Skessuhorn - 12.07.2017, Síða 30
MIÐVIKUDAGUR 12. júlÍ 201730
Hvað er skemmtilegast að gera
á heitum sumardögum?
Spurning
vikunnar
(Spurt í blíðskaparveðri í Borgarnesi)
Halldóra Harðardóttir
„Að ríða út.“
Elísabet Halldórsdóttir
„Að lifa og njóta.“
Helgi Sveinbjörn Jóhannsson
„Keyra um og skoða landið. Ég
er einmitt að leggja í slíkan leið-
angur núna.“
Sigurður Hafsteinn Pálsson
„Skoða landið og vera úti.“
Svanfríður Jónsdóttir
„Vera úti og njóta dagsins.“
Carmen Ty
sonThomas í
Skallagrím
BORGARNS: Í vikunni sem leið bárust
mikil tíðindi úr herbúðum Skallagríms
sem undirbýr sig nú fyrir sitt annað
tímabil í Domino‘s deild kvenna í körfu.
Skallagrímur tilkynnti þá að Carmen Ty-
son-Thomas hafi skrifað undir samning
við félagið. Carmen þarf vart að kynna
fyrir þeim sem fylgjast með körfubolta
á Íslandi. Hún hefur leikið síðustu tvö
tímabil með Njarðvík og vakið mikla at-
hygli en á síðasta tímabili var hún stiga-
hæsti leikmaður deildarinnar með 37
stig að meðaltali í leik auk þess sem hún
tók næstflest fráköst, 16,5 að meðal-
tali. Leikmannahópur Skallagríms fyrir
næsta tímabil er ekki enn fullmótaður
en í fréttatilkynningu frá félaginu seg-
ir að vænta megi frekari fregna af leik-
mannamálum á næstu dögum. -bþb
Skagakonur
klífa upp töfluna
AKRANES: Eftir góða byrjun í fyrstu
deild kvenna hjá ÍA kom kafli þar sem
liðið náði einungis í eitt stig í sex leikjum.
Skagakonur eru að vakna aftur til lífsins
eftir slæman kafla og hafa unnið síðustu
tvo leiki. Liðið mætti Sindra frá Horna-
firði á Sindravelli sl. föstudag. Leikn-
um lauk með 3-1 sigri Skagakvenna.
Mörk ÍA skoruðu Maren Leósdóttir sem
nú er markahæst í deildinni, Heiðrún
Sara Guðmundsdóttir og Bergdís Fann-
ey Einarsdóttir. Skagakonur lyftu sér úr
sjöunda í það fimmta með sigrinum og
eru nú sex stigum frá toppnum nú þegar
fyrri umferðinni er lokið. Næsti leikur ÍA
er næstkomandi föstudag á Sauðárkróki
gegn Tindastóli. -bþb
Kári í öðru sæti
eftir fyrri um
ferðina
AKRANES: Kári lék lokaleik sinn í fyrri
umferð Íslandsmótsins í þriðju deild
karla í knattspyrnu þegar liðið mætti
Dalvík/Reyni. Leiknum lauk með 1-1
jafntefli og gerði Kári þar með sitt þriðja
jafntefli í röð en liðið hefur ekki tapað
leik síðan í maí. Mark Kára skoraði Al-
exander Már Þorláksson og jafnaði þar
með leikinn rétt undir lok venjulegs leik-
tíma. Kári var í öðru sæti fyrir leikinn og
hélt sæti sínu eftir jafntefli. Næsti leikur
Kára er stórleikur í þriðju deildinni þar
sem liðið mætir toppliði Vængja Júpíters
í Egilshöll á næsta föstudag. -bþb
Skallagrímur
vann stórsigur á
Kóngunum
BORGARNES: Í áttundu umferð C-riðils
fjórðu deildar karla í knattspyrnu mætt-
ust Kóngarnir og Skallagrímur. Borgnes-
ingar unnu stórsigur í leiknum, 12-2.
Mörk Skallagríms skoruðu; Viktor Ingi
Jakobsson 4, Guðni Albert Kristjáns-
son 3, Aron Þorbjörnsson 2, Goran Jov-
anovski og Viktor Már Jónasson auk þess
sem Kóngarnir skoruðu eitt sjálfsmark.
Skallagrímur er enn í toppbaráttu rið-
ilsins en aðeins eru þrjú stig upp í efsta
sætið. Næsti leikur Skallagríms er mið-
vikudaginn 19. júlí á Selfossi gegn Ár-
borg. -bþb
landsliðskonan Bryndís Guð-
mundsdóttir, sem undanfarin ár
hefur leikið með Snæfelli í meist-
araflokki kvenna í körfu, mun ekki
spila með liðinu í vetur þar sem
hún á von á barni í janúar. Karfan.
is greinir frá. „Ég kem ekki til með
að spila í það minnsta á komandi
tímabili þar sem ég er ólétt,“ segir
Bryndís í samtali við Karfan.is.
Undanfarin tvö keppnistímabil
hefur Bryndís leikið með Snæfelli.
Hún varð Íslands- og bikarmeistari
með liðinu árið 2016. Áður lék hún
með Keflavík. Samtals hefur hún
sex sinnum orðið Íslandsmeistari
í körfuknattleik og fjórum sinnum
bikarmeistari.
Bryndís gat lítið æft með Snæ-
felli síðasta vetur vegna þess að erf-
iðlega gekk að púsla saman körfu-
boltanum og vinnunni, en hún
starfar sem flugfreyja. Hún vill ekki
útiloka að snúa aftur í boltann en á
alveg eins von á því að leggja skóna
á hilluna. „Ég ætla ekkert að segja
að ferlinum sé endanlega lokið þó
svo að líkurnar eru kannski meiri
en minni,“ sagði Bryndís við Karf-
an.is. kgk
Um síðustu helgi fór N1-mótið
fram á Akureyri. Það er fyrir drengi
í fimmta flokki í knattspyrnu. Mót-
ið í ár var það þrítugasta í röð og
jafnframt það stærsta fram til þessa.
Mótið gekk vel og mikil stemning
var á því eins og sést vel á mynd-
inni. Þessir hressu strákar kepptu
fyrir hönd ÍA og ekki er annað að
sjá en hjartað dæli gulu blóði.
bþb/ Ljósm. Magnús
Guðmundsson.
Þórður Sævarsson, þjálfari Klif-
urfélags ÍA á Akranesi, hefur nú í
sumar fengist við nokkuð óvenju-
legt verkefni. „Ég er aðeins búinn
að vera að leika mér í sumar með
nokkrum bandarískum félögum
mínum undir merkjum Slackl-
ine Iceland. Það kallast Highlin-
ing og felst í að gengið er á línu
sem strengd er milli tveggja punkta
hátt yfir jörðinni.“ Stundum er lína
strengd milli háhýsa en einnig úti
í náttúrunni, yfir gljúfur eða milli
fjallstinda, eins og hér var gert.
Mikið er lagt upp úr öryggi í þess-
ari grein, áhersla lögð á vel gerðar
tryggingar sem göngulínan er fest
við og einnig er öryggislína sem
menn festa við göngulínuna sem
tekur öll föll. „Því er ekki um neinn
glannaskap að ræða,“ segir Þórður
aðspurður. Hann segist hafa fengið
heimsókn frá þremur Bandaríkja-
mönnum sem hafa mikla reynslu
í uppsetningu á svona línum. „Við
ferðuðumst svo saman um land-
ið í vikutíma og settum upp fimm
magnaðar línur sem við svo fengum
okkur göngutúr á.“
Rétt er að benda á að íþrótt þessa
er ekki ráðlegt að stunda nema með
þátttöku kunnáttufólks og fyrir
þá sem hafa áhuga á að kynna sér
Slackline er hægt að sjá meira á fa-
cebook-síðu Slackline Iceland.
Á meðfylgjandi myndum var
meðal annars gengið á línu sem
strengd var milli tveggja punkta í
Akrafjalli, við Háafoss í Þjórsárdal,
yfir jökulsprungu í Skaftafelli og í
sunnanverðri Esjunni. mm
Ofurhugar strengja línur yfir
gljúfur og ganga svo yfir
Fjölmennasta
pollamótið
Bryndís Guðmundsdóttir í leik með Snæfelli. Ljósm. sá.
Bryndís ekki með Snæfelli í vetur