Skessuhorn - 12.07.2017, Qupperneq 16
MIÐVIKUDAGUR 12. júlÍ 201716
Þriðjudaginn 18. júlí næstkom
andi hefur Ísland leik á Evr
ópumóti kvenna í knattspyrnu
sem fram fer í Hollandi. Þetta
er í þriðja sinn í röð sem Ís
land kemst á EM og hefur Freyr
Alexandersson landsliðsþjálf
ari tilkynnt leikmannahóp
inn sem keppir fyrir Íslands
hönd í Hollandi. Vestlending
ar eiga einn fulltrúa í hópnum
en það er Skagakonan Hallbera
Guðný Gísladóttir, leikmað
ur Djugårdens í Svíþjóð. Hall
bera mun þá keppa á sínu öðru
stórmóti en hún keppti einn
ig á EM sem fram fór í Svíþjóð
fyrir fjórum árum þar sem liðið
komst í átta liða úrslit. Hallbera
er einn reynslumesti leikmað
ur landsliðsins að þessu sinni en
hún á að baki 84 leiki fyrir lið
ið. Skessuhorn settist niður með
Hallberu og ræddi við hana um
stórmótið sem í vændum er og
atvinnumennskuna.
Reynslumeiri leikmenn
þurfa að taka ábyrgð
Það var í fyrra í næstsíðasta leik
undankeppninnar, í 4-0 sigri á Sló-
veníu, sem Hallbera skoraði fyrsta
mark leiksins. úrslit í þeim leik
tryggðu Íslandi sæti á EM. „Við
höfum beðið lengi eftir þessu móti
og loksins er komið að því. Það er
góð stemning í hópnum og okkur
hlakkar til að takast á við þetta verk-
efni. Ég hef einbeitt mér í langan
tíma að mótinu og núna er kominn
fiðringur í magann að byrja það,“
segir Hallbera.
Síðastliðið ár hefur verið erf-
itt fyrir landsliðið þar sem lykil-
leikmenn hafa ekki getað tekið
þátt. Harpa Þorsteinsdóttir eign-
aðist barn í lok febrúar og Hólm-
fríður Magnúsdóttir meiddist illa
og tvísýnt var hvort þær færu með
til Hollands. Freyr Alexandersson
valdi þær báðar í hópinn en ljóst er
að þær munu ekki spila sama lykil-
hlutverkið og áður. Þá varð lands-
liðið fyrir gríðarlegu áfalli þegar
Dóra María lárusdóttir meiddist
fyrr á þessu ári og Margrét lára
Viðarsdóttir sleit krossband fyrr
í júní og fara þær því ekki með til
Hollands. „Þetta hefur verið erfitt
og náttúrlega mikið áfall að missa
Margréti úr hópnum rétt fyrir mót.
Margrét var á tíma ein besta knatt-
spyrnukona í Evrópu og býr yfir
mikilli knattspyrnugetu og reynslu.
Þetta breytir samt ekki markmið-
um okkar en við horfum auðvitað
raunsætt á hlutina. Við þurfum að
gefa allt sem við eigum í leikina,
annars mun lítið ganga. Við erum
í sterkum riðli þar sem við munum
keppa við Frakkland, eitt besta lið
heims, Sviss sem við höfum ver-
ið í vandræðum með ásamt sterku
liði Austurríkis. Við höfum heilt
yfir verið að standa okkur vel og
reynsluminni stelpur, eins og t.d.
Agla María, eru að spila þannig að
ekki er að sjá að þær séu að stíga sín
fyrstu skref. Við erum með flottan
hóp og erum til alls líklegar,“ segir
Hallbera sem er með reynslumestu
leikmönnum hópsins og segir hlut-
verk sitt að einhverju leyti breytt
frá síðasta móti. „Þegar á móti
blæs, eins og að undanförnu, er það
okkar sem eru reynslumeiri að stíga
upp og taka meiri ábyrgð.“
Hungrið meira en áður
Hallbera var viðloðandi landsliðs-
hópinn sem fór á fyrsta stórmót Ís-
lands í knattspyrnu, EM í Finnlandi
2009, en tvíhandleggsbrotnaði
tveimur vikum fyrir mót. Hún fór
hins vegar á EM í Svíþjóð árið 2013
og segir hún að áherslur Íslands og
markmið séu öðruvísi en áður. „Að
komast á stórmót árið 2009 þótti
það mikill sigur að markmiðin
voru kannski ekki háleit á mótinu
sjálfum. Við gerðum vel árið 2013
að komast upp úr riðlinum í átta-
liða úrslit en við höfðum engin
skýr markmið eftir riðlakeppnina.
Við erum margar sem höfum ver-
ið á stórmóti áður og þekkjum það.
Við erum á þeim stað að við sætt-
um okkur ekki við að komast ekki
upp úr riðlinum þótt hann sé mjög
sterkur. Við viljum gera betur en
áður og hungrið í frekari árangur
er meira núna en áður. Við höfum
fulla trú á okkur og horfum lengra
en við höfum áður gert fyrir stór-
mót. Við þurfum samt sem áður
líka að horfa raunsætt á hlutina. Á
pappírum er Frakkland yfirburðar-
lið í riðlinum svo það er allar lík-
ur á að þetta verði barátta um ann-
að sætið. Sviss hefur leikið okkur
grátt að undanförnu og við viljum
sýna þeim hvers við erum megnug-
ar,“ segir Hallbera sem óttast ekki
pressuna sem er á liðinu. „Auðvi-
tað er meiri pressa á okkur núna
en fyrir hin mótin tvö. Ég held þó
að pressan sé aðeins minni eftir að
lykilleikmenn meiddust hjá okkur.
Ég held að það séu ekki alveg sömu
kröfur gerðar á okkur og þegar við
vorum að leika sem best.“
Áhugi almennings meiri
Ýmislegt hefur breyst á þeim árum
sem Hallbera hefur spilað með
landsliðinu. Umgjörðin í kring-
um landsliðið er orðin betri og at-
hygli almennings beinist í auknum
mæli að landsliðinu. „Umgjörð-
in var fín áður en hún er algjör-
lega frábær núna. Það er vel hugsað
um okkur, við erum með gott að-
gengi að sjúkraþjálfurum og nudd-
urum og við höfum í raun ekki yfir
neinu að kvarta. landsliðið er líka
alltaf að taka skref fram á við í fag-
mennsku. Áður fengum við ekki
marga æfingaleiki og landsleikja-
hléin ekki fullnýtt. Það hefur ver-
ið bót í þessum málum og fáum við
því meiri tíma saman. Mesta breyt-
ingin er samt áhugi almennings á
því sem við erum að gera. Það var
ótrúlega skemmtilegt þegar að-
sóknarmetið var slegið þegar við
mættum Brasilíu í júní í kveðjuleik
fyrir EM. Það var frábær stemning
á vellinum. Síðan vitum við að því
að það verða mikið fleiri Íslend-
ingar á leikjunum í Hollandi en
voru í Svíþjóð. Flestar okkar eru
ekki vanar að spila fyrir mörg þús-
und áhorfendur svo það gefur okk-
ur mjög mikið að finna fyrir þess-
um stuðningi,“ segir Hallbera sem
telur að karlalandsliðið hafi haft já-
kvæð áhrif á áhuga Íslendinga fyr-
ir liðinu. „Fólk áttaði sig á því þeg-
ar karlarnir spiluðu á EM í fyrra
hversu skemmtilegt þetta er. Áhugi
almennings var svakalegur á EM í
fyrra og Ísland vakti athygli, bæði
áhorfendur og liðið. Það voru all-
ir glaðir á meðan þessu ævintýri
stóð og þetta var mjög skemmtilegt
í alla staði. Við erum klárlega að
njóta góðs af þeim meðbyr sem er
með karlalandsliðinu og velgengni
þeirra eykur áhugann á okkur, það
helst alveg í hendur.“
Vildi æfa eins og at
vinnumaður fyrir EM
Hallbera samdi við sænska liðið
Djugården í desember síðastliðn-
um og býr nú í Stokkhólmi. Hún
hefur áður leikið erlendis sem at-
vinnumaður en árið 2012 fór hún
til Svíþjóðar og lék með Piteå í tvö
ár áður en hún fór til Ítalíu og lék
með Torres árið 2014. Hún kom svo
heim úr atvinnumennsku um mitt
sumar 2014 og samdi þá við Val en
fór svo til Blika um haustið og lék
þar allt til hún fór aftur út í des-
ember. „Ástæða þess að ég fór aft-
ur út núna var fyrst og fremst EM.
landsliðið stjórnaði þeirri ákvörð-
un. Ég sá það þegar við tryggð-
um okkur á mótið að ég vildi kom-
ast í umhverfi þar sem ég gæti ein-
beitt mér hundrað prósent að EM.
Hér heima var ég í fullu starfi og
að læra viðskiptafræði í fjarnámi frá
Háskólanum á Akureyri. Það var of
mikil orka að fara í annað en fót-
boltann og ég vildi æfa eins og at-
vinnumaður fyrir EM. Það var því
það eina í stöðunni að fara út,“ segir
Hallbera en hún stefndi í raun ekki
aftur út eftir fyrri dvöl sína erlend-
is. „Það var mjög gaman að prófa
atvinnumennskuna þegar ég fór
út til Piteå og svo til Torres. Þessi
lífsstíll hentaði mér samt eiginlega
ekki. Ég var mikið ein að þvælast og
á Ítalíu tala fáir ensku svo ég kynnt-
ist fáum. Það voru fleiri útlending-
ar í Piteå og þar var ég með meiri
félagsskap. Piteå er hins vegar mjög
norðarlega í Svíþjóð og öll ferðalög
voru mjög tímafrek, það tekur t.d.
níu og hálfan tíma að keyra það-
an til Stokkhólms, og maður varð
fljótt þreyttur andlega á þeim. At-
vinnumennskan hentar mér því
ekki ýkja vel. Ég er mjög heima-
kær og fékk bara heimþrá og var
auk þess komin með örlítinn leiða
á fótbolta eftir þessa dvöl. Ég ákvað
því að koma heim og tíminn eft-
ir að ég samdi við Blika var alveg
frábær þar sem við unnum deildina
2015 og bikarinn í fyrra. Breiðablik
er frábær klúbbur og mér leið mjög
vel þar ásamt því að ég fékk gleðina
fyrir að spila fótbolta aftur. Eins og
ég segi, ég held að það væru litlar
líkur á því að ég hefði farið aftur út
ef ekki væri fyrir EM.“
Hafnaði háum fjár
hæðum frá Kína
Hæstu fjárhæðir knattspyrnuheims-
ins í dag eru í Kína og hafa margar
knattspyrnustjörnur á hátindi fer-
ilsins ekki getað neitað launaháum
samningum sem þar bjóðast. Hall-
bera er ein þeirra sem fengið hafa
samningstilboð frá Kína. „Ég var
nýkomin til Svíþjóðar þegar mér
barst tilboð frá Kína. Ég get ekki
„Við höfum fulla trú á okkur og horfum lengra
en við höfum áður gert fyrir stórmót“
Rætt við landsliðskonuna Hallberu Guðnýju Gísladóttur um EM sem hefst á sunnudaginn
kynningu KSÍ á leikmönnum landsliðs kvenna, þar sem Hallbera Guðný spilar í
treyju númer 11.
Landsliðskonan Hallbera Guðný Gísladóttir frá Akranesi er á leið á sitt annað stórmót í knattspyrnu.