Skessuhorn


Skessuhorn - 17.01.2018, Blaðsíða 8

Skessuhorn - 17.01.2018, Blaðsíða 8
MIÐVIKUDAGUR 17. jANúAR 20188 Aflatölur fyrir Vesturland dagana 6.-12. janúar Tölur (í kílóum) frá Fiskistofu: Akranes: Engar landanir á tímabilinu. Arnarstapi: Engar landanir í vikunni. Grundarfjörður: 8 bátar. Heildarlöndun: 570.879 kg. Mestur afli: Bylgja VE: 149.173 kg í tveimur lönd- unum. Ólafsvík: 20 bátar. Heildarlöndun: 294.678 kg. Mestur afli: Kristinn SH: 41.800 kg í fjórum róðrum. Rif: 16 bátar. Heildarlöndun: 531.552 kg. Mestur afli: Tjaldur SH: 130.725 kg í tveimur lönd- unum. Stykkishólmur: 5 bátar. Heildarlöndun: 41.015 kg. Mestur afli: Þórsnes SH: 24.470 kg í tveimur lönd- unum. Topp fimm landanir á tímabilinu: 1. Bylgja VE - GRU: 82.692 kg. 12. janúar. 2. Tjaldur SH - RIF: 69.215 kg. 12. janúar. 3. Bylgja VE - GRU: 66.481 kg. 8. janúar. 4. Örvar SH - RIF: 66.017 kg. 7. janúar. 5. Tjaldur SH - RIF: 61.510 kg. 7. janúar. -kgk Ilmolíur skaðlegar gæludýrum LANDIÐ: Ilmolíur á heim- ilum geta verið skaðlegar gæludýrum, einkum kött- um, segir í frétt frá dýra- velferðarsviði Matvæla- stofnunar. „Mikilvægt er að gæludýraeigendur takmarki notkun á skaðlegum ilmolí- um og aðgang gæludýra að þeim. Vinsælt er að nota alls kyns ilmolíur á heimilum. Þar finnast þær ýmist í opn- um flöskum, rakatækjum, ilmkertum eða er úðað út í andrúmsloftið. Matvæla- stofnun varar gæludýra- eigendur við mikilli notk- un á svæðum þar sem gælu- dýr eru haldin og ráðlegg- ur þeim að skoða vel hvort þær tegundir af olíum sem er verið að nota gætu verið skaðlegar fyrir gæludýrin. Kettir geta verið sérstak- lega viðkvæmir fyrir sum- um af þessum olíum vegna skorts á hvötum til að brjóta niður efnin í lifur.“ -mm Vilja bæta stöðu foreldra langveikra barna LANDIÐ: „Stjórn Styrkt- arfélags krabbameinssjúkra barna tekur undir áskorun Umhyggju frá 3. janúar sl. þar sem Umhyggja skorar á yfirvöld að leiðrétta taf- arlaust þá mismunun sem á sér stað gagnvart þeim sem fá foreldragreiðslur annars vegar og hins vegar þeim sem fá grunngreiðslur skv. lögum nr. 22/2006 um greiðslur til foreldra lang- veikra eða alvarlega fatl- aðra barna. Þeir sem fá for- eldragreiðslur geta verið í minnkuðu starfshlutfalli samhliða greiðslunum og greitt af þeim í lífeyrissjóð og stéttarfélag en hvorugt á við um grunngreiðslur, þ.e. ekki er hægt að fá þær sam- hliða minnkuðu starfshlut- falli og ekki er heimilt að greiða af þeim í stéttarfélag og lífeyrissjóð,“ segir í til- kynningu frá félaginu. SKB hvetur yfirvöld um leið til að leiðrétta stöðu náms- manna sem þurfa að sinna veikum börnum. „Vilji þeir minnka námshlutfall sitt fyrirgera þeir rétti sínum til námslána en eiga einungis rétt á greiðslum frá Trygg- ingastofnun geri þeir al- gjört hlé á námi. Kostirn- ir eru því tveir í stöðunni. Annað hvort að framfleyta sér á námslánum og vera í fullu námi, sem er nán- ast ógerlegt með alvarlega veikt barn, eða fá greiðslur frá Tryggingastofnun og hætta námi, sem er súrt í broti fyrir þann sem vill ekki missa niður þráðinn og treystir sér til að sinna námi að hluta. t.d. í fjarnámi.“ Frá því á laugardagsmorgun hef- ur verið brunavakt í íþróttahúsinu við Vesturgötu á Akranesi. Ástæð- an er sú að brunavarnakerfi hússins reyndist við skoðun vera óvirkt. „Ég kom hingað á laugardagsmorgun til að vinna að umsögn vegna þorra- blótsins sem stendur til að halda hér um helgina. Þá sé ég að kerfið er ekki virkt og set strax vakt á hús- ið,“ segir Þráinn Ólafsson, slökkvi- liðsstjóri Slökkviliðs Akraness og Hvalfjarðarsveitar, í samtali við Skessuhorn. „Síðan þá hefur verið vakt á húsinu alla daga og verður áfram á þeim tímum sem starfsemi er í því, eða þar til brunavarnakerf- ið er komið í lag. Við höfum ver- ið þrír á vakt þessa daga, ég sjálfur og tveir slökkviliðsmenn með mér hverju sinni,“ segir Þráinn. Aðspurður kveðst hann ekki geta sagt til um hvers vegna brunavarna- kerfi hússins var ekki virkt. „Ég veit ekki hvers vegna eða hve lengi kerf- ið hefur verið óvirkt. Núna er ver- ið að laga það og ég reikna með að kerfið verði komið í gagnið innan fárra daga,“ segir Þráinn. Hann lítur málið alvarlegum augum, enda starfsemi í íþróttahúsinu frá því snemma morguns þar til seint að kvöldi. „Þetta er grafalavarlegt mál. Það er forskrifað í lögum að brunavarnakerfi eigi að vera í svona byggingum. Það er algjört grund- vallaröryggisatriði. Að kerfið hafi ekki verið virkt er algerlega óásætt- anlegt,“ segir slökkviliðsstjórinn að endingu. kgk Brunavakt í íþróttahúsinu við Vesturgötu Slökkviliðsbíllinn við inngang íþróttahússins við Vesturgötu. Starfsemi er í íþróttahúsinu frá morgni til kvölds. Brunavakt verður á staðnum þar til bruna- varnakerfinu hefur verið komið í gagnið að nýju. Búið er að rífa fjögur efnissíló Sem- entsverksmiðjunnar á Akranesi sem rækilega komust í fréttir beggja megin við áramótin. Hófst niðurrif þeirra með vélum að morgni síðasta miðvikudags. Þá höfðu þegar verið gerðar tvær tilraunir til að sprengja sílóin niður, en án árangurs. Var því brugðið á það ráð að rífa sílóin með vélum. Beltagrafa með gripskóflu var notuð til verksins. Gekk vinnan greiðlega fyrir sig og á fimmtu- dagsmorgun var búið að rífa sílóin, aðeins sólarhring eftir að sú vinna hófst. Það er fyrirtækið Work North ehf. sem annast niðurrif á bygging- um og búnaði Sementsverksmiðj- unnar sálugu. Á hádegi á fimmtudag, þegar búið var að rífa sílóin, var opnað fyrir umferð um Faxabraut að nýju. Gatan hafði þá verið lokuð vegna hrunhættu um tveggja vikna skeið, eða frá því fyrst var gerð tilraun til að sprengja sílóin niður. kgk Sílóin fallin Efnissíló Sementsverksmiðjunnar voru rifin með beltagröfu með gripskóflu. Byrjað var að rífa sílóin að morgni síðasta miðvikudags, en þessi mynd er tekin í hádeginu þann dag. Ljósm. ki. Búið að jafna sílóin við jörðu, daginn eftir að sú vinna hófst. Fimmtudaginn 18. janúar flyt- ur Guðrún Bjarnadóttir erindi í Safnahúsi Borgarfjarðar um jurta- litun. Guðrún er náttúrufræðingur og hefur á undanförnum árum sér- hæft sig í jurtalitun og miðlun upp- lýsinga um hana. Hún kennir grasa- fræði við Landbúnaðarháskólann, en hennar aðalstarf er að reka jurta- litunarvinnustofuna Hespuhúsið þar sem hún jurtalitar íslenska ull og tekur á móti gestum og fræðir um litunaraðferðir. Í fyrirlestrinum verður farið yfir litunarhefðina frá landnámi til okkar daga. Guðrún er fædd í Reykjavík en hefur verið búsett í Borgarfirði frá því árið 2003. Hún er menntuð frá Landbúnaðarháskóla Íslands á Hvanneyri með BS próf í Bú- vísindum og MSc próf í náttúru- fræðum. Meistararitgerð hennar fjallaði um grasnytjar, hvernig villt- ur gróður var nýttur í gamla daga. Hún er einnig menntaður dýra- hjúkrunarfræðingur frá USA og er með kennsluréttindi fyrir fram- haldsskóla frá Háskólanum á Akur- eyri. Guðrún á að baki fjölbreyttan starfsferil þar sem hún hefur starf- að sem landvörður í Mývatnssveit og Skaftafelli þar sem hún fór með gestum í grasafræðslugöngur. Hún lærði að þekkja jurtirnar frá ömmu sinni og alnöfnu á Akranesi og lærði hannyrðir hjá móður sinni sem var handavinnukennari. Guðrún hefur alltaf haft áhuga á íslensku sauð- kindinni og ullinni og jurtalitunin sameinar öll þessi áhugamál. Fyrirlesturinn í Safnahúsinu verður kl. 20.00 fimmtudaginn 18. janúar, í Hallsteinssal á efri hæð Safnahúss. Framsagan tekur um 45 mínútur, síðan verða umræður og kaffispjall. Allir velkomnir og að- gangur er ókeypis, dagskrá lýkur um 21.15. mm Guðrún fjallar um jurtalitun í Safnahúsinu

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.