Skessuhorn - 23.08.2017, Síða 17
MIÐVIKUDAGUR 23. áGúST 2017 17
SKÓLABLAÐ SKESSUHORNS
Skemmtibátanámskeið - fjarnám
28. ágúst - 14. október 2017.
Smáskipanámskeið - fjarnám
28. ágúst - 14. október 2017.
ARPA ratsjárnámskeið
Haustönn 2017.
ECDIS rafrænt sjókorta- og
upplýsingakerfi
Haustönn 2017.
GMDSS - alþjóða neyðar- og
öryggisfjarskiptakerfi
Haustönn 2017.
Hásetafræðsla - aðstoðarmaður í brú
Haustönn 2017.
IMDG endurnýjun
Haustönn 2017.
Smáskipavélavörður - vélgæsla
Haustönn 2017.
Við stígum ölduna með þér
Skráning stendur yfir á tskoli.is
C
M
Y
CM
MY
CY
CMY
K
halfsida-batanamskeid.pdf 1 8/22/2017 1:55:51 PM
Grunnskólinn í Borgarnesi var sett-
ur í Borgarneskirkju í gær, þriðju-
daginn 22. ágúst. Nemendur 1.-4.
bekkjar mættu fyrstir til skólasetn-
ingar, því næst 5.-7. bekkur og
loks 8.-10. bekkur. Að skólasetn-
ingu lokinni hittu nemendur síð-
an umsjónarkennara sína og fengu
stundaskrár afhentar ásamt öðr-
um upplýsingum um skólabyrj-
un. Kennsla hófst síðan samkvæmt
stundaskrá í dag, miðvikudaginn 23.
ágúst. „Í dag eru skráðir 278 nem-
endur við skólann og er það örlítil
fækkun frá því í fyrra,“ segir Júlía
Guðjónsdóttir skólastjóri í samtali
við Skessuhorn. „Starfsmenn skól-
ans eru 56 og er búið að manna í
allar stöður,“ bætir hún við.
Mistök leyfð
Aðspurð um áherslur í skólastarf-
inu segir Júlía að haldið verði áfram
að þróa teymiskennslu undir dyggri
aðstoð Ingvars Sigurgeirssonar. Þá
sé skólinn að vinna við að innleiða
nýtt námsmat og muni innleið-
ingarferlið halda áfram á komandi
vetri. „Skólinn mun áfram starfa
eftir áherslum og hugmyndafræði
uppbyggingarstefnunnar. Starfs-
fólk skólans fór síðastliðinn vetur
til Boston á námskeið í þeirri stefnu
og var það námskeið góð vítamíns-
sprauta inn í skólastarfið. En aðal-
hugmyndafræði stefnunnar eru að
mistök eru leyfð en við þurfum að
læra af þeim,“ segir Júlía. „Stefnan
miðar að því að ýta undir ábyrgð-
arkennd og sjálfsstjórn nemenda.
Þjálfa þá í að ræða um tilfinning-
ar sínar og átta sig á þörfum sín-
um. Vinnuaðferðum er einnig ætl-
að að styðja starfsmenn skóla við
að móta sér skýra stefnu í agamál-
um og samskiptum. Kennarar búa
til bekkjarsáttmála með nemendum
sínum sem allir eiga að vinna eftir,“
útskýrir hún.
Heilsueflandi
grunnskóli
„Grunnskólinn í Borgarnesi er
einnig heilsueflandi grunnskóli og
tökum við þátt í ýmsum viðburð-
um því tengdu. Einnig er í boði
fyrir alla nemendur skólans að vera
áskrifendur að ávöxtum. Einn lið-
ur í heilsueflandi grunnskóla er það
er lítur að líðan nemenda og höf-
um við hrundið af stað smá til-
raunaverkefni í þeim efnum. Elín
Kristinsdóttir, sem er okkur nú
ekki ókunn, mun leiða verkefni þar
sem markvisst verður unnið að auk-
inni velferð og vellíðan nemenda
og starfsfólks. Elín er nýkomin úr
námsleyfi sem hún nýtti í að vinna
í meistaraverkefni um það hvernig
megi flétta hefðbundið skólastarf
til að stuðla að sjálfstyrkingu, auk-
inni þrautseigu og bættu hugarfari.
En þetta er liður okkar til að koma
til móts eða bæta það sem við erum
ekki að koma vel út í hinum ýmsum
könnunum sem mæla skólastarfið.
Við erum ekki að skora hátt í þraut-
seigu, og trú á eigin getu. Verk-
efnið miðar að valfrjálsum stund-
um, hópkennslu, einstaklingsvinnu,
hringekjum, allt til að vinna með
styrkleika hvers og eins, gildi, hug-
arfar, markmiðasetningu, núvit-
und, jóga, djúpöndum og slökun,“
segir Júlía. „Slökun og hugleiðsla
verður einnig í boði fyrir starfsfólk
skólans. Þetta verkefni hljómar vel
við áherslur okkar í uppbygging-
arstefnunni,“ bætir hún við. „Við
flögguðum Grænfánanum í vor
sem var kærkomið og munum við
halda ótrauð áfram að vinna eftir
þeirri stefnu lík,“ segir Júlía Guð-
jónsdóttir að endingu. kgk
Grunnskólinn í Borgarnesi
Starfað eftir áherslum og hugmyndafræði uppbyggingarstefnunnar
Nemendur og kennarar Grunnskólans í Borgarnesi fylktu liði
síðastliðið haust og gengu gegn einelti og enduðu á stuttri
samkomu í Skallagrímsgarði. Ljósm. úr safni.
Síðasta vetur fóru sex nemendur ásamt tveimur kennurum
til Þýskalands á vegum Erasmus+ Evrópuverkefnisins „Water
around us“. Ljósm. úr safni.
Nemendur 1. bekkjar nýttu góða veðrið í vor og skelltu sér út í íþróttum.
Ljósm. Grunnskólinn í Borgarnesi.