Skessuhorn - 18.10.2017, Blaðsíða 17
MIÐVIKUDAGUR 18. OKTÓBER 2017 17
Fréttaveita Vesturlands
www.skessuhorn.is
Haustmarkaður
á Breiðabliki
Sunnudaginn 29. október 2017 frá kl. 13 – 17.
Allir velkomnir
Matur og handverk
af Snæfellsnesi
Breiðablik
Á þriðjudögum hittast hressar og
duglegar konur í Átthagastofu á
vegum Rauðakrossdeildar Snæ-
fellsbæjar. Þetta eru sjálfboðalið-
ar sem taka þátt í verkefninu „Föt
sem framlag“ á vegum RKÍ, en
sambærileg verkefni eru í gangi
hjá Rauða kross félögum víðar á
Vesturlandi. Hefur Snæfellsbæjar-
deildin tekið þátt í þessu verkefni
frá árinu 2009.
Konurnar hittast einu sinni
í viku og sauma og prjóna föt í
pakka sem sendir eru til þeirra sem
á þurfa að halda og hafa fatapakk-
arnir undanfarin ár verið sendir til
Hvíta Rússlands en þar er mikil fá-
tækt og gríðarlegir kuldar. Í pökk-
unum eru peysa, buxur, nærfatnað-
ur, sokkar, húfa, teppi, handklæði
og lak. Þetta útbúa konurnar af
mikilli natni, bæði sauma þær föt
upp úr gömlum fötum, hekla og
prjóna teppin, húfur og sokka og
einnig prjóna þær peysur. Pakk-
arnir eru ætlaðir börnum á aldrin-
um 0 til 12 mánaða.
þa
Föt sem framlag frá
Rauða krossinum
Enn á ný lauk verkefninu ung-
barnapakkar fyrir Hvíta-Rússland
í Grundarfirði, þegar pakkað var
101 pakka af hlýjum fatnaði fyr-
ir ungbörn frá 0-1 árs hjá RKÍ í
Vinahúsinu. Pakkarnir verða hluti
af sendingu Rauða kross Íslands til
fátækra fjölskyldna með ung börn.
Eins og sjá má á pokunum þá eru
ákveðnir hlutir sem fara í hvern
pakka; handklæði, tvö stykki (blei-
ur), teppi, buxur, húfa, tvær peys-
ur, tvær samfellur, tvennir hlý-
ir sokkar, eða 404 stykki samtals.
Allt að tuttugu konur í Grundar-
firði lögðu hönd á plóg, saumuðu
og prjónuðu, hver eftir sinni hug-
mynd. Barnafjölskyldur komu með
föt sem voru orðin of lítil. Í þessu
verkefni sannaðist sem fyrr að
margt smátt gerir eitt stórt. RKÍ
félagar og Vinahúsið í Grundar-
firði senda hjartans þakkir til allra
sem lögðu verkefninu lið.
mm
Hlýjar kveðjur
frá Rauða
kross deildinni
í Grundarfirði