Skessuhorn - 18.10.2017, Blaðsíða 31
MIÐVIKUDAGUR 18. OKTÓBER 2017 31
Klettagörðum 15 | 525 7700 | flytjandi.is
DAGLEGA Á FERÐINNI MEÐ
VÖRUR UM ALLT LAND
Eimskip Flytjandi veitir samræmda flutningaþjónustu
um land allt og eru áfangastaðirnir 80 talsins.
Kristján Björn Snorrason varð um
helgina Íslandsmeistari í einmenn-
ingi í bridds. Hlaut hann 57,4%
skor. Fast á hæla hans var Sigurjón
Harðarson með 57,1% og þriðji
Akureyringurinn Frímann Stefáns-
son með 56,1%. Alls tóku 32 spil-
arar þátt í mótinu að þessu sinni.
Kristján Björn er Skagfirðingur að
uppruna, en er vestlenskum spil-
urum að góðu kunnur, bjó lengi í
Borgarnesi og stýrði þar banka-
útibúi.
mm
Kristján Björn Íslands-
meistari í einmenning
Snæfellskonur léku fyrsta heimaleik
sinn í Domino‘s deild kvenna í körfu-
knattleik þennan veturinn þegar lið-
ið mætti Haukum á miðvikudag. Lið-
in hafa marga hildina háð síðustu ár,
leikið spennandi leiki í úrslitum Ís-
landsmótsins og bikarkeppninnar.
Því var búist við hörkuleik í Stykkis-
hólmi og sú varð einmitt raunin.
Haukar byrjuðu af krafti og kom-
ust í 7-14 um miðjan upphafsfjórð-
unginn en skömmu síðar hafði Snæ-
fell minnkað muninn í eitt stig, 15-16.
Haukar voru heldur sterkari næstu
mínútur og leiddu 19-23 að loknum
fyrsta leikhluta. Snæfell jafnaði og
komst síðan stigi yfir snemma í öðr-
um fjórðungi og ljóst að hvorugt lið
ætlaði að gefa tommu eftir. Gestirnir
komust yfir að nýju og liðin fylgdust
að fram að hálfleik. Haukar leiddu
með fjórum stigum í hléinu, 42-46.
Snæfell átti góða byrjun í síðari
hálfleik og jafnaði metin í 46-46. Eft-
ir það tóku Haukakonur hins vegar
öll völd á vellinum og náðu 16 stiga
forskoti fyrir loka fjórðunginn, 51-67.
En Snæfellsliðið er ekki þekkt fyrir að
leggja árar í bát. Þær héldu gestunum
stigalausum fyrstu fjórar mínúturnar
í fjórða leikhluta og minnkuðu mun-
inn í níu stig. Þær sóttu í sig veðrið
eftir því sem leið nær lokum, færð-
ust sífellt nær Haukum og minnkuðu
muninn í tvö stig þegar aðeins 23
sekúndur voru eftir á klukkunni. En
þrátt fyrir mikla og drengilega bar-
áttu komust þær ekki lengra og þurftu
að sætta sig við naumt tap, 72-76.
Kristen McCarthy átti stórleik
fyrir Snæfell og setti upp óvenjulega
þrennu. Hún var með 38 stig, 10 frá-
köst og hvorki fleiri né færri en 10
stolna bolta. Henni næst komu Berg-
lind Gunnarsdóttir með 9 stig og 7
fráköst og María Björnsdóttir skoraði
9 stig einnig.
Helena Sverrisdóttir var atkvæða-
mest Haukakvenna með 25 stig, 13
fráköst og 7 stoðsendingar.
Snæfell hefur tvö stig eftir fyrstu
þrjá leiki vetrarins og situr sem stend-
ur í 6. sæti deilarinnar, en liðin í 3.-7.
sæti eru öll jöfn að stigum. Næsti
leikur Snæfells fer fram í kvöld, mið-
vikudaginn 18. október þegar liðið
mætir Njarðvík suður með sjó.
kgk/ Ljósm. sá.
Snæfell tapaði fyrir
Haukum í hörkuleik
Kristen McCarthy skorar hér tvö af 38 stigum sínum í leiknum.
Skallagrímur heimsótti Val í þriðju
umferð Domino‘s deildar kvenna í
körfuknattleik síðasta miðvikudag.
Leikurinn var jafn og spennandi og
fékk dramatískan endi. Úrslitin réð-
ust ekki fyrr en á lokasekúndunum
þar sem Valur marði sigur, 70-67.
Valskonur byrjuðu leikinn af
miklum krafti og réðu ferðinni í
fyrsta leikhluta. Þær höfðu 14 stiga
forskot að honum loknum, 25-11
en það átti eftir að breytast. Heima-
liðið byrjaði afleitlega í öðrum
fjórðungi á meðan Skallagrímskon-
ur léku á als oddi. á Aðeins fjórum
mínútum minnkuður þær muninn
í tvö stig, 26-24. Þá vöknuðu Vals-
konur aðeins til lífsins og leikurinn
varð jafn og spennandi til hálfleiks.
Valur leiddi með þremur stigum í
hléinu, 34-31.
Skallagrímskonur komu ákveðn-
ar til síðari hálfleiks og náðu for-
ystunni stutta stund. Valur komst þá
aftur yfir og hélt naumu forskoti til
loka þriðja leikhluta. Þá var staðan
53-48. Upphófst þá æsispennandi
lokafjórðungur. Skallagrímskonur
jöfnuðu í 57-57 en frá miðjum leik-
hlutanum höfðu Valskonur nokk-
urra stiga forskot. Skallagrímskon-
ur jöfnuðu aftur, í 63-63 þegar að-
eins tvær mínútur lifðu leiks. Leik-
urinn var í járnum á lokamínútun-
um. Valur skoraði en Skallagrímur
svaraði hverri körfu og Carmen Ty-
son-Thomas jafnaði metin enn fyrir
Borgnesinga þegar aðeins sex sek-
úndur voru eftir á klukkunni. En sex
sekúndur eru ótrúlega drjúgur tími
í körfubolta og það sönnuðu Vals-
konur. Þær stilltu upp í skot fyrir
utan þriggja stiga línuna sem Guð-
björg Sverrisdóttir setti niður um
leið og lokaflautan gall. Tryggði hún
Val þar með dramatískan á lokaand-
artökum leiksins, 70-67.
Carmen Tyson-Thomas setti
upp risatvennu fyrir Skallagrím í
leiknum. Hún skoraði 35 stig og
reif niður 18 fráköst. Sigrún Sjöfn
Ámundadóttir skoraði 18 stig, tók
10 fráköst og gaf 6 stoðsendingar en
aðrar höfðu minna.
Hallveig Jónsdóttir var atkvæða-
mest Valskvenna með 21 stig en
þær Elín Sóley Hrafnkelsdóttir og
Alexandra Petersen skoruðu 15 stig
hvor.
Skallagrímur hefur tvö stig eftir
fyrstu þrjár umferðir vetrarins og
situr sem stendur í 4. sæti deildar-
innar, en liðin í 2.-7. sæti eru öll jöfn
að stigum. Næst leikur Skallagrím-
ur í kvöld, miðvikudaginn 18. októ-
ber þegar liðið mætir Breiðabliki í
Borgarnesi.
kgk
Skallagrímur tapaði á flautukörfu
Risatvenna Carmen Tyson-Thomas
dugði ekki til að knýja fram sigur
Skallagríms.
Ljósm. fengin af
Facebook-síðu kkd. Snæfells.
Borgfirðingurinn Helgi Guðjóns-
son, sem spilar með meistaraflokki
Fram í knattspyrnu, var á upp-
skeruhátíð félagsins í síðustu viku
valinn efnilegasti leikmaður liðsins.
Guðmundur Magnússon var valinn
besti leikmaðurinn.
„Helgi, sem fæddur er árið 1999,
var að leika sitt annað tímabil með
meistaraflokki Fram og kom hann
við sögu í 21 deildar- og bikarleik
á tímabilinu og skoraði tvö mörk.
Helgi átti sæti í æfingahópi U19 ára
landsliðs Íslands á árinu. Hann hef-
ur leikið 12 leiki fyrir yngri landslið
Íslands og skoraði í þeim sjö mörk.
Fram væntir mikils af Helga í fram-
tíðinni og það verður gaman að
fylgjast með þessum mikla marka-
skorara á næstu árum,“ segir í um-
sögn Fram-liðsins.
mm
Helgi valinn efnilegasti
leikmaður Fram
Skallagrímsmenn gerðu
góða ferð austur í Hvera-
gerði á föstudag og sigruðu
Hamar, 88-100, í 1. deild
karla í körfuknattleik.
Skallagrímur byrjaði
betur í leiknum og leiddi
með sex stigum um miðjan
fjórðunginn, 8-14. Þá tóku
heimamenn góða rispu,
náðu forystunni og höfðu
tveggja stiga forskot eft-
ir fyrsta leikhluta, 20-18.
Hamarsmenn höfðu und-
irtökin í öðrum fjórðungi.
Þeir náðu níu stiga forskoti
um hann miðjan en eftir
það sóttu Skallagrímsmenn
í sig veðrið. Borgnesingar
minnkuðu muninn í eitt
stig, skömmu fyrir hálfleik
en voru fjórum stigum á
eftir í hléinu, 47-43.
Leikurinn var jafn og
spennandi eftir hléið.
Hvergerðingar leiddu en
Borgnesingar fylgdu þeim
eins og skugginn. Seint í leik-
hlutanum náði Hamar góð-
um spretti og tíu stiga forystu. Virt-
ist sem þeir ætluðu að sigla með
það forskot inn í lokafjórðunginn
en leikmenn Skallagríms voru ekki
á þeim buxunum. Þeir kláruðu leik-
hlutann af miklum krafti svo að-
eins munaði einu stigi fyrir fjórða
og síðasta leikhlutann, 73-72. Það
var síðan í upphafi lokafjórðungsins
að Skallagrímsmenn lögðu grunn-
inn að sigri í leiknum. Með
góðum spretti komust þeir
í 76-82 og litu aldrei til
baka eftir það. Þeir bættu
við forystuna það sem eftir
lifði og héldu heimamönn-
um í skefjum. Að lokum
fór svo að þeir unnu tólf
stiga baráttusigur, 88-100.
Zac Carter átti stórleik
fyrir Skallagrím og skor-
aði 36 stig. Eyjólfur Ás-
berg Halldórsson skoraði
16 stig, tók 9 fráköst og gaf
6 stoðsendingar. Darrell
Flake var með 15 stig og 9
fráköst og Atli Aðalsteins-
son skoraði 16 stig og tók
7 fráköst.
Skallagrímur hefur fullt
hús stiga eftir fyrstu þrjár
umferðir vetrarins og sit-
ur sem stendur í öðru sæti
1. deildarinnar. Toppsætið
vermir Breiðablik með jafn
mörg stig en næstu lið á
eftir hafa fjögur stig.
Næsti deildarleikur Skalla-
gríms fer fram föstudaginn
27. október. Er það nágrannas-
lagur við ÍA. Verður hann leikinn
í íþróttahúsinu við Vesturgötu á
Akranesi.
kgk
Skallagrímur vann baráttusigur á Hamri
Zac Carter átti stórleik í sigri Skallagríms.
Ljósm. Skallagrímur.