Skessuhorn - 12.07.2017, Síða 26
MIÐVIKUDAGUR 12. júlÍ 201726
Fyrirtækið Nordic Store hefur
keypt hina sögufrægu verslun Ála-
foss í Álafosskvosinni í Mosfellsbæ.
Starfsemi Álafoss hófst árið 1896
og má segja að kvosin hafi ver-
ið hjarta Mosfellsbæjar allar göt-
ur síðan og saga þessa fyrirtæk-
is samofin byggðinni þar. Einnig
má segja að Álafosskvosin sé upp-
haf síðari tíma ullarvinnslu á Íslandi
en það var Björn Einar Þorláksson
á Varmá sem upphaflega flutti inn
vélar til að vinna ullina og notaði
til þess vatnsorku úr fossinum sem
varð upphaf starfseminnar. Á tíma-
bili unnu um 550 manns hjá fyri-
tækinu sem var eitt stærsta fyrirtæki
landsins á sínum tíma. Það eru eig-
endur verslanakeðjunnar Nordic
Store, þeir Bjarni jónsson og Haf-
steinn Guðbjartsson, sem nú kaupa
Álafossbúðina. Þeir reka nokkr-
ar verslanir í Reykjavík og eina í
Borgarnesi undir því nafni en versl-
unin Álafoss mun verða rekin áfram
undir fyrra nafni.
„Við ætlum að færa Álafoss nær
upprunanum og taka út að mestu
vöruliði sem hafa ekki beint með
íslensku ullina að gera. Við mun-
um þannig einblína á íslenska lop-
ann, handprjónaðar peysur og aðr-
ar vörur sem eiga uppruna sinn frá
lopanum af íslensku sauðkindinni.
Á sama tíma ætlum við að opna
verslunina meira, bæði rýmið og
opnunartímann og gera hana þann-
ig aðgengilegri,“ sagði Bjarni jóns-
son annar eigandanna þegar hann
útskýrir áherslur þeirra með kaup-
unum. „Innst í versluninni verður
sett upp fallegt kaffihús með létt-
um veitingum og þar verður hægt
að ganga út á verönd, sitja þar og
njóta náttúrufegurðinnar við ána
og horfa á Álafossinn þar sem áin
rennur inn í kvosina.”
mm/eb
Stækkandi straumur er framundan
og þá vonast menn eftir að bætist
í smálaxinn í ánum. laxveiðin hef-
ur engu að síður gengið ágætlega
það sem af er sumri. Til dæmis er
fínn gangur í Grímsá í Borgarfirði.
Áin var um helgina komin í um
270 laxa sem verður að teljast mjög
gott. „Þetta gengur bara vel hérna.
Við vorum að fá flottan lax í Fimm-
strengjunum,“ sagði veiðimaður
sem var við veiðar í Grímsá. laxinn
virðist vel dreifður um ána.
„Við vorum í laxá í Dölum og
fiskurinn er komin upp um alla á,“
sagði jón Þorsteinn sem var við
veiðar í ánni um helgina. „Takan
mætti vera betri en vatnið er gott
og fiskurinn er vænn,“ sagði jón
ennfremur.
Fengu 19 laxa í
Straumunum
Veiðin í Straumunum og Brenn-
unni í Borgarfirði hefur geng-
ið vel. Við heyrðum í öflugum
veiðikonum sem voru að hætta
veiði þar og gekk vel. „Við í Óð-
flugum voru að hætta veiði í
Straumunum og það gekk mjög
vel, fengum 19 laxa,“ sagði Vig-
dís Ólafsdóttir í samtali við tíð-
indamann þegar túrinn var úti.
„Þetta var 26. árið í röð sem við
förum þarna til veiða og það er
alltaf jafn skemmtilegt. Við feng-
um líka nokkra flotta sjóbirtinga
en höfum aldrei séð svona væna
birtinga á þessum tíma árs þetta
snemma,“ sagði Vigdís ennfrem-
ur.
Rífandi gangur í Þverá
Þverá og Kjarará í Borgarfirði
sitja á toppi veiðilistans þessa
dagana en um helgina voru
komnir 860 laxar á land. Veiði-
menn sem voru nýverið á þess-
um slóðum fengu ágæta veiði í
báðum ánum. Síðustu daga hafa
verið að hellast inn smálax í tals-
verðum mæli. „Þverá og Kjarará
eru nú komnar með 860 laxa og
aflahæsta holl sumarsins í Þverá
til þessa fékk 88 laxa,“ sagði Að-
alsteinn Pétursson sem var stadd-
ur við Þverá með erlenda veiði-
menn þegar við heyrðum í hon-
um hljóðið.
gb
„Innleiðing YAP verkefnisins held-
ur áfram en fyrsti leikskólinn á
Vesturlandi til að fá kynningu á því
var heilsuleikskólinn Garðasel á
Akranesi. Þar hefur í áratugi verið
unnið mjög markvisst starf á sviði
hreyfifærni og stefnt er að því að
leikskólinn hafi lokið fimm þrepa
áætlun vegna YAP Certification í
haust,“ segir í frétt ÍF sports.
Garðasel hefur nú til fjölda ára
unnið markvisst með hreyfingu
sem einn af lykilþáttum í starfi
sínu. Markmið YAP verkefnisins er
að virkja þann hóp sem þarf hvata
til meiri hreyfiþjálfunar og skapa
tækifæri til að því sé fylgt eftir inn-
an leikskólans. Samstarf við heim-
ilin skiptir miklu mál varðandi ár-
angur og vonast er til þess að slíkt
samstarf verði einn af þáttum YAP
innleiðingarinnar í framtíðinni.
„Það er ekki síður markmið að
YAP hafi áhrif á og stuðli að auk-
inni þátttöku barna í íþróttastarfi,
þegar komið er í grunnskóla. Börn
með skerta hreyfifærni og/eða sér-
þarfir þurfa að fá tækifæri til að taka
þátt eins og önnur börn í almennu
íþróttastarfi þar sem hreyfiþjálf-
un er gífurlega mikilvæg, ekki síst
fyrir þennan hóp. Rannsóknir sýna
að snemmtæk íhlutun skilar góðum
árangri en áhrif til framtíðar eru
þó mikilvægust og það sem skiptir
mestu máli þegar lagt verður mat á
innleiðingu YAP verkefnisins síðar
í ferlinu,“ segir í frétt ÍF sports.
leikskólinn Garðasel hefur
þrisvar sinnum verið valinn stofn-
un ársins í könnun VR, St.Rvk og
STFR sem er mikil viðurkenning
á innra starfi skólans. Anna K Vil-
hjálmsdóttir, sem hefur haft um-
sjón með innleiðingu YAP á Ís-
landi, heimsótti heilsuleikskólann
Garðasel nýverið og kynnti verk-
efnið. Hún segir að það sem hefur
verið einkennandi í innleiðingar-
ferlinu er að YAP verkefnið er talið
vera gagnlegt og áhugavert og geta
nýst öllum, einnig þeim sem eru
með þróað hreyfifærnistarf.
mm
„Við vorum að koma ofan af Arn-
arvatnsheiði og þetta var meiri-
háttar ferð. Fengum flotta veiði,“
sagði Hörður Heiðar Guðbjörns-
son, en hann ásamt nokkrum fé-
lögum sínum fóru á Arnarvatns-
heiði til veiða um liðna helgi. „Við
fengum 20 flotta fiska í Arnarvatni
stóra. Margir þeirra voru þrjú til
sex pund. Við beittum makríl því
fiskurinn virtist ekki líta við flug-
unni. Hann er greinilega mjög vel
haldinn í vötnunum. Þetta er ein-
hver besti veiðitúr sem ég hef farið
í,“ bætti Hörður við.
Veiðimenn voru að koma úr
Hvítárvatni og fengu ágæta veiði.
Fiskur hefur aðeins verið að taka á
vatnasvæði lýsu á Snæfellsnesi, en
veiðin þar mun líklega glæðast þeg-
ar líður á sumarið.
„Hraunsfjöðurinn fer að detta
inn nú þegar straumur er stækk-
andi. Það gæti því orðið fín veiði
næstu daga og þá verður svo sann-
arlega reynt,“ sagði Bjarni júlíus-
son á Snæfellsnesi. gb
Fiskurinn er óvenjuvel haldinn úr Arnarvatni stóra. Þessir fengust um síðustu
helgi, boltafiskar!
Silungurinn óvenjulega vel haldinn
Fínn gangur í laxveiðinni
Thelma Skúladóttir Mogensen er hér með fallegan og nýrunninn lax úr Brennunni en þar hefur veiðin gengið prýðilega.
Ljósm. Aðalsteinn Pétursson.
Vænn lax úr Laxá í Dölum. Ljósm. Jón Þorsteinn.
Sólveig Einardóttir með tvo flotta laxa
úr Straumunum. Ljósm. Vigdís Ólafsd.
Frá kynningarfundi á heilsuleikskólanum Garðaseli um innleiðingu YAP
Certification.
Leikskólinn Garðasel
innleiðir verkefni í hreyfifærni
Eigendur Nordic Store
kaupa Álafossbúðina