphafi ver-
tíðar nokkuð síldarbland-
aður, en makríllinn mjög
góður, eða 390 grömm að
jafnaði. Á meðfylgjandi
mynd eru Víkingur og
Venus í höfn á Akranesi á
síðustu loðnuvertíð. -mm
Samþykktu
umferðarör
yggisáætlun
AKRANES: Bæjarstjórn
Akraness samþykkti ný-
lega umferðaröryggisáætl-
un Akraneskaupstaðar.
Í henni er að finna ýmis
brýn verkefni sem þarf að
sinna. „Meðal annars þarf
að huga betur að stöðum
þar sem börn eru á leið í
skóla, nærumhverfi skóla,
leikskóla og íþróttasvæða
sem og að bæta göngu-
og hjólaleiðir. Stefnt er að
því að vinna að úrbótum
hvað varðar efnisatriði er
koma fram í umferðar-
öryggisáætluninni, þegar
unnið verður að viðhalds-
verkefnum og endurbót-
um í gatnakerfinu. Einnig
er stefnt að því að vinna
einstök verkefni með það
að markmiði að auka um-
ferðaröryggi á svæðum
þar sem þörf er,“ segir í
frétt á vef Akranesbæjar
þar sem nánar er hægt að
kynna sér efni umferðar-
öryggismála.
-mm
Aldrei meiri
umferð í júní
VESTURLAND: Um-
ferð um Hvalfjarðargöng
í júní jókst um rúmlega
11% frá sama mánuði í
fyrra. Er það langmesta
umferð í júnímánuði frá
opnun ganganna árið
1998, en tæplega 8.900
ökutæki óku að jafnaði
um göngin á sólarhring.
Á heimasíðu Spalar er
greint frá því að umferð-
armet hafi verið slegið í
öllum mánuðum það sem
af er ári og að umferðar-
aukning á fyrri helmingi
ársins 2017 nemi 98 þús-
und bílum, eða 9,1%.
-kgk
Nanna tekur við
Amtsbókasafninu
STYKKISH: Bæjarstjórn
Stykkishólmsbæjar samþykkti
á fundi sínum 6. júlí sl. að ráða
Nönnu Guðmundsdóttur í starf
forstöðumanns Amtsbókasafns-
ins. Nanna er þrítug og hef-
ur lokið BA gráðu í Þjóðfræði
og MlIS gráðu í bókasafns- og
upplýsingafræði frá Háskóla Ís-
lands. Hún starfar hjá Borgar-
bókasafni Reykjavíkur. Nanna
mun hefja störf hjá Stykkis-
hólmsbæ í haust, segir á vef bæj-
arins.
-mm
Gera áætlun um
refaveiðar
BORGARBYGGÐ: Umhverf-
is-, skipulags- og landbúnað-
arnefnd Borgarbyggðar leggur
áherslu á að bændur í sveitarfé-
laginu tilkynni um tjón sem þeir
verða fyrir af völdum refs. Þeir
eru hvattir til að skrá slík tjón í
gegnum Bændatorgið til þess að
auðveldara verði að leggja mat
á tjón af völdum refa. Á fundi
í nefndinni í síðustu viku var
Hrafnhildi Tryggvadóttur falið
að gera þriggja ára áætlun um
refaveiðar í sveitarfélaginu, en
Umhverfisstofnun óskar eftir
að sveitarfélög geri slíkar áætl-
anir og sendi stofnuninni fyrir
15. ágúst nk. -mm
Leggja til
frísbígolfvöll
HVANNEYRI: Fyrir Ung-
lingalandsmót UMFÍ sem hald-
ið var í Borgarnesi síðasta sum-
ar var fjárfest í frisbígolfkörfum.
Á fundi umhverfis-, skipulags-
og landbúnaðarnefndar Borg-
arbyggðar í síðustu viku var lagt
til að kannað yrði með stað-
setningu fyrir frisbígolfvöll á
Hvanneyri, í samráði við land-
búnaðarháskólann og íbúa á
staðnum. Skipulagsfulltrúa var
falið að fylgja málinu eftir.
-mm
Á myndinni eru frá vinstri Sólrún Guðjónsdóttir, Mjöll Guðjónsdóttir, formaður
Gleym mér ei, og Halldóra Hálfdánardóttir hjúkrunardeildarstjóri krabbameins-
deildarinnar.
Breytingar í yfirstjórn
Norðanfisks á Akranesi
Pétur Þorleifsson framkvæmda-
stjóri Norðanfisks ehf. á Akranesi
síðastliðin 12 ár hefur sagt upp
störfum og hyggst finna sér nýj-
an starfsvettvang. Norðanfiskur
sérhæfir sig í fullvinnslu sjávaraf-
urða til stóreldhúsa og í neytenda-
pakkningar. Í tilkynningu frá HB
Granda, sem á Norðanfisk, kem-
ur fram að Sigurjón Gísli jónsson
taki við starfi framkvæmdastjóra
í byrjun ágúst. Hann er sjávar-
útvegsfræðingur frá Háskólan-
um á Akureyri og hefur undanfar-
ið starfað sem framkvæmdastjóri
hjá verslunarkeðjunni Morrison í
Bretlandi. Áður var Sigurjón sölu-
stjóri og síðar framkvæmdastjóri
alþjóðlegs söluteymis hjá Mar-
el hf. en á undan því var hann
framleiðslustjóri hjá Vinnslu-
stöðinni hf. í Vestmannaeyjum.
Sigurjón mun leiða frekari upp-
byggingu fullvinnslu sjávarafurða
HB Granda á Akranesi ásamt Ei-
ríki Vignissyni framkvæmdastjóra
Vignis G. jónssonar.
Auk Sigurjóns hefur Þröstur
Reynisson, sem nú er vinnslustjóri
bolfisksvinnslu HB Granda á Akra-
nesi, verið ráðinn til Norðanfisks
og mun starfa að sölu- og markaðs-
málum. Þröstur sem hefur unnið í
tæp 21 ár hjá HB Granda og for-
verum félagsins á Akranesi mun
einnig sinna vöruþróun. Í tilkynn-
ingu segir að Norðanfiskur og HB
Grandi þakka Pétri fyrir vel unnin
störf og óska honum alls hins besta
auk þess sem Sigurjón og Þröst-
ur eru boðnir velkomnir til nýrra
starfa.
mm
Sigurjón Gísli Jónsson er nýr
framkvæmdastjóri Norðanfisks.
Grundfirskar kvenfélagskonur
gáfu stórgjöf á Landspítalann
Föstudaginn 7. júlí síðastliðinn af-
hentu kvenfélagskonurnar Sól-
rún Guðjónsdóttir og Mjöll Guð-
jónsdóttir, formaður Gleym mér ei
í Grundarfirði, krabbameinsdeild
landspítala háskólasjúkrahúss veg-
lega gjöf. Gjöfin samanstendur af
fjórum 32 tommu sjónvarpstækjum
sem sett verða á tveggja manna stof-
ur á deildinni og tveimur 50 tommu
tækjum sem fara á eins manns stofur.
Kvenfélagið færði deildinni auk þess
veggfestingar og þráðlaus heyrnartól
að gjöf við sama tækifæri. Á deild-
inni 11 E eru fjórar tveggja manna
stofur sem áður höfðu aðeins eitt
sjónvarpstæki hver en með þessari
gjöf eru komin tvö sjónvörp á hverja
stofu sem gerir vonandi sjúklingum
vistin léttbærari. Einstaklingsstof-
urnar eru sjö og eru nú allar komn-
ar með góð sjónvarpstæki, þökk sé
þessari höfðinglegu gjöf kvenfélags-
kvenna í Grundarfirði.
Kvenfélagið Gleym mér ei stóð
fyrir Góugleði fyrir konur í Grund-
arfirði í vor og er þess gjöf keypt
fyrir hagnað af happdrætti Góu-
gleðinnar. mm