Skessuhorn - 23.08.2017, Blaðsíða 31
MIÐVIKUDAGUR 23. áGúST 2017 31
Klettagörðum 15 | 525 7700 | flytjandi.is
DAGLEGA Á FERÐINNI MEÐ
VÖRUR UM ALLT LAND
Eimskip Flytjandi veitir samræmda flutningaþjónustu
um land allt og eru áfangastaðirnir 80 talsins.
Víkingur Ólafsvík hefur á undan-
förnum vikum verið að styrkja stöðu
sína í deildinni eftir brösótta byrj-
un í sumar. Liðið mætti Breiðabliki
í Ólafsvík á sunnudaginn í sextándu
umferð Pepsideildar en Víkingur
hafði unnið tvo leiki í röð fyrir þann
leik. Breiðablik hefur ekki staðið
undir þeim væntingum sem gerðar
voru til liðsins fyrir tímabilið og var
fyrir leikinn í níunda sæti með átján
stig en Víkingur í því áttunda með
nítján stig. Breiðablik stjórnaði ferð-
inni á Ólafsvíkurvelli í leiknum sem
endaði með 3-0 sigri Blika.
Breiðablik var mikið sterkari að-
ilinn í fyrri hálfleik og braut ísinn
snemma. á 12. mínútu fékk Gísli
Eyjólfsson boltann á miðjum vall-
arhelmingi Ólafsvíkur, sneri Kenan
Turudija af sér, færði boltann nær
vítateig Víkings og þrumaði boltan-
um í netið. Stórglæsilegt hjá Gísla og
klárlega eitt af mörkum sumarsins.
Víkingur komst ekki í takt við leik-
inn í fyrri hálfleik og bættu Blikar
við marki á 40. mínútu leiksins. Aron
Bjarnason keyrði þá upp vallarhelm-
ing Víkings þar sem sundurslitin
vörn Víkings virtist ráðalaus. Aron
var kominn vinstra megin í vítateig
Víkings þegar hann renndi boltan-
um snyrtilega á Svein Aron Gudjo-
hnsen sem lagði boltann í netið og
skoraði þar með fyrsta mark sitt fyrir
Breiðablik en hann gekk til liðs við
Blika frá Val í lok júlí. Staðan 2-0 í
hálfleik og ekki annað hægt að segja
en að forystan væri verðskulduð.
Spilamennska Blika var áfram
góð í síðari hálfleik og á 53. mín-
útu skoruðu þeir sitt þriðja mark.
Aron Bjarnason fékk boltann rétt
fyrir utan vítateig Víkings með þrjá
varnarmenn í kringum sig en fór
illa með þá og slapp einn í gegn og
renndi boltanum auðveldlega í net-
ið. Leikurinn róaðist töluvert eftir
þriðja markið. Blikar héldu áfram
að stjórna leiknum og lítið gekk hjá
Víkingi að skapa sér færi. Blikar voru
svo nálægt því að auka forystuna í
tvígang undir lok venjulegs leiktíma
en Martínez varði vel í bæði skiptin.
Lokatölur því 3-0 þegar flautað var
til leiksloka.
úrslit leiks þýða það að Víkingur
er aftur kominn í bullandi fallbaráttu
eftir að hafa slitið sig frá henni tíma-
bundið með góðu gengi að undan-
förnu. Liðið er sem stendur í níunda
sæti með nítján stig eða þremur stig-
um frá fallsæti. Liðið á mikilvægan
leik gegn KA næstkomandi sunnu-
dag á Akureyri.
bþb
Breiðablik vann öruggan
sigur á Víkingum
Barátta í leik Víkings og Breiðabliks á sunnudaginn. Ljósm. af.
ÍA og ÍBV mættust í sannkölluðum
botnslag í Pepsideild karla í knatt-
spyrnu á sunnudaginn. Leikið var
á Akranesvelli við bestu aðstæður.
Skagamenn sátu fyrir leikinn á botni
deildarinnar og Eyjamenn í sætinu
fyrir ofan. Skagamenn þurftu nauð-
synlega á sigri að halda en varð ekki
að ósk sinni. ÍBV vann með einu
marki gegn engu og staðan orðin afar
erfið fyrir ÍA á botni deildarinnar.
Gestirnir frá Vestmannaeyjum
voru heldur sókndjarfari á upphafs-
mínútum leiksins en náðu ekki að
spila sig í gegnum Skagaliðið, sem
lá til baka og varðist. Skagamenn
sóttu í sig veðrið eftir því sem leið
á en sömuleiðis án þess að skapa sér
afgerandi marktækifæri. Helst ógn-
aði ÍA með fyrirgjöfum og skotum af
löngu færi. Ólafur Valur Valdimars-
son átti góðan sprett eftir hálftíma
leik. Hann fór illa með varnarmenn
ÍBV á vinstri kantinum, sendi fyrir á
Guðmund Böðvar Guðjónsson sem
þurfti að teygja sig aðeins í boltann.
Fyrir vikið náði hann ekki nægilega
góðu skoti og Derby Carrillo varði í
marki Eyjamanna. Skagamenn fengu
skömmu síðar aukaspyrnu á stór-
hættulegum stað, rétt utan vítateigs.
Garðar Gunnlaugsson spyrnti en í
varnarvegginn. Skagamenn voru ívið
sterkari þegar þarna var komið sögu
og það var því gegn gangi leiksins
þegar Eyjamenn skoruðu á 36. mín-
útu leiksins. Eftir langt innkast sem
Skagamönnum gekk ekki að hreinsa
í burtu barst boltinn á Matt Gar-
ner á vinstri kanti. Hann sendi fyrir
og Brian McLean reis manna hæst í
teignum. Brian skallaði boltann beint
á árna Snæ Ólafsson í markinu. Bolt-
inn skoppaði fyrir framan árna sem
missti hann milli fóta sér og í mark-
ið. Slæm mistök hjá árna sem var allt
annað en sáttur við sjálfan sig enda
átti hann að öðrum kosti ágætis leik.
Fleiri mörk voru ekki skoruð í
fyrri hálfleik og gestirnir leiddu því í
hléinu, 0-1.
Skagamenn vildu víti
Skagamenn voru frískari í upphafi
síðari hálfleiks. Garðar fékk ágætis
færi á 47. mínútu eftir laglegan und-
irbúning Ólafs Vals en skot hans yfir
markið. Eftir því sem leið á datt leik-
urinn aðeins niður. Eyjamenn áttu
nokkur skot með stuttu millibili en
ógnuðu ekkert að ráði. Það sama átti
við um lið Skagamanna. Það var ekki
fyrr en á 70. mínútu að Þórður Þor-
steinn Þórðarson skapaði sér færi upp
úr engu og átti fast skot sem Derby
þurfti að hafa sig allan við að verja.
Því næst átti Garðar skot rétt framhjá
eftir góða fyrirgjöf. Síðustu 15 mín-
úturnar eða svo voru algjör einstefna.
Skagamenn sóttu án afláts en Eyja-
menn voru þéttir til baka. Þórður átti
frábæran sprett í teignum og lagði
boltann fyrir. Derby markvörður sló
sendinguna út í teiginn en enginn
Skagamaður var mættur til að koma
frákastinu á markið.
á 80. mínútu vildu Skagamenn fá
vítaspyrnu. Albert Hafsteinsson sendi
frábæra sendingu inn fyrir á Þórð.
Derby kom á fullri ferð út úr mark-
inu og dómari leiksins mat það svo
að hann hefði verið á undan Þórði
í boltann áður en þeir skullu sam-
an, Derby og Þórður. Séð frá gras-
bölunum norðan við völlinn virtist
Þórður hins vegar hafa verið á undan
í boltann en ekkert heyrðist flautið og
áfram hélt leikurinn.
Skagamenn sóttu áfram og reyndu
hvað þeir gátu að jafna metin. Hárs-
breidd munaði á 90. mínútu þegar
Garðar átti frábært skot eftir fyrir-
gjöf frá hægri. Boltinn stefndi efst
upp í markvinkilinn en Derby náði
að teygja sig í hann og blaka í horn.
Var það síðasta færi leiksins og Eyja-
menn fóru því með 0-1 sigur og þrjú
stig frá Akranesi.
Róðurinn orðinn þungur
úrslit leiksins þýða að Skagamenn
sitja á botninum með 10 stig eftir 16
leiki. Þeir eru sex stigum á eftir Eyja-
mönnum í sætinu fyrir ofan, sem
og Fjölni sem situr í 10. sæti. Síðar-
nefnda liðið á þó tvo leiki til góða. Þar
fyrir ofan er Víkingur Ó. með 19 stig
og þá Breiðablik og KA með 21 stig.
Róðurinn er því orðinn afar þungur
fyrir Skagamenn þegar sex leikir eru
eftir. Næst mætir ÍA liði Breiðabliks á
útivelli sunnudaginn 27. ágúst næst-
komandi. kgk/ Ljósm. gbh.
Grátlegt tap ÍA gegn ÍBV
Skagamenn voru fjölmennir á vítateig gestanna undir leikslok og freistuðu þess að jafna metin. Þær tilraunir báru þó engan
ávöxt og ÍBV hafði sigur.
Árni Snær Ólafsson missir boltann milli fóta sér og í markið. Mistökin reyndust
dýrkeypt því ÍBV hafði 0-1 sigur.
Umdeilt atvik átti sér stað seint í
leiknum þegar Derby Carrillo keyrði
inn í Þórð Þorstein Þórðarson í víta-
teignum. Bæði leikmenn og stuðn-
ingsmenn ÍA vildu fá vítaspyrnu en
dómarinn mat það svo að Derby
hefði verið á undan í boltann.