Skessuhorn


Skessuhorn - 23.08.2017, Blaðsíða 1

Skessuhorn - 23.08.2017, Blaðsíða 1
FRÉTTAVEITA VESTURLANDS – www.skessuhorn.is 34. tbl. 20. árg. 23. ágúst 2017 - kr. 750 í lausasölu Loratadin LYFIS - fæst án lyfseðils Yfir ��� tilboð Allir viðskiptavinir Arion banka eru í Einkaklúbbnum Náðu í appið og nýttu þér tilboðin Til alþingismanna Tökum upp US Dollar Pétur Geirsson SK ES SU H O R N 2 01 7 Kennsla hefst í Tónlistarskólanum á Akranesi mánudaginn 28. ágúst Hægt er að bæta við nemendum í forskóla. Kennt verður í grunn- skólunum strax eftir skólatíma Nú er í fyrsta sinn boðið upp á Suzukikennslu á selló og hægt að bæta við nemendum Nánari uppl. á www.toska.is Tónlistarskólinn á Akranesi SK ES SU H O R N 2 01 7 Leyft er að skjóta grágæs frá og með 20. ágúst. Þeir voru allmarg- ir veiðimennirnir sem nýttu sér það og meðal þeirra bræðurnir Tómas Helgi og Styrmir Þór Tómassynir frá Hofsstöðum í Stafholtstungum og veiðifélagi þeirra Hermann Jó- hann Björnsson í Borgarnesi. Þeir félagar héldu vestur á firði til veiða. „Það var mikið af fugli og ungarn- ir litu vel út, margir þeirra orðn- ir vel stórir eftir gott sumar. Fugl- inn kom óvenju seint í tún þenn- an fyrsta morgun, eða um hádegis- bil, eftir að hafa verið í berjum. En þetta var frábær dagur í góðum fé- lagsskap og við náðum góðri veiði,“ sagði Tómas Helgi í samtali við Skessuhorn. mm Gæsaveiðitímabilið hafið Tómas Helgi, Hermann og Styrmir Þór með góðan feng úr fyrstu veiðiferð haustsins. Strandveiðum á svæðum, A, B og C er nú lokið í sum- ar, en á svæði D, frá Höfn og vestur um til Borgarbyggð- ar, eru enn óveidd 46% af heimild- um þessa mánaðar. Skessuhorn heyrði í nokkrum sjó- mönnum sem réru frá höfnum í Snæ- fellsbæ. Almennt er þungt hljóð í mönnum eftir sumar- ið; meiri brælur en á síðasta ári og lengra hefur þurft að sækja aflann. Þá hafi verið með einsdæmum lágt fiskverð framan af sumri þótt það hafi farið aðeins upp á við í ágúst. Sjá nánar bls. 24. Ljósm. af Erfitt strandveiðisumar Með Skessuhorni í dag fylgir sérblað sem tileinkað er upp- hafi skólaársins. Rætt er við forsvarsmenn grunnskóla, fram- haldsskóla og há- skóla í landshlutan- um. Samhliða því að grunnskólar hefjast bætast mörg hundr- uð ungir einstak- lingar í umferð- ina. Ökumenn eru sérstaklega hvattir til að taka tillit til þeirra og aka var- lega. mm Skólablað fylgir Skessuhorni í dag Í könnun sem nýverið var unnin fyrir tryggingafélagið Sjóvá kem- ur fram að 83% framhaldsskóla- nema nota snjallsíma við akstur. Það eru yngstu ökumennirnir sem nota símann minnst við akstur en þeir eldri nota hann töluvert meira. Þannig segjast 27% 17 ára nem- enda aldrei nota snjallsíma undir stýri en það hlutfall er aðeins 8% hjá þeim 20 ára og eldri. Um afar marktækar niðurstöður er að ræða þar sem 71% framhaldsskólanema tók þátt í rannsókninni en aðeins er unnið með svör frá þeim nem- endum sem voru með bílpróf þegar hún var gerð. „Þetta eru mjög sláandi niður- stöður og eitthvað sem ástæða er til að hafa miklar áhyggjur af,“ seg- ir Karlotta Halldórsdóttir, verk- efnastjóri forvarna hjá Sjóvá. „Það er áhyggjuefni að notkunin skuli aukast svona hratt með aldrinum hjá þessum ungu ökumönnum, það sýnir okkur að við þurfum stöðugt og öflugt forvarnarstarf gegn notk- un snjallsíma í akstri sem skilar sér til lengri tíma. Við hjá Sjóvá höfum áður gert könnun á notkun snjall- síma við akstur þar sem kom í ljós að yngstu aldurshóparnir notuðu snjallsímana hvað mest undir stýri og vildum við því skoða þennan hóp nánar. Það er þó rétt að taka fram að engin ástæða er til að ætla að snjallsímanotkun við akstur sé mikið skárri hjá þeim sem eldri eru, miðað við niðurstöður fyrri kann- ana.“ mm Slæm hegðun mælist í hópi ungra ökumanna

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.