Skessuhorn - 23.08.2017, Qupperneq 8
MIÐVIKUDAGUR 23. áGúST 20178
Hætta að sækja
mjólk á einn
bæ
SKAGAFJ: „Dreifing
mjólkur hefur verið stöðv-
uð til bráðabirgða frá bæn-
um Viðvík í Skagafirði.
ástæða dreifingarbanns
er að eftirlitsmanni Mat-
vælastofnunar var mein-
aður aðgangur að eftirlits-
stað,“ segir í tilkynningu
sem Matvælastofnun sendi
síðastliðinn mánudag. „Ef
ekki er unnt að framkvæma
eftirlit getur stofnunin ekki
sannreynt að framleiðsl-
an uppfylli ákvæði laga um
hollustuhætti í matvæla-
framleiðslu. á meðan slíkt
ástand varir er ekki hægt
að heimila dreifingu mat-
væla og var markaðssetn-
ing stöðvuð á grundvelli 3.
mgr. 30.gr laga nr. 93/1995
um matvæli.“ Samkvæmt
matvælalögum er matvæla-
fyrirtækjum skylt að veita
óhindraðan aðgang til eft-
irlits á þeim stöðum þar
sem framleiðsla eða dreif-
ing matvæla á sér stað.
-mm
Aflatölur fyrir
Vesturland
dagana 12.-18. ágúst
Tölur (í kílóum)
frá Fiskistofu:
Akranes: 7 bátar.
Heildarlöndun: 6.760 kg.
Mestur afli: Erla AK: 1.579
kg í 3 róðrum.
Arnarstapi: 12 bátar.
Heildarlöndun: 25.790 kg.
Mestur afli: Vísir SH: kg
7.814 í 4 róðrum.
Grundarfjörður: 14 bátar.
Heildarlöndun: 749.343 kg.
Mestur afli: Polar Amaroq
GR: 570.099 kg í 1 löndun.
Ólafsvík: 33 bátar.
Heildarlöndun: 128.620 kg.
Mestur afli: Brynja SH:
41.376 kg í 7 róðrum.
Rif: 22 bátar.
Heildarlöndun: 99.666 kg.
Mestur afli: Tjaldur SH:
35.092 kg. í 1 löndun.
Stykkishólmur: 17 bátar.
Heildarlöndun: 24.754 kg.
Mestur afli: Blíða SH:
7.931 kg í 5 róðrum.
Topp fimm landanir á
tímabilinu:
1. Polar Amaroq - GRU:
590.099 kg. 15. ágúst.
2. Hringur SH - GRU:
64.979 kg. 15. ágúst.
3. Steinunn SF - GRU:
58.348 kg. 16. ágúst.
4. Helgi SH - GRU:
45.850 kg. 13. ágúst.
5. Tjaldur SH - RIF:
35.092 kg. 17. ágúst.
-kgk
Smásalar hætta
að gefa upplýs-
ingar um veltu
LANDIÐ: Rannsóknaset-
ur verslunarinnar hefur hætt
birtingu veltuvísitölu dagvöru-
verslana og nokkurra annarra
flokka smásölu, svo sem fata
og raftækja. ástæðan er sú að
aðilar með mikla markaðs-
hlutdeild á smásölumarkaði
hafa ákveðið að hætta miðlun
á upplýsingum um veltutölur
sínar, vilja halda þeim fyrir sig.
áfram verður þó haldið birt-
ingu á veltuvísitölu bygginga-
vöru, húsgagna og áfengis.
„Smásöluvísitalan hefur verið
birt mánaðarlega frá stofnun
Rannsóknaseturs verslunar-
innar árið 2004. Frumkvæð-
ið að birtingu smásöluvísi-
tölunnar kom upphaflega frá
verslunum í landinu og helsti
tilgangurinn hefur allar götur
síðan verið að veita verslunum
aukið gagnsæi á mánaðarlega
þróun í einstökum tegund-
um verslunar. Þar sem þessar
forsendur hafa breyst er birt-
ingunni sjálfhætt. Rannsókna-
setrið leitar nú annarra leiða
við öflun skammtímaupplýs-
inga um veltu verslunar eftir
vöruflokkum,“ segir í tilkynn-
ingu.
-mm
Vinafélag
Barmahlíðar tíu
ára
REYKHÓLASVEIT: Vina-
félag dvalar- og hjúkrunar-
heimilisins Barmahlíðar á
Reykhólum verður tíu ára 1.
september næstkomandi, en
félagið hefur starfað samfellt
frá því þann dag árið 2007.
Þetta kemur fram í tilkynningu
sem stjórnarmenn í félaginu
birta á Reykhólavefnum. Vel-
unnarar heimilisins stofnuðu
vinafélagið á sínum tíma og 15
félagar undirrituðu stofnfund-
argerðina. Tilgangur félags-
ins er að efla og auka hróð-
ur Barmahlíðar, kynna starf-
semina, vinna að uppbyggingu
heimilisins, bæta aðstöðu og
vinna að heill og velferð heim-
ilismanna á Barmahlíð. Starf
félagsins hefur verið misáber-
andi eftir árum og háttað með
ýmsu móti. Þó hefur það aldrei
dottið alveg niður þó félags-
menn séu fáir. „Það má segja
að árgjöldin og peningargjaf-
ir til félagsins hafi borið uppi
það sem við höfum verið að
gera,“ segir í tilkynningunni.
Undanfarin ár hefur vinafélag-
ið styrkt heimilisfólk í nokkr-
ar ferðir með eldri borgurum,
farið með heimilismönnum í
kaffi í Bjarkalund og skroppið
á Ólafsdalshátíð, boðið harm-
onikkuleikurum á Barmahlíð,
keypt rúmteppi, myndavél,
myndir í borðssal, stóla í and-
dyri, sjúkradýnu og margt ann-
að. á síðasta ári gaf félagið síð-
an tíu útibekki sem komið var
fyrir í og við heimilið. „Við
reynum að gera okkar besta
þó svo alltaf megi gera betur,“
segir stjórn félagsins og þakk-
ar tryggum félagsmönnum og
velunnurum stuðning, ásamt
því að nýir félagar eru boðnir
velkomnir. Undir tilkynningu
vinafélagsins rita Svanhildur
Sigurðardóttir formaður, Mál-
fríður Vilbergsdóttir gjaldkeri
og Guðlaug Jónsdóttir ritari.
-kgk
Framkvæmdir héldu áfram í sumar
við endurhleðslu á gömlu réttinni í
Ólafsvík. Undirbúningur við verkið
fór fram árið 2014 og hefur hleðslu-
fólk komið síðustu sumur að vinnu,
átta daga árið 2015 og níu daga í
fyrrasumar. Í sumar kom hleðslu-
fólkið 6. júlí og var í átta daga. Með
því voru þrír sjálfboðaliðar og hefur
verkinu miðað vel.
Að sögn Guðrúnar Tryggvadótt-
ur, sem fer fyrir áhugahópnum sem
stendur fyrir verkefninu, hefur áhug-
inn fyrir að styðja við þetta verkefni
aukist í sumar og fólk stutt vel við
bakið á þeim. Má þar nefna að hóp-
urinn fékk óvæntan styrk úr Sprota-
sjóði í sumar, Kvenfélag Ólafsvíkur
styrkti verkefnið auk Framfarafélags
Snæfellsbæjar, Ólafsvíkurdeild og
Lionsklúbbur Ólafsvíkur gaf einnig
peningagjöf ásamt fleirum. Vill hóp-
urinn koma á framfæri þakklæti til
allra sem hafa stutt verkefnið. Guð-
rúnu finnst verkið hafa gengið mjög
vel miðað við hversu stutt er unnið á
hverju ári og hyggst hópurinn halda
þessu verkefni áfram í áföngum þar
sem þau hafa ekki viljað setja sig í
skuldir. þa
Framkvæmdir héldu áfram við
gömlu réttina í Ólafsvík
Hér afhendir Marínó Mortensen formaður Lionsklúbbs Ólafsvíkur Guðrúnu styrk
frá klúbbnum.
Þorgerður Katrín Gunnarsdótt-
ir landbúnaðarráðherra hefur að
undanförnu rætt við hagsmuna-
aðila vegna fyrirsjáanlegrar slæmr-
ar stöðu sauðfjárbænda í haust.
Ráðherra hefur rætt við forsvar-
menn bænda og þá hefur atvinnu-
veganefnd Alþingis einnig kom-
ið að málinu. Meðal tillagna ráð-
herrans til að leysa vanda sauðfjár-
bænda er að fækka verði sauðfé um
allt að 20% til lengri tíma. Upp-
kaup ríkisins á ærgildum væru til
þess fallin að fækka sauðfé og draga
úr framleiðslu til lengri tíma. Þar
horfir ráðherra m.a. til að auð-
velduð verði útkoma eldri bænda
úr greininni og komið verði til
móts við þá bændur sem eru fjár-
hagslega illa staddir. Tillögurnar
voru kynntar á fundi með bænd-
um og atvinnuveganefnd Alþingis
á mánudag og verða til úrvinnslu
áfram næstu daga, að sögn Þor-
gerðar, sem vonast til að tillögur
liggi fyrir í næstu viku.
Í samtali við fjölmiðla á mánu-
dagskvöld sagði Þorgerður að það
liggi fyrir annars vegar að taka
verði á rót vandans sem meðal ann-
ars sé mikil framleiðni í greininni.
Hins vegar þurfi að gera það sem
hægt er til að leysa þann skamm-
tímavanda sem uppi er. Þar vísar
ráðherra til þeirrar kjaraskerðing-
ar sem bændur verða fyrir í haust
þar sem afurðaverð verður lækkað
um 35% frá fyrra ári og alls 45%
á tveimur árum. „Það þarf að finna
leiðir til að hjálpa bændum beint
án milliliða,“ sagði Þorgerður í
kvöldfréttum RUV á mánudaginn.
Fram kom að skoðamunur er milli
ráðherrans og Páls Magnússon-
ar formanns atvinnumálanefndar
hvað útflutningsskyldu á lamba-
kjöt varðar. Þorgerður Katrín segir
slíkar ráðstafanir ekki í þágu neyt-
enda né bænda til lengri tíma litið,
en Páll Magnússon vill ekki útiloka
þann möguleika til lausnar vand-
ans. Leggur Þorgerður áherslu á
að komið verði fram með tillögur
sem styrkja bæði sauðfjárbændur
og landbúnað til lengri tíma. Loks
vill Þorgerður Katrín að nýr bú-
vörusamningur verði endurnýjaður
enda segir hún samninginn fram-
leiðsluhvetjandi og slíkt sé ekki
raunhæft eins og markaðsaðstæð-
ur eru. „Horfa verður til langtíma-
lausna á vanda sauðfjárbænda,“
segir ráðherra. mm
Ráðherra vill fækka sauðfé um fimmtung
Svipmynd af fjárrekstri til Fljótstunguréttar í Borgarfirði.
Viðskiptavinir verslunarinnar
Hljómsýnar á Akranesi gripu í
tómt nýverið, en versluninni hefur
nú verið lokað og húsnæðið tæmt.
Verslunin hefur verið starfrækt í
um tvo áratugi í verslunarrými við
Stillholt 23. Þar voru seld raftæki;
„allt frá vasaljósum og nefhárak-
lippum til þvottavéla, eldavéla og
sjónvarpa af öllum stærðum,“ eins
og segir á heimasíðu Hljómsýnar.
mm
Verslunininni Hljómsýn á Akranesi lokað