Skessuhorn - 17.01.2018, Blaðsíða 23
MIÐVIKUDAGUR 17. jANúAR 2018 23
aði Steinþór með að verða einn til að
byrja með og að Lesbókin yrði kvöld-
kaffihús þar til hann fengi starfs-
mann. „En ég fékk starfsmann strax
til að taka dagvaktinar og sló því til
og hef opið allan daginn,“ segir hann.
„Þegar hlutirnir gerast svona hratt er
ekki hægt að vera tilbúinn með heild-
arplan. En það var ekkert annað að
gera en að kýla á þetta,“ segir Stein-
þór og bætir því við að eftir því sem
fram líða stundir hyggist hann hafa
opið frá morgni til kvölds. „Í fram-
tíðinni stefni ég að því að opnunar-
tíminn verði lengri en verið hefur.
Núna er opið frá 9:00 á morgnana
til 22:00 á kvöldin en verður opið til
23:00 um helgar. Áfram verður hér
lifandi kaffihús. Ef einhver er áhuga-
samur um að standa fyrir viðburðum
þá er ég meira en tilbúinn til að setj-
ast niður með viðkomandi og skoða
það,“ segir Steinþór Árnason að end-
ingu. kgk
Nú í vor fara fram sveitastjórnar-
kosningar og þá fer að hefjast um-
ræða og mótun á nýrri bæjarstjórn í
bryggjuskúrum og kaffistofum eða
maður á mann niður í kaupfélagi.
Í Norðvesturkjörkjördæmi eru
26 sveitarfélög með samtals 30.340
íbúa á síðustu haustmánuðum sam-
kvæmt heimildum Hagstofu Ís-
lands. Í kosningum árið 2014 voru
rúmlega 700 manns í framboði ef
miðað er við þann fjölda framboða
sem voru í boði. Bara í Sveitarfé-
laginu Skagafirði voru 72 í fram-
boði enda voru fjögur framboð til
sveitastjórnarkosninga. Þetta er
dágóður fjöldi og segir margt um
áhuga fólks á sínu nærumhverfi.
Í þessum 26 sveitarfélögum eru
166 sem starfa í sveitastjórnum og
jafn margir til vara og þá ótalið þau
sem starfa í nefndum og ráðum fyr-
ir sitt sveitarfélag. Miklu skiptir að
fá gott fólk til starfa. Það þarf að
hafa mikla þekkingu á breiðu sviði
og mannlega hæfni til samstarfs og
stjórnunar og miklu skiptir að hafa
brennandi áhuga á samfélaginu.
Enda þarf sveitastjórnarfólk að
eyða miklum tíma í sveitastjórnar-
mál sem yfirleitt er tekinn af tíma
fjölskyldu og áhugamála viðkom-
andi.
Á næstu vikum verður farið að
huga að framboðsmálum. Þeir sem
sitja nú þegar í sveitarstjórn gera
upp hug sinn til áframhaldandi setu
og leita þarf að
nýjum aðilum til
að fylla í skarð þeirra sem hætta.
Það skiptir miklu máli að sveita-
stjórnarfólk hafi góðan stuðning
samborgara sinna og öflugt stuðn-
ingsnet ekki bara í kringum kosn-
ingar heldur kjörtímabilið út. Und-
anfarin ár hefur verið mikil skipti
inn í sveitastjórnum og fólk endist
stutt. Kannski ekkert skrýtið alltaf
eru að aukast verkefni sveitastjórna
og verkefnin umfangsmikil. Skipu-
lagsmál og velferðamál og önn-
ur viðkvæm mál geta tekið toll og
tíma.
Verkefni í nærumhverfi okk-
ar kemur okkur við og eðliegt að
ólíkar skoðanir séu um lausnir og
leiðir. Gleymum samt ekki að hafa
gagnrýni uppbyggilega og styðj-
andi og vegum ekki að persónum
sveitastjórnarfólks. Hér gildir eins
og annarstaðar að aðgát skal höfð í
nærveru sálar.
Öll viljum við öflugt sveitarfé-
lag og gleymum ekki og þátttaka
allra telur í lífi og starfi. Fulltrú-
ar í sveitastjórn getur endurspegl-
að þann mannauð sem býr í hverju
samfélagi gegn góðum stuðningi
íbúa.
Halla Signý Kristjánsdóttir
Höf. er 7. þingmaður NV kjör-
dæmis.
Þátttaka í
samfélagi
Pennagrein
Steinþór Árnason er nýr eigandi Les-
bókarinnar Café við Akratorg á Akra-
nesi. Keypti hann rekstur kaffihúss-
ins af Christel Björgu Rúdólfsdóttur
Clothier og Guðleifi Rafni Einars-
syni, sem opnuðu Lesbókina í janúar-
byrjun á síðasta ári. „Ég skrifaði und-
ir í gær,“ segir Steinþór í samtali við
Skessuhorn á fimmtudaginn. Hann
kveðst ekki ætla að gera stórtækar
breytingar á rekstrinum. „Lesbók-
in hefur staðið sig vel, maður heyrir
ekkert annað en að hér hafi hlutirn-
ir verið gerðir vel. Það sem boðið var
upp á bæði þjónustulega og vörulega
séð held ég að hafi ríkt ánægja um.
Þess vegna ætla ég til dæmis að halda
nafninu og ekki gera verulegar útlits-
breytingar á staðnum,“ segir hann.
„Stærstu breytingarnar verða þær að
ég ætla að stækka staðinn. Sófahorn-
ið fer í burtu og í staðinn koma borð
og stólar. Hér hefur ekki verið leyfi
fyrir meira en 25 manns en ég sæki
um leyfi fyrir 50 til 75 manns,“ bætir
hann við. Ástæða þess er að á staðn-
um hafa gestir aðeins haft aðgang að
einu salerni. Hins vegar er annað sal-
erni í húsinu og hyggst Steinþór leysa
málið með því að veita gestum að-
gang að því. Þar með getur hann tvö-
faldað leyfilegan gestafjölda hverju
sinni. „Að vera með 25 manna stað í
hundrað fermetra rými á jarðhæð er
mjög vel í lagt. Það er pláss fyrir ann-
að eins af fólki í húsinu og þarf að-
eins að veita aðgang að öðru salerni
til að tvöfalda kaffihúsið að stærð,“
segir hann.
Heilsusamlokur og safar
Hvað varðar veitingarnar boðar
Steinþór ekki miklar breytingar en
nokkrar nýjungar þó. „Ég ætla að
bjóða upp á ferska safa og hollustu-
samlokur í anda joe & the juice og
Lemon. Ég vonast til að geta byrj-
að að bjóða upp á það mjög fljót-
lega. Síðan er ég menntaður bak-
ari og í kökuskreytingum. Ég ætla
að vera með heimabakað en einbeta
mér að því klassíska. Ég trúi því að
heimabakað góðgæti sé það sem fólk
vill fá á góðu kaffihúsi. Þannig að hér
verður hægt að fá hér marmaraköku,
sjónvarpsköku og fleira í þeim dúr í
bland við hnallþórur eins og rjóma-
og súkkulaðitertur. Hér verður bröns
um helgar og súpan í hádeginu verð-
ur á sínum stað eins og verið hefur,“
segir hann. „Þá vonast ég til að geta
kannski boðið upp á ís í sumar. Það
er engin ísbúð hérna niðri í bæ og
það væri gaman að vera með nokkrar
bragðtegundir af kúluís. Ég á eftir að
útfæra hugmyndina en áhuginn er til
staðar og vonandi styðja Skagamenn
vel við rekstur á metnaðarfullu kaffi-
húsi,“ segir Steinþór.
Í mörg horn að líta
Steinþór sá um rekstur 19. holunn-
ar, golfskála Golfklúbbsins Leynis,
síðastiðið sumar og kveðst eiga von á
því að reka skálann áfram á komandi
sumri. Í vetur tók hann við mötuneyti
Grundaskóla auk þess sem hann festi
kaup á rekstri Vitakaffis á Akranesi.
Verður þeim stað breytt í „gastro-
pub“ og ljáð nafnið The Irish Bar. Það
verður því í nógu að snúast hjá Stein-
þóri á næstunni. „Ég er með puttana
í öðru líka,“ segir Steinþór og hlær
við. „Það verður nóg að gera en ég er
alveg maður í það. Ég hafði hugsað
mér að standa sjálfur vaktina hérna á
Lesbókinni frá 17:00 til 22:00, þang-
að til Grundaskóli er kominn í sum-
arfrí. Þá legg ég grunninn að öllu sem
verður selt yfir daginn; geri klárt fyrir
súpurnar, kökurnar og starfsmaður-
inn sem mætir um morguninn klár-
ar það síðan,“ segir Steinþór. „Hvað
varðar Vitakaffi þá þarf ég minna að
vera á staðnum þar. Ég sé um rekstur-
inn, innkaup mannaráðningar, ráðn-
ingar á skemmtikröftum og svoleið-
is. En ég tek auðvitað veikindavaktir
og stend síðan aðrar vaktir á háanna-
tíma. Stefnan á Vitakaffi er að halda
breytingum áfram og fljótlega verð-
ur byrjað aftur með börger og bolt-
ann. Vitakaffi fær síðan formlega nýtt
nafn 18. mars, samhliða St. Patricks
Day og verður haldið opnunarpartí í
tilefni þess,“ segir Steinþór.
„Ég er kaffihúsamaður“
En þá er ein spurning sem brennur á
blaðamanni; af hverju ákvað Steinþór
að festa kaup á rekstri Lesbókarinn-
ar? „Fyrir það fyrsta þá er þetta miklu
frekar ég heldur en Vitakaffi. Ég er
kaffihúsamaður og hef rosalega gam-
an af því að vinna við þetta. Ég hef
átt Segafredo kaffihús á miðju Lækj-
artorgi, í hjarta Reykjavíkur. Ég rak
það og átti í tvö og hálft ár við góðan
orðstír. Það fannst mér rosalega gam-
an og vann þar sjálfur alla daga frá sjö
á morgnana til tólf á kvöldin,“ segir
Steinþór og brosir. „Þannig að ég veit
alveg hvað ég er að gera en síðan er
það annað. Ef ég hefði ekki hoppað á
þetta tækifæri þá hefði einhver annar
keypt Lesbókina,“ segir hann.
Hann viðurkennir þó að hafa velt
þessum möguleika fyrir sér áður. En
þegar gæsin gefst þá verður að grípa
hana. „Ég var búinn að hugsa málið
áður, en síðan setur maður það bara
á ís og fókuserar á það sem maður
er að gera hverju sinni. En svo þeg-
ar tækifærið bankar upp á þá verður
maður bara að vera dálítið kaldur og
gera það sem maginn segir manni
að gera,“ segir Steinþór. „Kaffihúsa-
rekstur er það sem mig langar að fást
við og ég sé gríðarlega möguleika.
Ný byggð er væntanleg hér fyrir neð-
an í framtíðinni, torgið hefur verið
tekið vel í gegn og hér í miðbænum
er skemmtilegur kjarni af rótgrónum
verslunum og nýjum. Ég er bjartsýnn
á þetta.“
Lengri opnunartími
Vegna þess hve kaupin á Lesbókinni
höfðu skamman aðdraganda reikn-
Steinþór Árnason er nýr eigandi Lesbókarinnar
„Ef ég hefði ekki hoppað á þetta
tækifæri hefði einhver annar keypt“
Steinþór Árnason, nýr eigandi Lesbókarinnar Café við Akratorg á Akranesi.
Steinþór hellir upp á, ekki í fyrst skipti og ekki það síðasta.
Nýr eigandi hyggst stækka staðinn og mun sófahornið víkja fyrir borðum og
stólum.