Skessuhorn - 17.01.2018, Side 21
MIÐVIKUDAGUR 17. jANúAR 2018 21
Nokkur félög kvenna í Snæfellsbæ
tóku sig saman nýverið og héldu
Kvennakvöld í Félagsheimilinu Klifi
í Ólafsvík. Haldið var fjáröflunar-
kvöld og tilgangurinn að safna fyr-
ir nýjum kvenskoðunarbekk fyr-
ir Heilsugæslustöðina í Snæfellsbæ.
Keyptur verður svokallaður gyn-
skoðunarbekkur, en hann mun m.a.
nýtast bæði við mæðraeftirlit og
krabbameinsskoðanir. Gamli bekk-
urinn er kominn vel til ára sinna
og þörf á endurnýjum. Félögin sem
stóðu að kvöldinu voru Kvenfélag
Hellissands, Kvenfélag Ólafsvíkur,
Kvenfélagið Sigurvon í Staðarsveit,
Lionsklúbburinn Rán, Lionsklúbb-
urinn Þernan og Soroptimistaklúbb-
ur Snæfellsness.
Kvennakvöldið fór fram föstu-
daginn 12. janúar og heppnaðist vel
að sögn kvennanna. Boðið var upp
á léttar veitingar frá Galito, kynn-
ingar- og sölubásar voru frá Hár-
greiðslustofu Gunnhildar, Pastel
hársnyrtistofu, Snyrtistofu Kristjönu
og Snyrtistofunni Rán. Verslunin
Blómsturvellir var með tískusýningu,
Trausti Leó og Kristbjörg Ásta fluttu
tónlist og þá var sýnd stuttmynd þar
sem ljósmóðirinn og ónefnd kona
fóru á kostum. Veislustjórar kvölds-
ins voru þær Sólveig Bláfeld Agnars-
dóttir og Sigrún Baldursdóttir og
héldu þær fjörinu uppi. Sýndu þær
konum meðal annars hvernig ætti að
föndra skó sem reynast vel í hálku.
150 miðar seldust á kvöldið og giltu
þeir einnig sem happadrættismið-
ar en 18 vinningar voru dregnir út,
Þema kvöldsins var Charleston og
var húsið skreytt í samræmi við það.
Með sameiginlegu átaki kvenna
og fyrirtækja tókst að safna fyrir nýj-
um bekk. Vilja kvennafélögin fá að
koma á framfæri þakklæti til allra
þeirra sem styrktu kvöldið eða gáfu
vinnina. Happadrættisvinninga gáfu
Anna Þóra joga, Apotek Ólafsvík-
ur, Brimhestar Veronica & Gunn-
ar, Deysi makeup, Hárgreiðslustofa
Gunnhildar, Hársnyrtistofa Pastel,
Hótel Búðir, Hraðbúðin á Hellis-
sandi, Hraunsmúli, Olis, Rifsaumur
Kata, Snyrtistofa Kristjönu, Snyrti-
stofan Rán, Verslunin Blómstur-
vellir, Verslunin Hrund og Versl-
unin Kassinn. Styrki veittu eftirfar-
andi fyrirtæki: Breiðavík ehf, Krist-
inn j. Friðþjófsson. ehf, Nónvarða
ehf, útgerðarfélagið Glaumur ehf,
Hellnaferðir Slf, Brauðgerð Ólafs-
víkur, Skarðsvík ehf, Steinunn hf,
Tannlæknastofa AB slf., Esjar ehf,
Sandbrún, Snæfellsbær, Kvenfélagið
Sigurvon, útgerðarfélagið Guð-
mundur ehf, Hraðfrystihús Hellis-
sands, Melnes og KG fiskverkun.
þa
Félög kvenna söfnuðu fyrir skoðunarbekk
Pétur Bogason hafnarvörður í Ólafs-
vík segir í samtali við Skessuhorn að
aflabrögð báta í Snæfellsbæ að und-
anförnu hafi ekkert verið til að hrópa
húrra fyrir. „Það eru þrír netabátar
á veiðum og afli þeirra er um fjög-
ur til fimm tonn í róðri og meðal-
afli hjá dragnótarbátum er þetta um
tvö til þrjú tonn. Að vísu kom Egill
SH að landi með 7,7 tonn á mánu-
dag af blönduðum afla. Stóru línu-
bátarnir, Tjaldur SH landaði einnig
í Ólafsvík á mánudag 44 tonnum og
í Rifi lönduðu Örvar SH 70 tonnum
og Rifsnes SH 64 tonnum. „Það eru
helst minni línubátar sem hafa verið
að fá ágætis afla að undanförnu en
tíðarfar hefur verið leiðinlegt í janú-
ar,“ segir Pétur og tekur fram að
þetta séu svipuð aflabrögð og voru
á sama tíma í fyrra. af
Aflabrögðin í janúar
svipuð og í fyrra
Frændurnir Óðinn Kristmundsson og Ægir Ægisson á Steinunni SH að landa á
mánudagskvöldið. Aflinn var 3,5 tonn.
Emir Dokara og Pétur Pétursson á netabátnum Bárði SH voru að landa 5 tonnum
að góðum og flottum þorski.
Ægir Ægisson með fína rauðsprettu.
Karlakórinn Söngbræður hélt sína
árlegu stórveislu í félagsheimilinu
Þinghamri á laugardagskvöldið.
Löng hefð er fyrir þessari skemmt-
un sem nýtur alltaf mikilla vin-
sælda enda húsfyllir hverju sinni,
sama hversu stórt félagsheimil-
ið er. Vel á fjórða hundrað manns
mætti að þessu sinni og skemmtu
gestir sér vel yfir mat, drykk og
söng. Matseðilinn var hefðbund-
inn; saltað hrossakjet og svið frá
Kópaskeri ásamt tileyrandi með-
læti. Kórinn skemmti gestum en
honum stjórnaði sem fyrr Viðar
Guðmundsson. Heimir Klemenz-
son sá um undirleik ásamt hljóm-
sveit kórsins og nokkrir karlar
sungu einsöng með félögum sín-
um. Um hljóðblöndun sá Ing-
þór Bergmann Þórhallsson. Loks
voru gestasöngvarar. Þær Ásta
Marý Stefánsdóttir frá Skipa-
nesi og Þorgerður Ólafsdóttir frá
Sámsstöðum sungu listavel við
góðar undirtektir. Loks tók Stefán
St. jónsson lagið með fyrrum fé-
lögum sínum í Söngbræðrum og
spilaði loks undir í fjöldasöng.
mm
Fjölmenni á sviðaveislu
Söngbræðra