Skessuhorn - 17.01.2018, Blaðsíða 10
MIÐVIKUDAGUR 17. jANúAR 201810
Vilhjálmur Egilsson, rektor Háskól-
ans á Bifröst, kveðst í samtali við
Skessuhorn vera bjartsýnn í upp-
hafi nýs árs og nefnir m.a. að að-
sókn nýnema á áramótum hafi ver-
ið mun meiri en undanfarin ár. Þá
var rekstur skólans á síðasta ári já-
kvæður, en á sama tíma fyrir ári var
um 50 milljóna króna tap. Loks hef-
ur mikið áunnist í sölu eigna og þar
með afléttingu skulda sem hvílt hafa
á skólanum og dótturfélögum sem
átt hafa og rekið íbúðarhúsnæði.
Nú hafa íbúðir í eigu tveggja íbúða-
félaga á Bifröst, Selfells ehf., sem
átti Sjónarhól, og Vikrafells ehf.
sem átti aðra, þriðju og fjórðu hæð
Hamragarða, verið seldar en þetta
er um helmingur íbúðaeininga í há-
skólaþorpinu. Kaupandi er óstofn-
að hlutafélag í eigu tveggja manna,
þeirra Reynis Karlssonar lögmanns
og Braga Sveinssonar bókaútgef-
anda. Fyrir liggur samkomulag um
að þeir kaupi jafnframt rekstur Hót-
els Bifrastar og neðstu hæðina í
Hamragörðum þar sem skólinn hef-
ur m.a. verið með bókasafn og skrif-
stofur.
Vilhjálmur segir að með þessu sé
verið að stíga mikilvæg skref í fjár-
hagslegri endurskipulagningu íbúða-
félaganna á Bifröst. „Í framhaldinu
verður svo væntanlega gerður sér-
stakur samningur um fjárhagslega
endurskipulagningu á Kiðá ehf. en
það félag á og rekur annað íbúðar-
húsnæði á Bifröst, svo sem Kotin og
Garðana. Þessari eignasölu fylgir að
endurskipuleggja þarf notkun á hús-
næði skólans og flytja til kennsluað-
stöðu, bókasafn og skrifstofur sem
hafa verið á fyrstu hæð Hamragarða.
„Miklar breytingar þurfa að verða
um garð gengnar fyrir upphaf næsta
skólaárs til þess að aðstaða nemenda
verði áfram eins og best verður á
kosið,“ segir Vilhjálmur.
Gert upp með hagnaði
Rekstur Háskólans á Bifröst lagað-
ist að sögn Vilhjálms mikið á árinu
2017. „Gripið var til aðgerða til að
lækka launakostnað um 61,5 millj.
kr., m.a. með nýju launakerfi. Al-
þingi hækkaði framlög til skólans
frá fjárlagafrumvarpi til fjárlaga um
46,3 millj. kr. Þetta skipti sköpum
og væntalega verður rekstur skól-
ans gerður upp með smávægilegum
afgangi fyrir árið 2017 en á árinu
2016 varð 49,5 millj. kr. tap,“ segir
Vilhjálmur. Nú hefur rekstraráætl-
un fyrir árið 2018 verið samþykkt
af stjórn skólans. Vilhjálmur seg-
ir að hún miðist við áframhaldandi
smávægilegan afgang af rekstrin-
um. „Framlag ríkisins hækkar um
tæpar 30 millj. kr. milli ára sem er
vel viðundandi ekki síst í ljósi þess
að hækkunin á árinu 2017 hélst
áfram inni. Gert er ráð fyrir áfram-
haldandi aðhaldi í rekstri skólans
en nokkurt svigrúm fæst þó til við-
haldsverkefna og fjárfestinga í nýrri
tækni og upplýsingakerfum. Laun
fastra starfsmanna og stundakenn-
ara hækka almennt um 6% þann
1. júlí 2018 en ekki verða miklar
breytingar á mannahaldi þegar á
heildina er litið,“ segir Vilhjálmur
að endingu. mm
Búið er að selja um helming íbúða á Bifröst
Hátt í fjörutíu iðnaðarmenn starfa
nú við byggingu á nýju hóteli,
verslunarrými og íbúðablokk við
Borgarbraut 57-59 í Borgarnesi.
Stefnt er á að hótelið verði tilbúið
til móttöku fyrstu gesta í vor en að
lokið verði við byggingu íbúða-
blokkarinnar síðari hluta þessa
árs.
jóhannes Freyr Stefánsson hjá
Ánaborg ehf. fer með verkstjórn
á byggingarstað en það er fyrir-
tækið Hús og lóðir ehf. sem fjár-
festir í mannvirkjunum. Húsin eru
reist úr forsteyptum einingum frá
Smellinn. jóhannes segir í samtali
við Skessuhorn að framkvæmdir
hafi gengið vel eftir að þær fóru í
gang að nýju eftir hlé á síðasta ári
sem varð vegna deilna um skipulag
á miðbæjarreitnum. Byggingarnar
samanstanda af 84 herbergja hót-
eli á fimm hæðum, fjögur hundruð
fermetra tengibyggingu á jarðhæð
sem hugsuð er fyrir verslun og/
eða þjónustu auk 28 íbúða blokkar
á sjö hæðum en þær verða boðnar
til sölu fyrir eldri borgara. Alls er
byggingamagnið 8500 fermetrar
og því langstærsta einstaka bygg-
ingaframkvæmdin sem í gangi er
í héraðinu.
jóhannes Freyr fór með blaða-
manni Skessuhorn um hótelbygg-
inguna og tengibyggingu á jarð-
hæð. Eftir á að reisa tvær síðustu
hæðir íbúðablokkarinnar. Ljóst er
að engu er til sparað í byggingu
húsanna en herbergi á hótelinu
verða rúmgóð og með góðu út-
sýni. Á efstu hæð eru hótelíbúðir
og frá svíta í suðvesturhorni bygg-
ingarinnar er stórbrotið útsýni
yfir héraðið. Á jarðhæð hótelsins
verður m.a. matsalur, móttaka,
bar og fundaherbergi en í kjall-
ara verður t.d. aðstaða fyrir sauna
og heitir pottar. Í fjögur hundr-
uð fermetra tengibyggingu milli
húsanna er gert ráð fyrir að hægt
verði að stúka svæðið niður í t.d.
fjögur aðskilin hundrað fermetra
verslunarrými. Í kjallara undir
tengibyggingunni verða bílastæði
fyrir íbúðablokkina. Aðspurður
segir jóhannes að mikið sé spurt
út í íbúðir í fjölbýlishúsinu en sala
á þeim hefjist þó ekki fyrr en líður
nær verklokum.
mm
Hótel og íbúðablokk í Borgarnesi
Byggingarnar setja mikinn svip á miðbæ Borgarness, en stutt er í ýmsa þjónustu, svo sem í Hyrnutorgi og Hjálmaklett,
handan við götuna.
Jóhannes Freyr Stefánsson stýrir framkvæmdum við byggingarnar.
Hér er verið að undirbúa að steypa veggi við akstursramp niður í kjallara
tengibyggingarinnar.
Séð út úr herbergi í norðausturhorni hótelsins.
Í stærstu svítunni á efstu hæð hótelsins. Útsýni yfir Borgar-
fjörð og upp í héraðið.
Byrjað er að undirbúa hótelherbergi fyrir málara og aðra
iðnaðarmenn sem þurfa að ljúka að innrétta herbergin fyrir
vorið.