Skessuhorn


Skessuhorn - 17.01.2018, Blaðsíða 20

Skessuhorn - 17.01.2018, Blaðsíða 20
MIÐVIKUDAGUR 17. jANúAR 201820 ina við steinbryggjuna og allt innra hafnarsvæðið. Ekki liggur enn fyrir hvort fjárveiting fæst til verksins en í fjárhagsáætlun 2018 er þetta verk- efni fjármagnað að þeim hluta sem tilheyrir hafnarsjóði. Þá er gert ráð fyrir fjárframlagi til framkvæmda við Skipavíkurhöfn vegna áforma um stækkun hafnarsvæðis fyrir enn frekari iðnaðarstarfsemi í Skipavík. Er þar um að ræða áform Skipavík- ur um aukna starfsemi og ekki síst áform Deltagen Iceland í samstarfi við Matís um nýtingu þangs og þör- unga úr Breiðafirði til framleiðslu verðmætra efna sem eru unnin úr þörungum. Verði það verkefni sett af stað þarf að huga að enn stærri framkvæmd við hafnargerð og verður þá að stokka framkvæmda- áform upp og leita eftir fjárveitingu til þess verks í samræmi við áætlun sem vinna þarf í samstarfi við fram- kvæmdaaðila. Miklu skiptir varð- andi framkvæmdaáform að höfnin er nú rekin með hagnaði. Verði af því að þangið verði nýtt til vinnslu munu tekjur hafnarinnar aukast í samræmi við löndun þangs og þör- unga sem eru verðmæt og setja þarf nýja gjaldskrá sem tryggir sann- gjarnar tekjur vegna umferðar um hafnarmannvirkin. Söfnin í bænum Framlög Stykkishólmsbæjar til safnastarfsemi er veruleg upphæð þegar borið er saman við sambæri- leg sveitarfélög. Stykkishólmsbær greiðir kostnað við rekstur Vatna- safnsins, Eldfjallasafnsins, Amts- bókasafnsins, skólabókasafns og hluta kostnaðar við byggðasafnið í Norska húsinu á móti nágranna- sveitarfélögunum. Í tengslum við fjárhagslega endurskipulagningu við upphaf þessa kjörtímabils var gert ráð fyrir því að sameina söfn- in undir einn hatt og stofna safn- aráð. Er áfram gert ráð fyrir því nema Amtsbókasafnið og skóla- bókasafnið verða rekin saman við hlið grunnskólans. Með sérstökum samningi við sveitarfélögin á Snæ- fellsnesi hefur Stykkishólmsbær tekið við rekstri Norska hússins og er þess að vænta að samstarfsaðil- ar við rekstur Vatnasafns og Eld- fjallasafns gangi til samvinnu um að auka hagkvæmni eftir þeim leið- um sem færar eru við samruna safn- anna í eina rekstrarlega heild. Það er mat bæjaryfirvalda að með slíku samstarfi eða samruna mætti með öflugu kynningarstarfi auka að- sókn að söfnunum og um leið auka tekjur sem mætti nýta til enn frek- ari uppbyggingar á húsakosti safn- anna. Opnunartími safnanna tekur mið af því hversu mikil áhersla er lögð á það hjá fyrirtækjum í ferða- þjónustu að hafa opna þjónustu allt árið. Sú skipan leiðir til hærri rekstrarkostnaði hjá söfnunum og er það í raun sérstakt framlag bæj- arins til ferðaþjónustunnar í bæn- um. Amtsbókasafn - stofnun mennta, menn- ingar og upplýsinga- tækni rís við skólann Nýtt hús er risið við Grunnskóla Stykkishólms sem hýsir skólabóka- safnið, ljósmyndasafnið og almenn- ingsbókasafnið. Amtsbókasafnið er stærsta einstaka verkefnið sem unn- ið er að á vegum bæjarins. Verkið var boðið út í byrjun ársins 2016 og er verkinu lokið. Með því að byggja yfir bókasöfnin og ljósmyndasafn- ið er stigið mikilvægt skref í því að efla bókmenningu og tengja hana skólanum þar sem í gangi er sér- stakt átak við að efla læsi. Það átak að efla læsi er í samræmi við þann samning sem mennta- og menn- ingarmálaráðherra gerði við for- eldrafélög, grunnskóla og sveitar- félögin í landinu. Sameining bóka- safnanna og efling þeirra er í sam- ræmi við skólastefnu Stykkishólms- bæjar og er vissulega ástæða til þess að tengja saman starfið í skólanum og þá þjónustu sem almennings- bókasafnið hefur að bjóða. Skólinn á að geta nýtt húsnæði bókasafnsins og þar með er dregið úr þörfinni fyrir það húsnæði sem var ætlað að byggja fyrir grunnskólann austan við skólahúsið ásamt með tónlist- arskólahúsi. Þau byggingaráform verða nú endurmetin í ljósi reynsl- unnar sem fæst af því að nýta að- stöðuna í Amtsbókasafninu. Þá er vert að vekja athygli á því hversu mikils virði það er að almenningur geti tengst skólastarfinu í gegnum þjónustu bókasafnsins og að nem- endur geti kynnst góðu bókasafni og ljósmyndasafninu sem þarf að uppfæra og skrá sem best svo bæj- arbúar eigi sem bestan aðgang að þeirri sögu um fólkið í bænum sem ljósmyndunum fylgir. Í Amtsbóka- safninu er sérstök aðstaða til tölvu- vinnslu sem á að ýta undir og nýta upplýsingatæknina í tengslum við bókasafnið og þó einkum við skól- ann. Grunnskólinn - viðhald og endurbætur Með því að færa skólabókasafnið losnar mikið rými sem nú er nýtt til kennslu og skapar skilyrði til þess að stækka vinnuaðstöðu fyrir kennara. Starfsaðstaðan í skólanum batnar því til muna. Í tengslum við þessar breytingar í skólanum var unnið að viðhaldi hússins, endur- nýjun gólfefna og húsgagna. Áfram þarf að stefna að byggingu að aust- an við skólann þar sem á að koma viðbygging fyrir tónlistarskólann og sérkennslustofur. Með þeirri viðbót mun verða mikil hagræðing við það að bæði grunnskóli, tónlist- arskóli og bókasöfnin verða tengd saman. Þá er gert ráð fyrir því að endurskipuleggja og byggja upp skólalóðina. Verður að vinna það verkefni í þeim áföngum sem hag- kvæmt er milli anna í skólanum. Starfsemi Félags- og skólaþjónustu er vaxandi Félags- og skólaþjónusta Snæfell- inga gegnir mikilvægu hlutverki og hefur sannað sig sem mikilvæg stofnun. Með sérstökum samn- ingi hefur bæst við nýr þjónustu- þáttur við fatlaðan einstakling, svo- nefnd notendastýrð persónuleg að- stoð – NPA. Þar með er mikilvæg- um áfanga náð í því verkefni sem er lagaskylda sveitarfélaga við fatlaða einstaklinga. jafnframt hefur Fé- lags- og skólaþjónustan undirbú- ið að byggja upp búsetuúrræði fyr- ir fatlaða einstaklinga á Snæfells- nesi. Þá er vert að geta þess að Fé- lags- og skólaþjónustan hefur sam- ið við Skipavík hf. um að taka á leigu nýtt húsnæði fyrir starfsemi Ásbyrgis sem verður byggt á lóð- inni Aðalgötu 22. Í Ásbyrgi rek- ur FSS vinnustofu/dagþjónustu- og hæfingarstöð fatlaðs fólk. Uns það verður tekið í notkun verð- ur Ásbyrgi til húsa í Hafnargötu 7 þar sem áður var bókasafnið og þar áður skemma Kaupfélags Stykk- ishólms svo sem einhverjir muna. Það hús seldi bærinn Marz - Sjávar- afurðum. Það verður til útleigu enn um hríð, vegna kærumála þeirra sem vildu koma í veg fyrir að bóka- safnið kæmist í nýtt húsnæði og eig- endur skemmunnar gætu rifið hana og byggt nýtt fallegt hús á lóðinni, sem félli að gömlu glæsilegu hús- unum sem prýða miðbæinn. Rekstur áhaldahúss bæjarins Nokkur áherslubreyting var gerð við rekstur áhaldahússins með því að hætt var rekstri gröfu en þess í stað samið við verktaka um alla gröfuvinnu. jafnframt var hafin endurnýjun minni tækja með kaup- um á dráttarvél og þjónustubifreið sem nýtast mun bæði áhaldahúsi og Stykkishólmshöfn. Brunavarnaáætlun og bættur búnaður Slökkviliðs Stykkis- hólms og nágrennis Síðustu ár hefur verið unnið mark- visst að endurnýjun á tækjakosti slökkviliðsins. Á síðasta ári var keyptur til landsins tankbíll sem lengi hefur verið beðið eftir og einnig endurnýjaðar bílaklippur. Gert er ráð fyrir því í fjárhagsáætl- un að halda áfram endurnýjun bún- aðar. Þá er þess að geta að lokið var fyrir stuttu við brunavarnaáætlun sem slökkviliðsstjórar og bygginga- fulltrúi hefur unnið að og er mik- ilvægt framtak sem nú verður lögð fram í bæjarstjórn til afgreiðslu og fyrir Mannvirkjastofnun til stað- festingar. Það er bjart framundan Svo sem að framan er getið þá er rekstrarleg og efnahagsleg staða Stykkishólmsbæjar ágæt. Lausa- fjárstaðan í ársbyrjun þessa árs er þrengri en var í byrjun síðasta árs vegna mikilla framkvæmda. Áætlun gerir ráð fyrir ásættanlegum rekstr- arafgangi árið 2018 og skuldahlut- fallið er vel viðunandi miðað við áform í fjárhagsáætlun. Næg at- vinna er og vinnandi höndum fjölg- ar í bænum. Það er bjart ár fram- undan ef áætlanir okkar og áform ganga eftir. Stykkishólmi, 12. janúar 2018, Sturla Böðvarsson, bæjarstjóri Stykkishólmsbæjar. Ljósm. úr safni Skessuhorns / Sumarliði Ásgeirsson. Hér er bygging Amtsbókasafnsins á lokastigi. „Viðhaldi opinna leikvalla í bænum hafði ekki verið nægjanlega sinnt mörg undanfarin ár. Í samstarfi við Rólóvinafélagið hefur verið hafist handa við viðhald og endurnýjun leiktækja og lagfæringar á völlunum.“ Hagleikssmiðja Smávina var opnuð á árinu í Stykkishólmi.

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.