Skessuhorn - 12.07.2017, Qupperneq 18
MIÐVIKUDAGUR 12. júlÍ 201718
Um hundrað grindhvalir gerðu sig í þrígang á sunnu-
daginn líklega til að synda á land í Snæfellsbæ, fyrst
við Bug austan við Ólafsvík og undir kvöld við hafn-
argarðinn í Rifi. Bátar frá björgunarsveitinni lífs-
björgu voru fengnir á svæðið og náðu björgunarsveit-
armenn að stugga við hvölunum þannig að þeir syntu
til hafs. Nokkrir hvalanna voru særðir eftir að hafa rek-
ist í grjót. Fjöldi fólks fylgdist með þessu sjónarspili
úr landi. Meðfylgjandi myndir tók Alfons Finnsson á
sunnudaginn. mm
Árlegt sumarmót SamVest í frjáls-
um íþróttum var haldið í Borgar-
nesi sunnudaginn 9. júlí síðastlið-
inn. Mótið var fjölmennt, alls voru
89 börn og ungmenni skráð til leiks
af starfssvæði SamVest og gestir frá
öðrum íþróttafélögum. Sumarmót-
ið er því fjölmennasti viðburðurinn
sem haldinn hefur verið á fimm ára
starfstíma SamVest-samstarfsins.
„Mótið fór mjög vel fram í blíð-
skaparveðri og mjög góð stemn-
ing var á því,“ segir Björg Ágústs-
dóttir, formaður framkvæmdaráðs
SamVest. Það var SamVest, frjáls-
íþróttasamstarf sjö héraðssam-
banda á Vesturlandi og Vestfjörð-
um, sem hélt mótið. UMSB sá um
undirbúning á mótsstað, mótsstjóri
var Íris Grönfeldt, yfirdómari
Rósa Marinósdóttir og Bjarni Þór
Traustason sá um rafræna tímatöku
hlaupagreina.
Ungmennin kepptu í hinum
ýmsu greinum frjálsra íþrótta. Sér-
staka athygli vakti árangur 11 ára
norsk-íslenskrar stúlku, Mali Hall-
dórsson frá Konsvinger í Noregi.
Hún stökk 1,44 metra í hástökki
sem mun vera norskt stúlkna-
met í hennar aldursflokki. Hún
náði einnig mjög góðum árangri í
spjótkasti, kúluvarpi og langstökki.
Fleiri keppendur náðu einnig góð-
um árangri í sínum greinum og
alls voru skráðar 118 persónulegar
greinabætingar hjá keppendum og
telst það afar gott. úrslit mótsins
má nálgast í heild sinni á vef Frjáls-
íþróttasambands Íslands; http://
mot.fri.is/MotFRI/.
Allir keppendur sumarmótsins
fengu þátttökuverðlaun, sem er
húfa merkt nafni keppanda, útbú-
in í Grundarfirði af Krums - hand-
verki og hönnun. Að móti loknu
bauð Borgarbyggð keppendum
í sund og fyrirtækið Arnarlax í
Vesturbyggð, bauð til grillveislu
í Skallagrímsgarði. „Við þökkum
Arnarlaxi og Borgarbyggð kær-
lega fyrir það. Þakkir sömuleiðis
frá okkur í SamVest til keppenda
fyrir þátttökuna og starfsfólki fyr-
ir vinnu sína. Það ber líka að nefna
að það er frábært að halda mót og
að keppa við svo góða íþróttaað-
stöðu eins og í Borgarnesi, aldeilis
frábærar nýlegar endurbætur á að-
stöðu og völlurinn mjög góður,“
segir Björg Ágústsdóttir í samtali
við Skessuhorn.
kgk
Síðasta sunnudag fóru fram upp-
tökur á tónlistarmyndbandi fyrir
lagið Keep on. lagið er eftir Red
Robertsson, en ásamt honum sem-
ur Viðar Engilbertsson textann
og Stefanía Svavarsdóttir syngur.
Red Robertsson er listamannsnafn
Borgnesingsins Inga Björns Ró-
bertssonar, eða Idda Bidda eins og
hann er betur þekktur, og er lagið
fyrsta frumsamda lagið sem hann
gefur út undir nafninu. Áður hefur
Red Robertsson gefið út ábreiðu á
laginu Fingur eftir Írafár sem vakti
nokkra athygli.
Tökur á myndbandinu fóru fram
í gömlu olíustöðinni niðri á Breið á
Akranesi. leikstjórn myndbandsins
var í höndum Heiðars Mar Björns-
sonar. „Ég ætla sömu leið og flestir
eru farnir að gera, að gefa út lagið
með veglegu myndbandi á netinu
í stað þess að frumflytja það í út-
varpi,“ segir Ingi Björn sem vill þó
lítið tjá sig um hver hugmyndin sé
á bakvið myndbandið. „Fólk verður
bara að bíða og sjá þegar það kemur
út.“ Hægt er að fylgjast með nánar
með verkefnum Red Robertsson á
Facebook og Instagram. bþb
Grindhvalavaða við Ólafsvík og Rif
Ingi Björn höfundur lagsins Keep on og Stefanía Svavarsdóttir söngkona lagsins.
Tónlistarmyndband
tekið upp á Akranesi
Metþátttaka á sumarmóti SamVest
Svipmynd frá keppni í 60 metra hlaupi. Ljósm. Björg Ágústsdóttir.