Skessuhorn


Skessuhorn - 17.01.2018, Blaðsíða 4

Skessuhorn - 17.01.2018, Blaðsíða 4
MIÐVIKUDAGUR 17. jANúAR 20184 Hjónin Ingibjörg Valdimarsdótt- ir og Eggert Hjelm Herbertsson á Akranesi gengu í árslok frá kaup- um á Borgarnes HI Hostel í Borg- arnesi, sem betur er þekkt sem Farfuglaheimilið við Borgarbraut 9-13. Seljandi er Farfuglar ses. sem átt hafa gististaðinn undanfar- in tvö ár. Þau Eggert og Ingibjörg eru með kaupunum að meira en tvöfalda gistiþjónustu á þeirra veg- um. Fyrir reka þau gistiþjónustu allt árið á tveimur stöðum á Akra- nesi undir nafninu Stay Akranes; í Kirkjuhvoli og farfuglaheimilinu við Suðurgötu. Alls eru gistirými á þessum stöðum 51 talsins. Í sum- ar munu þau líkt og undanfarin ár reka sumarhótel í húsnæði heima- vistar Fjölbrautaskóla Vesturlands. Nú bætist 67 rými við í Borgarnesi þannig að yfir sumarmánuðina mun þau geta boðið um 180 rúm til útleigu á þessum tveimur þétt- býlisstöðum. Húsnæði Borgarnes HI Hos- tel er um 700 fm og hefur mikið verið lagfært og endurbætt á liðn- um misserum. Í árslok var heim- ilið fyrsta farfuglaheimilið á Vest- urlandi til að hljóta Svansmerkið, norræna umhverfisviðurkenningu, en svanurinn var afhentur í Borg- arnesi af Kristínu Lindu Árnadótt- ur, forstjóra Umhverfistofnunar og Birgittu Stefánsdóttur sérfræðingi á sviði sjálfbærni við stofnunina. Eggert Herbertsson fram- kvæmdastjóri kveðst að vonum ánægður með kaupin og segir þau hafa verið í bígerð í nokkurn tíma. „Við sjáum fram á mikla samlegð í rekstri okkar með þessum kaup- um Farfuglaheimilisins í Borgar- nesi og teljum okkur geta gert bet- ur en hægt hefur verið með að reka þessar einingar aðskildar. Á þessu sviði eru vannýtt tækifæri sem við hyggjumst grípa,“ segir Eggert. mm Kirkjubraut 54-56 - Akranesi - Sími: 433 5500 - www.skessuhorn.is Skessuhorn kemur út alla miðvikudaga. Skilafrestur auglýsinga er kl. 14.00 á þriðjudögum. Auglýsendum er bent á að panta auglýsingapláss tímanlega. Skráningarfrestur smá- auglýsinga er til 12.00 á þriðjudögum. Blaðið er gefið út í 3.700 eintökum og selt til áskrifenda og í lausasölu. Áskriftarverð er 2.835 krónur með vsk. á mánuði. Elli- og örorkulífeyrisþegar greiða kr. 2.457. Rafræn áskrift kostar 2.226 kr. Rafræn áskrift til elli- og örorkulífeyrisþega er 2.058 kr. Áskrifendur blaðs fá 50% afslátt af verði rafrænnar áskriftar. Verð í lausasölu er 750 kr. SKRIFSTOFA BLAÐSINS ER OPIN KL. 9-16 VIRKA DAGA Útgefandi: Skessuhorn ehf. skessuhorn@skessuhorn.is Ritstjórn: Magnús Magnússon, ritstjóri s. 894 8998 magnus@skessuhorn.is Kristján Gauti Karlsson kgauti@skessuhorn.is Anna Rósa Guðmundsdóttir arg@skessuhorn.is Auglýsingar og dreifing: Hrafnhildur Harðardóttir auglysingar@skessuhorn.is Umbrot og hönnun: Tinna Ósk Grímarsdóttir tinna@skessuhorn.is Bókhald og innheimta: Guðbjörg Ólafsdóttir bokhald@skessuhorn.is Prentun: Landsprent ehf. Hvert fara peningarnir? Á síðustu dögum hefur almenningur, sveitarstjórnarfólk og jafnvel al- þingismenn látið á sér skilja að ekki verður lengur unað við ástand Vestur- landsvegar. Einkum hefur umræðan beinst að slæmu ástandi þjóðleiðar- innar um Kjalarnes. Þó er einnig rætt um Vesturlandveg alla leið í Borg- arnes, margir segja að endurvekja verði umræðuna um Sundabraut og þá er réttilega bent á að umferð um Hvalfjarðargöng nálgast ískyggilega þol- mörk öryggisstaðla. Ég fagna allri umræðu um þessi mál. Því háttar nú einu sinni þannig til að vegir eru lífæðar þeirra byggðarlaga sem byggja afkomu sína á að umferð sé greið, með fólk og varning. En á það hefur einnig verið bent að tekjur ríkissjóðs af umferð eru mun meiri en þau framlög sem ríkið leggur í uppbyggingu samgangna. Bergþór Ólason alþingismaður ritar áhugaverða grein í Skessuhorn í dag. Hann gegnir nú formennsku í samgöngu- og umhverfisnefnd Alþingis og var eitt sinn aðstoðarmaður Sturlu Böðvarssonar samgönguráðherra. Bergþór bendir meðal annars á að árið 2016 hafði ríkissjóður tekjur af ökutækjum og umferð upp á um 46 milljarða króna auk virðisaukaskatts. Á sama tímabili voru framlög ríkissjóðs til Vegagerðar um 26 milljarðar. Þar af leiðandi hurfu tæplega 44% af mörkuðum tekjustofnum til sam- gangna annað en í vegagerð. En hvert? Nú vill svo til að stutt er síðan kosið var til Alþingis. Á annan tug stjórn- málaflokka bauð fram krafta sína til starfa. Í loforðaflaumi þessara flokka minnist ég þess ekki að nokkur þeirra hafi lagt áherslu á sparnað í rekstri opinberra stofnana eða ráðuneyta. Ekki veit ég hverju það sætir, en renn- ur í grun að stjórnmálamenn hafi ekki viljað rugga þeim báti sem emb- ættismannakerfið rær á svona í blábyrjun kjörtímabils. Ég hef rætt þessi mál við ýmsa aðra sem reka fyrirtæki; bifvélavirkja, hárskera, fiskverkanda og smið. Allir eru sammála um eitt: Það er ekki lengur eftirsóknarvert að reka venjuleg fyrirtæki við þær aðstæður sem þeim er nú búið. Allir telja þeir skattlagningu launa vera búna að rjúfa þann múr sem menn telja ásættanlegan. Talið berst alltaf að hverju það sætir. jú, við kjósum að reka öflugt heilbrigðis- og menntakerfi. Menn eru almennt sáttir við það. Allir sakna hins vegar umræðunnar um fækkun stofnana, niðurskurð í rekstri hins opinbera og hagræðingu þegar kemur að ríkisrekstrinum. Telja að batteríið sé orðið svo stórt að kjörnir emb- ættismenn hafa hvorki vilja né kjark til að taka á því. Kannski finnst þeim þetta líka þægilegt? Ráðherrar eru umsvifalaust búnir að ráða einn, tvo eða jafnvel þrjá aðstoðarmenn, kaupa nýja svarta bíla og hlaða í kringum sig starfsfólki sem auðvitað kostar heilan helling. Vandamálið er það að aðrir borga. Ekki þeir sjálfir. Laun alls þessa fólks eru nefnilega greidd með alltof háu tryggingagjaldi og öðrum álögum á fyrirtæki og launafólk. En skattarnir okkar duga ekki lengur til að halda úti ofþöndu batteríi. Peningarnir sem til dæmis eru innheimtir af bifreiðaeigendum, í gegnum tolla og eldsneytisgjöld, fara í að greiða allt þetta stofnana- og aðstoðar- mannabix. Þeir fara ekki í vegina eins og upphaflega var ætlunin. Þess vegna er reynt að láta okkur skrölta áfram á ónýtum og stórhættulegum vegum. Almenningur á ekki og má ekki sætta sig við þetta ástand. Lífæð okkar til atvinnusóknar liggur um fjörutíu ára gamla og óboðlega vegi. Sjáið þið fyrir ykkur nýju ráðherrana sætta sig við að aka um á fjörutíu ára gömlum ráðherrabíl? Nei, sennilega ekki. Hættum að sætta okkur við að vera sett í ruslflokk og látum fólkið sem á að vera að vinna fyrir okkur á Austurvelli taka okkar hagsmuni framyfir hagsmuni embættismanna í anda þáttanna um já, ráðherra. Magnús Magnússon Leiðari Kaupa Farfuglaheimilið í Borgarnesi Eggert og Ingibjörg eru hér stödd á ferðakaupstefnu. Ljósm. úr safni Skessuhorns. Borgarnes HI Hostel er til húsa við Borgarbraut 9-13 í húsnæði sem eitt sinn var bæjarskrifstofa Í upphafi þessa árs barst sveitar- félögum í landinu reikningur frá lífeyrissjóðnum Brú, sem heldur utan um lífeyrismál starfsmanna sveitarfélaga. Krafan hljóðaði upp á 40,2 milljarða króna sem skiptist þó með misjöfnum hætti á sveitar- félög og opinber fyrirtæki í hlut- falli við fjölda starfsfólks og ýmsa aðra þætti. Bakreikningur Brúar nú er til kominn vegna uppgjörs á langvarandi halla á A-deild sjóðs- ins sem ekki hefur reynst sjálfbær og því ekki staðið undir þeim for- sendur sem reiknað hafði verið með þegar til sjóðsins var stofn- að. Rekja má vaxandi halla Brúar til slæmra fjárfestinga, breytinga á aldurssamsetningu þjóðarinn- ar og hækkandi meðalaldurs líf- eyrisþega. Ávöxtun sjóðsins hef- ur þannig, samkvæmt heimildum Skessuhorns, verið neikvæð um nokkur prósent á liðnum árum. Þrátt fyrir að lengi hafi legið fyr- ir að eftirákrafa kæmi frá sjóðnum hafa ýmsir forsvarsmenn sveitarfé- laga gagnrýnt í fjölmiðlum skort á upplýsingastreymi, ekki síst hversu seint útreikningar lágu nú fyrir. Í upphafi árs hafi t.d. nær öll sveitar- félög samþykkt fjárhagsáætlun árs- ins. Sveitarfélögin fá nú tækifæri til að ganga frá sínum málum við Brú með annað hvort skuldayfirlýsingu eða hreinlega með greiðslu kröf- unnar. Ljós í myrkrinu er að tekjur sveitarfélaga í fyrra voru almennt meiri en áætlanir gerðu ráð fyrir, einkum vegna meiri útsvarstekna sem rekja má til launahækkana. Nú fá öll sveitarfélög bakreikn- ing. Brú hefur hins vegar ekki upplýst með samræmdri tilkynn- ingu hvernig þessir 40 milljarðar skiptast milli þeirra. Samkvæmt heimildum Skessuhorns er til dæmis um að ræða 500 milljónir króna í tilfelli Akraneskaupstað- ar, 244 milljónir hjá Borgarbyggð og um 250 í Stykkishólmsbæ. Til samanburðar má nefna að fram hefur komið í fréttum að hlutur Reykjavíkurborgar er 14,6 millj- arðar króna. Hluta þessarar upp- hæðar verða sveitarfélögin að greiða strax en hafa val um lántöku og greiða eftirstöðvarnar niður á næstu árum og áratugum. Í tilfelli Borgarbyggðar var sam- þykkt samhljóða á fundi sveitar- stjórnar í liðinni viku að stað- greiða 244 milljóna kröfuna frá Brú. Það reyndist unnt þar sem greiðsla úr jöfnunarsjóði reyndist um 100 milljónum króna hærri en áætlað hafði verið og skatttekjur sömuleiðis. Borgarbyggð tekur því ekki lán fyrir kröfunni en vissulega mun þessi upphæð skerða fjárhags- lega burði sveitarfélagsins á næstu misserum. „Með því að greiða þessa kröfu upp þá losnar Borgar- byggð undan verulegum vaxta- og verðbótakröfum auk lántökukostn- aðar á komandi árum,“ sagði með- al annars í bókun sveitarstjórnar. Að sögn Sturlu Böðvarsson- ar, bæjarstjóra í Stykkishólmi, fær bæjarfélagið kröfu um greiðslu 250 milljóna í heildina. „Fimmta partinn af þeirri upphæð verður að greiða nú í febrúar. Hitt er upp- hæð sem greiðist á þrjátíu árum inn í sjóðinn,“ segir Sturla. Hann segir að líta verði jákvætt á þessar greiðslur jafnvel þótt menn kveinki sér undan að greiða þær nú. „Þarna er náttúrlega verið að bæta lífeyr- isréttindi starfsmanna sveitarfélag- anna og tryggja þau til frambúðar. Að því leyti er þetta mikilvæg að- gerð og gerð til að bæta fyrir að í fortíðinni var vanreiknað hvað þurft hefði að greiða í lífeyrissjóð starfsmanna sveitarfélaga. Þetta kemur sér því vel fyrir starfsfólk okkar og byggir upp sjóðinn,“ seg- ir Sturla. mm Sveitarfélög fá háa bakreikninga vegna lífeyrisskuldbindinga

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.