Skessuhorn


Skessuhorn - 17.01.2018, Blaðsíða 7

Skessuhorn - 17.01.2018, Blaðsíða 7
MIÐVIKUDAGUR 17. jANúAR 2018 7 Álagning vatns- og fráveitugjalda fyrir árið 2018 liggur nú fyrir. Viðskiptavinir geta skoðað álagningarseðla á Mínum síðum á veitur.is. Til að komast inn á Mínar síður getur þú notað rafræn skilríki, Íslykil eða fengið sent lykilorð í rafræn skjöl í heimabankanum þínum. Í samræmi við stefnu okkar um pappírslaus viðskipti fá einungis viðskipta- vinir 69 ára og eldri heimsenda álagningar- og greiðsluseðla. Aðrir fara sjálfkrafa í netgreiðslur hafi þeir ekki óskað eftir pappír. Hægt er að breyta greiðslumáta á veitur.is eða í þjónustuveri okkar í síma 516 6000. Álagning vatns- og fráveitugjalda 2018 Veitur sjá um rekstur hitaveitu, rafveitu, vatnsveitu og fráveitu. Nánari upplýsingar um þjónustu okkar má finna á veitur.is BÓNDADAGURINN ÚTSALAN í fullum gangi SK ES SU H O R N 2 01 7 Í tilefni bóndadagsins bjóðum við 15% afslátt af herra ilm- og snyrtivörum Gildir fimmtudag, föstudag og laugardag SK ES SU H O R N 2 01 8 Jákvæðni, metnaður og víðsýniwww.akranes.is Samgöngumál á Vesturlandi Opinn fundur um samgöngumál á Vesturlandi Miðvikudaginn 24. janúar kl. 18:00 til 20:00 í Tónbergi, sal Tónlistarskólans á Akranesi Fundarstjóri er Páll S. Brynjarsson Dagskrá fundarins: 18:00 Rakel Óskarsdóttir bæjarfulltrúi á Akranesi setur fundinn 18:10 Eyjólfur Árni Rafnsson formaður starfshóp um möguleika á framkvæmdum á stofnleiðum í nágrenni Reykjavíkur og fjármögnun þeirra 18:30 Geirlaug Jóhannsdóttir sveitarstjórnarfulltrúi og formaður byggðarráðs Borgarbyggðar 18:50 Kristinn Jónasson bæjarstjóri í Snæfellsbæ 19:05 Sigurður Ingi Jóhannesson samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra 19:25 Opnað fyrir umræður í sal 19:50 Sævar Freyr Þráinsson bæjarstjóri á Akranesi slítur fundi Boðið verður upp á súpu og hressingu þegar fundi lýkur. Nánari upplýsingar og skráning á fundinn má nálgast á vef Akraneskaupstaðar, www.akranes.is. Erum einnig á facebook – Fundur um samgöngumál á Vesturlandi. Ekið var með aðalvél flóabátsins Baldurs út úr húsnæði Stálsmiðjunn- ar Framtaks í Garðabæ 9. janúar síð- astliðinn, rúmum mánuði eftir að farið var með hana suður til viðgerð- ar. Eins og fram hefur komið í frétt- um Skessuhorns varð alvarleg bilun í vélinni í lok nóvember og hefur skip- ið verið bundið við kajann frá þeim tíma. Í síðustu viku var vélinni kom- ið um borð í skipið og er nú unnið að fínstillingu hennar og í framhaldi þess prufukeyrslu. Sæferðir sendu síðast frá sér tilkynningu 3. janú- ar vegna viðgerðanna. Þar segir að ísetning og stilling vélar muni taka um tíu daga. „Þetta þýðir að Baldur mun ekki hefja siglingar aftur fyrr en um 18.-20. janúar.“ mm/ Ljósm. sá. Aðalvél Baldurs komin um borð Til stendur að rýma húsnæði Veitna við Dalbraut á Akranesi vegna myglu sem þar fannst og flytja starfsemina í þar til gerða skrifstofugáma. Þetta staðfestir Inga Dóra Hrólfsdótt- ir, framkvæmdastjóri Veitna í sam- tali við Skessuhorn. „Í haust vökn- uðu grunsemdir um myglu í hús- næðinu við Dalbraut og voru starfs- menn Veitna á Akranesi umsvifa- laust upplýstir um málið. Í kjöl- far þess var ákveðið að taka enga áhættu og flytja skrifstofurnar í þar til gerða skrifstofugáma, sem eru að ég held bara mjög góð aðstaða með sérhönnuðum skrifstofurýmum og kaffistofum,“ segir Inga Dóra í sam- tali við Skessuhorn. „Byrjað verður að setja gámana upp í lok vikunnar eða byrjun næstu en ekki er búið að ákveða hver næstu skref verða,“ seg- ir Inga Dóra. kgk Mygla fannst á skrifstofum Veitna á Akranesi Húsnæðið verður rýmt og skrifstofur fluttar í gáma Húsnæði Veitna við Dalbraut á Akranesi. Ljósm. ja.is.

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.