Skessuhorn - 18.10.2017, Qupperneq 18
MIÐVIKUDAGUR 18. OKTÓBER 201718
Í tilefni af þingi Arctic Circle,
sem fram fór í Reykjavík um liðna
helgi, var finnskur ísbrjótur til sýn-
is í Reykjavíkurhöfn. Ísbrjóturinn
hefur siglt bæði Norðaustur leið-
ina, meðfram strönd Rússlands,
og Norðvestur leiðina, meðfram
strönd Bandaríkjanna og Kanada.
Ferðir skipsins hafa þannig varp-
að ljósi á þær breytingar sem eru
að verða á Norðuslóðum. Finnar
gegna nú formennsku í Norður-
skautsráðinu og var koma ísbrjóts-
ins einnig tengd kynningu á stefnu
Finnlands í málefnum Norðurslóða
sem fram fór á allsherjarþinginu.
mm
Finnskur ísbrjótur í Reykjavíkurhöfn
„Reynsla seinustu ára hefur leitt í
ljós að til þess að tryggja varðveislu
gamalla tréskipa geti verið æskilegt
að halda þeim sjófærum og á floti,“
segir í tilkynningu frá Ágústi Ólafi
Georgssyni hjá Þjóðminjasafninu. „Í
Þjóðminjasafni Íslands eru tvö skip;
Norðurljósið ÍS 537, súðbyrðingur
með þilfari sem smíðaður var af Sig-
mundi Falssyni árið 1939, og Snari
ÞH 36, opinn vélbátur frá 1953 smíð-
aður af Aðalsteini Aðalsteinssyni.
Ástand beggja kallar á viðgerð og því
leitar safnið eftir því hvort áhugasam-
ir skipasmiðir eða söfn væru reiðu-
búin að ganga til samninga um við-
gerð og varðveislu þessara skipa. Það
eru eindregin tilmæli að þeir sem hafa
þekkingu, hæfni, áhuga og bolmagn á
slíkum verkefnum setji sig í samband
við Þjóðminjasafn Íslands við fyrsta
hentugleika,“ segir Ágúst Ólafur sem
bendir á símanúmerið 530 2294 eða
agust@thjodminjasafn.is. mm
Þjóðminjasafn Íslands
óskar eftir samstarfi við
skipasmiði eða söfn
Rebekka Sif Sigurðardóttir er tví-
tug Skagastúlka. Eftir grunn-
skóla lá leið hennar líkt og flestra
á Akranesi í Fjölbrautaskóla Vest-
urlands en nú í haust söðlaði hún
um, flutti austur á land og stundar
nú nám í Hússtjórnarskólanum á
Hallormsstað. Þar hefur hún eign-
ast góðan hóp vina og segir um-
hverfið heillandi.
„Ég vissi ekki einu sinni að skól-
inn væri til, fyrr en mamma og
pabbi sáu þátt um hann á sjón-
varpsstöðinni N4 fyrir um tveim-
ur árum. Ég vissi reyndar að syst-
ir pabba hefur farið í hússtjórnar-
skóla, en ég man ekki einu sinni
hvaða skóli það var. Foreldrar mín-
ir héldu að ég myndi kannski hafa
gaman af því að fara í þennan skóla
og hvöttu mig til að skoða mögu-
leikann. Þar sem ég var ekki búin
að ákveða hvað ég ætlaði að gera
eftir námið í FVA fannst mér þetta
mjög spennandi og fór að kynna
mér skólann betur og ákvað að
slá til. Námið býður upp á marga
möguleika og tækifæri til að nýta
sér það í daglegu lífi og til fram-
tíðar,“ segir Rebekka Sif í samtali
við Skessuhorn.
Eflir sjálfstraustið
Rebekka segir að nemendur í Hús-
stjórnarskólanum á Hallormsstað
séu fimmtán nú á fyrri hluta haust-
annar; fjórtán stelpur og einn strák-
ur, en fleiri nemendur séu væntan-
legir á seinna tímabil haustannar-
innar, eða seinni spönnina eins og
það er kallað. Pláss er á heimavist-
inni fyrir 22 nemendur. Nemend-
ur nú koma víða af landinu. Með-
al annars úr Borgarnesi, en einnig
frá Vestmannaeyjum, Hvolsvelli,
Kirkjubæjarklaustri, Egilsstöðum,
Húsavík, Akureyri, Keflavík og af
höfuborgarsvæðinu. „Mér finnst
skemmtilegast hvað hópurinn var
fljótur að ná vel saman og hversu
góðir vinir og náin við erum orð-
in. Við erum samheldinn hópur og
þetta er eins og önnur fjölskylda
mín og Hússtjórnarskólinn er orð-
ið mitt annað heimili. Umhverfið
og andrúmsloftið er mjög róandi
og hefur jákvæð áhrif á mig. Til
dæmis á ég erfitt með að slaka á á
nýjum stöðum og er feimin að tala
við ókunnuga. En hér fór ég strax
að tala við aðra nemendur og eign-
ast nýja vini og finnst mér ég verða
hugrakkari fyrir vikið.“
Væri til í lengra nám
Rebekka segir að fyrirkomulag
námsins sé þannig að það standi
yfir í eina önn og er henni skipt
niður í tvær spannir. „Nemend-
ur eru eina spönn í matreiðslu og
vefnaði og hina spönnina í fata-
saumi, útsaumi, hekli og ýmsu sem
tengist handverki eins og jurta-
litun og kynningu á efnum. All-
ir eru saman í prjóni, hreinlætis-
fræði, útivist og næringarfræði.
Þótt að námið sé bara ein önn er
skólinn krefjandi og ég væri mikið
til í að lengja námstímann eins og
var hægt hér á árum áður. Uppá-
halds fagið mitt er prjón en mér
finnst eiginlega ekkert beint leið-
inlegt. Þó viðurkenni ég alveg að
ég hef minnst gaman af hreinlæt-
isfræði þegar við þurfum að þrífa
húsið vikulega.“
Heimavistin heillar og
ekki síður umhverfið
„Þetta er heimavistarskóli og ótrú-
lega gaman að búa saman og hóp-
urinn verður mun nánari vegna
þess,“ segir Rebekka og kveðst
ákveðin í að fara í Landbúnað-
arháskólann á Hvanneyri og læra
þar búfræði. „Ég ætla að verða
bóndi. Eftir þennan skóla þá væri
ég þó til í halda áfram og fara t.d.
í textílnám. Allt námið hér er met-
ið í framhaldsskólaeiningum og
möguleiki að nýta áfanga í fram-
haldsnámi á sviði matreiðslu,
framreiðslu og þjónustu og í text-
ílgreinum.“
Rebekka Sif nýtur þess að búa á
Hallormsstað. „Hér er umhverfið
fallegt og sérstakt þar sem skógur-
inn og Lagarfljótið mætast. Ég er
ekki vön að búa eða vera í kringum
skóg og upplifi þetta eins og að vera
í útlöndum, algjört ævintýri! Hér
er ýmis afþreying. Meðal annars
hesta- og fjórhjólaleiga. Við stofn-
uðum gönguhóp og förum alla daga
í góða skógargöngu og tökum ýmsar
æfingar þegar heim er komið. Mér
finnst umhverfið alltaf jafn fallegt
og ótrúlega gaman að fara í reiðtúr
í gegnum skóginn. Umhverfið er
aldrei eins og breytist sífellt. Skóg-
urinn og nýir staðir eru uppgötv-
aðir. Þá heillar kyrrðin og myrkrið
því norðurljósin eru svo falleg og
stjörnurnar svo skýrar hér. Ég mæli
því eindregið með þessum skóla,“
segir Rebekka Sif að endingu.
mm/ Ljósm. Bjarney Þórarins-
dóttir.
Skagastúlka nýtur þess að vera við nám í Hússtjórnarskólanum á Hallormsstað
Umhverfið fagurt og félagarnir heilla
Rebekka Sif Sigurðardóttir.
„Allt nám er metið í framhaldsskólaeiningum og möguleiki að nýta áfanga í fram-
haldsnámi á sviði matreiðslu, framreiðslu og þjónustu og í textílgreinum.“
Hússtjórnarskólinn á Hallormsstað.