Skessuhorn - 18.10.2017, Blaðsíða 5
www.skaginn3x.com
Systurfyrirtækin Skaginn hf., Þorgeir og Ellert hf. á Akranesi og 3X Technology ehf. á Ísafirði mynda saman Skaginn 3X. Fyrirtækin framleiða og selja sérsniðnar hátæknilausnir fyrir matvælaiðnað
á alþjóðamarkaði og er viðskiptavinina að finna víðsvegar um heiminn. Tæknistigið er hátt og starfsmenn eru rúmlega 200 talsins í starfsstöðvum sem eru um 14.000 m2. Starfsemin hefur vaxið mjög síðustu
misseri en frumkvöðla- og nýsköpunarandinn hefur viðhaldist allt frá fyrsta degi. Áhersla er lögð á að bjóða gæðavörur og ryðja braut nýrrar tækni sem færir viðskiptavinum og umhverfinu verulegan ávinning.
Skaginn 3X hlaut nýlega Útflutningsverðlaun forseta Íslands og Nýsköpunarverðlaun Íslands.
Starfið er nýtt og felur í sér verkefnastjórnun og umsýslu sjálfvirkra framleiðsluvéla fyrirtækisins.
Vegna mikilla tækniframfara hefur Skaginn 3X ráðist í umfangsmikla uppbyggingu húsnæðis og
fjárfest í hátæknibúnaði til að styðja við frekari vöxt fyrirtækisins.
Mikill metnaður er lagður í að bæta gæði og auka skilvirkni í framleiðslu fyrirtækisins og hefur
undanfarið verið fjárfest í eftirfarandi vélum:
• Sjálfvirk háþróuð vélasamstæða til laserskurðar á plötuefni
• Sjálfvirkar kantpressur fyrir plötuefni með hugbúnaðartengingu við laserskurð
• Sjálfvirk háþróuð vélasamstæða til laserskurðar á stangarefni
• Sjálfvirk yfirfræsivél fyrir plastvinnslu
• Sjálfvirkir rennibekkir með stangarmöturum
• Sjálfvirk fræsivél fyrir stálvinnslu
Umsjónarmaður þarf að sýna metnað, frumkvæði og fagmennsku í starfi ásamt því að búa yfir
skipulagshæfni og sjálfstæði í vinnubrögðum. Mikilvægt er að umsjónarmaður geti unnið vel í hóp.
Kröfur:
• Góð og yfirgripsmikil tölvukunnátta
• Þekking á CNC forritun er æskileg
• Þekking á teikniforritum, t.d. AutoCad og Inventor
Við hvetjum jafnt konur sem karla að kynna sér starfið.
Umsóknarfrestur er til og með 1. nóvember 2017.
Upplýsingar veitir Guðjón M. Ólafsson, rekstrarstjóri, í síma 861 5949 eða gmo@skaginn3x.com.
Skaginn 3X óskar eftir að ráða tæknilegan umsjónarmann
í starfsstöð sína á Akranesi.
Ert þú klár í fjórðu iðnbyltinguna?