Skessuhorn


Skessuhorn - 18.10.2017, Blaðsíða 12

Skessuhorn - 18.10.2017, Blaðsíða 12
MIÐVIKUDAGUR 18. OKTÓBER 201712 Vilji er til þess að hálfu bæði Akra- neskaupstaðar og Sæferða að halda áfram siglingum milli Akraness og Reykjavíkur á næsta ári. Sem kunn- ugt er tóku Sæferðir að sér rekst- ur siglinga yfir Faxaflóa eftir útboð sveitarfélaganna tveggja. Samning- ar gerðu ráð fyrir tilraunaverkefni til hálfs árs og að sveitarfélögin myndu tryggja allt að 30 milljónir króna samtals til stuðnings verkefninu. Stjórnendur sveitar- félagsins ánægðir Sævar Freyr Þráinsson, bæjarstjóri á Akranesi, segir stjórnendur Akra- neskaupstaðar ánægða með hvern- ig til hefur tekist fram til þessa. „Við erum mjög ánægð hvað þetta hef- ur haft jákvæð áhrif og það er klár vilji hjá stjórnendum bæjarins að halda siglingum áfram,“ segir Sæv- ar. „Bæði hafa bæjarbúar tekið þessu vel og einnig merkjum við talsvert aukinn ferðamannastraum hingað á Akranes eftir að siglingar hófust,“ segir hann. „Árangurinn hefur verið stígandi. Fyrsti mánuðurinn var ró- legur, kannski vegna þess að upphaf siglinga frestaðist,“ bætir hann við. Upphaflega var áætlað að hefja sigl- ingarnar 1. júní og gert var ráð fyr- ir þeirri dagsetningu í útboðsgögn- um. Upphaf siglinga tafðist þó eilít- ið, einkum vegna þess að erfiðlega gekk að fá ferjuna til landsins, en Sæ- ferðir leigðu hana frá Noregi. Það var föstudaginn 15. júní að jómfrú- arferð Akranesferjunnar var farin og áætlunarsiglingar hófust strax næsta mánudag, 19. júní. „Þegar verkefnið var aðeins komið af stað og farið að koma því meira á framfæri þá tók það góðan kipp. Einnig spilaði veð- ur inn í. Júlímánuður var óvenju lé- legur hvað veður snertir en ágúst góður. Við tókum eftir því að þegar veðrið var gott var ferjan mun meira nýtt bæði af ferðamönnum og Skaga- mönnum sjálfum,“ segir Sævar. Þróunarmöguleikar á borðinu Siglingar eru enn í fullum gangi og reiknað er með því að þær standi út nóvembermánuð og eitthvað fram í desember. Þá verða liðnir sex mán- uðir frá því siglingar hófust og til- raunaverkefninu sem boðið var út í vor því formlega lokið. „Við munum ekki sjá endanlega niðurstöðu verk- efnisins fyrr en siglingum lýkur í des- ember,“ segir Sævar. „Hins vegar leit bæjarstjórn alltaf svo á að þetta væri tveggja ára verkefni. Ferðaþjónustu- aðilar í bænum hafa sömuleiðis kall- að eftir því að fá að vita með vissu með góðum fyrirvara hvort tilraun- inni verði haldið áfram næsta sumar. Þess vegna samþykkti bæjarráð fyrir nokkru að ég fengi umboð sem bæj- arstjóri til að hefja viðræður við Sæ- ferðir um framhald verkefnisins, sem og aðra aðila sem hafa tekið þátt, eins og Reykjavíkurborg.“ Sævar segir að þessa dagana sé ver- ið að skoða hvernig megi útfæra verk- efnið til framtíðar. „Siglingamála- stofnun hefur ekki gefið leyfi fyrir því að þessi ferja verði notuð áfram. Hún siglir núna á bráðabirgðaleyfi og verður þess vegna skilað eftir að tilraunaverkefninu lýkur. Stjórnend- ur Sæferða eru byrjaðir að leita að nýrri ferju sem ætlunin er að verði enn öflugri. Sú leit stendur yfir, ég veit að þeir hafa verið að skoða ýmis- legt en ekkert sem liggur fyrir á þess- ari stundu,“ segir hann. „Þá eru líka uppi á borðinu ýmsir fleiri þróunar- möguleikar í kringum siglingarnar sjálfar. En það mál er ekki komið á það stig að ég geti tjáð mig um það,“ segir Sævar. Sæferðir vilja sigla áfram Gunnlaugur Grettisson, fram- kvæmdastjóri Sæferða, segir stjórn- endur fyrirtækisins hafa áhuga á því að halda ferjusiglingum áfram milli Akraness og Reykjavíkur. „Já, ég get með góðri samvisku sagt að sannar- lega höfum við áhuga á því,“ segir Gunnlaugur. „Hins vegar erum við í þeirri stöðu núna að skipið sem við leigðum í sumar fær ekki varanlegt leyfi til háhraðasiglinga og því höf- um við tilkynnt eigendum þess að því verði skilað að þessu tímabili loknu,“ segir hann. „Þess vegna höfum við verið að kanna möguleika með önn- ur skip. Það er ágætis gangur í þeim málum, búið að skoða ýmislegt þó ekkert hafi verið ákveðið. En það er áhugi af okkar hálfu og sveitarfélag- anna að kanna möguleika á áfram- haldandi siglingum,“ bætir hann við. Gunnlaugur tekur þó skýrt fram að engar skuldbindingar hafi verið gerðar hvað það varðar. Horfa til sambærilegrar ferju Þrátt fyrir að núverandi ferju verði skilað segir Gunnlaugur að forsvars- mönnum Sæferða hugnist best að finna sambærilegt fley til áframhald- andi siglinga. „Við þurfum að vera með skip sem hefur fulla heimild til siglinga án nokkurra undanþága. Að því sögðu þá erum við að leita að sambærilegu skipi. Hér á landi eru til tvíbytnur sem hafa fulla heimild en málið er hins vegar þannig að stífari reglur gilda um háhraðaferjur sem notaðar eru til áætlanasiglinga en þær sem eru til dæmis í útsýnissiglingum. Er það einkum hvað varðar öryggi og björgunarbúnað. Allt hvað það varðar í Akranesinu er í fínu standi. Það skip er hins vegar smíðað undir öðrum kvöðum. Eftir að hafa ráðfært okkur við sérfræðinga þá varð niður- staðan sú að afar ólíklegt er að ferj- an fái varanlega fulla heimild til há- hraðasiglinga,“ segir hann. „Hvað varðar stærð skipsins þá teljum við að um 100 farþega ferja sé alveg prýði- leg stærð. Það þarf að vera gott pláss þannig að fólki líði vel. Við sáum það að þegar við sigldum í kringum Menningarnótt og Írska daga, rétt eins og milli lands og Eyja í kringum verslunarmannahelgina, að sú stærð var bara mjög heppileg. Við erum því að leita að nýrri ferju sem er svip- uð að stærð, tekur í kringum 100 far- þega,“ segir Gunnlaugur. Gengið vel á þessu ári Aðspurður telur Gunnlaugur að sigl- ingarnar hafi heilt yfir gengið vel á þessu ári. „Nú er ég auðvitað ekki hlutlaus en mín skoðun er sú að staðið hafi verið að þessu af mikl- um myndarskap. Við hjá Sæferðum lögðum okkur fram við að vera með flott og gott skip þannig að sómi væri af þessum siglingum. Á sama tíma er komin smá reynsla og fólk búið að sjá að það hefur gengið prýðilega, siglingarnar verið stöðugar og góð- ar og nánast engar frátafir,“ seg- ir hann. „Auðvitað hefðum við vilj- að fá fleiri farþega. En það er reynd- ar alveg sama hvaða ferju er rætt um. Ég vil alltaf fá fleiri farþega,“ seg- ir Gunnlaugur léttur í bragði. „En heilt yfir tel ég þetta hafa gengið allt í lagi. Við fórum seint af stað og í ljósi alls og alls er mitt mat að þetta hafi verið ágætis tilraun. Við erum í það minnsta það ánægð að við viljum gjarnan reyna aftur. Þá horfum við til þess að geta hafist handa í vetur við kynningar og slíkt og geta hafið sigl- ingar seinni partinn í apríl eða byrjun maí. Með því væri hægt að fá alvöru reynslu á því hver notkunin er mið- að við góðan undirbúning. Auðvitað verður það eins og með aðrar ferð- ir, þær lifa og deyja á þátttöku þeirra íbúa sem þurfa að sækja yfir Faxafló- ann,“ segir hann. „Sökum þess hve seint var farið af stað í sumar tel ég okkur ekki geta metið nægilega vel hver sú notkun er. Þess vegna held ég að það sé rétti tíminn núna til að undirbúa áframhaldandi siglingar,“ segir Gunnlaugur Grettisson. Reglubreyting gæti auðveldað rekstur Á Haustþingi Samtaka sveitarfélaga á Vesturlandi, sem haldið var á Akra- nesi síðasta miðvikudag, upplýsti Jón Gunnarsson samgönguráðherra um reglugerðarbreytingar sem unn- ið væri að í ráðuneyti hans. Þær fela í sér að auðvelda rekstrarumhverfi þeirra sem stunda farþegasigling- ar án þess að slaka á öryggiskröfum. Tekur breytingin mið af því að lögin verði samræmd þeim sem gilda um þessi sömu mál í Noregi. Reglubreytingin hefur vitaskuld ekki enn tekið gildi og forsendur til ferjusiglinga því enn þær sömu og þegar verkefninu var hleypt af stokk- unum í sumar. Aðspurður telur Sævar víst að áframhaldandi siglingar milli Akraness og Reykjavíkur verði ekki farnar nema með opinberum stuðn- ingi. „Eins og staðan er núna er þetta gert með stuðningi sveitarfélaganna. Gert var ráð fyrir allt að 15 millj- óna stuðningi Akraneskaupstaðar og sambærilegum stuðningi Reykjavík- urborgar. Það liggur ekki fyrir hve mikið af þeim peningum verða not- aðir til stuðnings verkefninu, en það verða aldrei meira en 15 milljónir,“ segir Sævar. „Hvað varðar framhald- ið þá eigum við von á sambærilegu rekstrarformi á næsta sumar. Enn liggur hins vegar ekki fyrir hve mikl- um stuðningi við ferjusiglingar verð- ur gert ráð fyrir á næsta ári. Það mun skýrast við gerð fjárhagsáætlunar fyr- ir árið 2018,“ segir Sævar bæjarstjóri að endingu. kgk Vilja halda áfram siglingum milli Akraness og Reykjavíkur Sæferðir leita nú að nýrri ferju með næsta ár í huga Ferjan Akranes siglir inn í Akraneshöfn. Sæferðir leita nú að annarri ferju til að leysa þessa af hólmi, þar sem talið er ólíklegt að hún fái varanlega fulla heimild til háhraðasiglinga við Íslandsstrendur. Ljósm. úr safni. Gunnlaugur Grettisson, framkvæmda- stjóri Sæferða. Sævar Freyr Þráinsson, bæjarstjóri á Akranesi.

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.