Skessuhorn - 17.01.2018, Page 31
MIÐVIKUDAGUR 17. jANúAR 2018 31
Klettagörðum 15 | 525 7700 | flytjandi.is
DAGLEGA Á FERÐINNI MEÐ
VÖRUR UM ALLT LAND
Eimskip Flytjandi veitir samræmda flutningaþjónustu
um land allt og eru áfangastaðirnir 80 talsins.
Framundan er ferðasýningin Manna-
mót sem haldin er af Markaðsstofum
landshlutanna í samstarfi við Flug-
félagið Erni. Á þessari sýningu koma
saman ríflega 200 ferðaþjónustufyr-
irtæki af öllu landinu og kynna starf-
semi sína fyrir gestum sem koma
frá ferðaskrifstofum á höfuðborg-
arsvæðinu og erlendis frá, stoðkerfi
ferðaþjónustunnar og úr ferðaþjón-
ustutengdu námi. Ekki síður er mik-
ilvægt að á þessum degi nota menn
tækifærið til að hitta samstarfsaðila,
efla tengslin og ræða stóru málin.
Mannamót, sem er fimm ára í ár,
hefur vaxið á hverju ári og er nú orð-
inn einn af mikilvægustu viðburð-
um ferðaþjónustunnar á hverju ári.
Vettvangurinn styður við stærstu
áskorun íslenskrar ferðaþjónustu
sem er að bæta nýtingu auðlindar-
innar og tryggja að henni sé skilað
áfram til næstu kynslóða svo hægt sé
að byggja upp til lengri tíma og skila
landi og þjóð arð af þessari auðlind
um ókomna tíð.
Byggja verður ferðaþjónustan upp
sem öfluga atvinnugrein og í sátt við
náttúruna, umhverfi og samfélag.
Til að ná þessu fram þarf að ráð-
ast í ýmis verkefni og má þar nefna
áskoranirnar um að bæta dreifingu
ferðamanna um landið og jafna árs-
tíðasveifluna um allt land. Árangur í
þessum stóru forgangsmálum styð-
ur við uppbyggingu ferðaþjónustu-
fyrirtækja í öllum landshlutum, þar
sem þau geta öll bætt nýtingu sinna
fjárfestinga með því að ná sem mest-
um arði úr auðlindinni okkar sem er
náttúra og mannlíf á Íslandi.
Nú er staðan sú að á Suðurlandi,
Vesturlandi, Reykjanesi og Höfuð-
borgarsvæðinu hefur náðst góður
árangur í að efla vetrarferðaþjónustu
og minnka árstíðasveifluna. Þessi ár-
angur hefur dregið að sér fjárfesta
sem byggja upp öfluga afþreyingu,
gistingu og veitingaþjónustu. Ríf-
lega 80% fyrirtækja á þessum svæð-
um er nú í heilsársrekstri sem er lyk-
ilatriði í uppbyggingu ferðaþjón-
ustu, skilar sér í öflugra starfsfólki og
uppbyggingu svæða þar sem nú eru
til staðar ný og spennandi atvinnu-
tækifæri. Vestfirðir, Norðurland og
Austurland eiga enn óinnleyst tæki-
færi í uppbyggingu utan háannatíma
vegna skorts á öruggum samgöng-
um en sú uppbygging mun skila sér
í gríðarlegum ávinningi fyrir landið
allt þegar náðst hefur að byggja þar
upp ferðaþjónustuna sem heilsárs at-
vinnugrein.
Vaxtartækifærin í ferðaþjónust-
unni eru mikil og gríðarlegur hraði í
þróun greinarinnar. Því er nauðsyn-
legt að til sé heildstæð áætlun bæði
til að grípa tækifærin sem skapast og
ekki síður til að geta gripið inn í nei-
kvæða þróun þar sem nauðsynlegt er.
Markaðsstofur landshlutanna vinna
nú í samstarfi við Ferðamálastofu
og Stjórnstöð ferðamála að áfanga-
staðaáætlunum DMP sem ætlað er
að svara kalli ferðaþjónustunnar eft-
ir skýrri stefnu til stuðnings við sína
uppbyggingu og framkvæmd fjár-
festingarverkefna. Í þessari vinnu,
sem mun stuðla að uppbyggingu,
þróun og vexti,
er öflugt sam-
tal hagsmunaað-
ilanna þ.e. ferða-
þjónustufyrirtækj-
anna og sveitar-
félaga lykilatriði en sveitarfélögin
eru nú flest farin að sjá ferðaþjón-
ustuna skila þeim miklum tekjum,
uppbyggingu og jákvæðum áhrifum
á samfélagið. Sýningin Mannamót
er frábært vettvangur til að efla þetta
samtal og óhætt að segja að á undan-
förnum árum hafi orðið þar til góð-
ar hugmyndir sem öflugir aðilar hafa
síðan hrint í framkvæmd.
Arnheiður Jóhannsdóttir, fram-
kvæmdastjóri Markaðsstofu
Norðurlands.
Snæfell tók á móti Skallagrími í Vest-
urlandsslag 1. deildar karla í körfu-
knattleik á mánudagskvöld. Eftir
hnífjafnan síðari hálfleik og spenn-
andi lokafjórðung voru það Borgnes-
ingar sem fóru með sigur af hólmi,
95-100.
Snæfell hafði heldur yfirhöndina í
upphafi leiks. Hólmarar leiddu 15-10
eftir fimm mínútna leik og 24-19
seint í fyrsta leikhluta. En Skalla-
grímur kláraði leikhlutann af krafti
og jafnaði metin. Staðan var 27-27 að
loknum fyrsta fjórðungi. Skallagrím-
ur komst sex stigum yfir snemma í
öðrum leikhluta og stjórnaði ferð-
inni allt til hálfleiks. Borgnesingar
bættu enn við forskotið á lokaspretti
fyrri hálfleiks og höfðu tíu stiga for-
skot í hléinu, 37-47.
Snæfellsliðið mætti ákveðið til
síðari hálfleiks og minnkaði forskot
Skallagríms smám saman eftir því
sem leið á þriðja leikhluta. Þegar sjö
mínútur höfðu verið leiknar af síðari
hálfleik voru Snæfellingar búnir að
jafna og eftir það var leikurinn í járn-
um. Snæfell leiddi 70-67 fyrir loka-
fjórðunginn. Skallagrímur komst
fimm stigum yfir snemma í fjórða,
72-77 áður en Snæfell jafnaði í 83-83
um miðjan leikhlutann. Skallagrím-
ur skoraði næstu stig, náðu að halda
Snæfelli í skefjum á lokamínútunum
og hafði að lokum sigur, 95-100.
Christian Covile var atkvæðamest-
ur í liði heimamanna. Hann skoraði
31 stig og reif niður 19 fráköst. Vikt-
or Marinó Alexandersson skoraði 17
stig og gaf sjö stoðsendingar og Geir
Elías úlfur Helgason var með 17 stig
einnig.
Aaron Parks var stigahæstur í liði
Skallagríms með 22 stig og gaf hann
fimm stoðsendingar að auki. Bjarni
Guðmann jónsson skoraði 22 stig
og tók 12 fráköst og Eyjólfur Ásberg
Halldórsson var með 19 stig, ellefu
fráköst og átta stoðsendingar.
Staða liðanna í deildinni er á þá
leið að Skallagrímur trónir á toppn-
um með 24 stig, tveimur stigum
fyrir ofan Breiðablik. Snæfell er í
fjórða sæti með 18 stig, tveimur stig-
um á eftir Hamri og jafn mörg stig
og Vestri en hefur leikið einum leik
fleira.
Næst leikur Skallagrímur á morg-
un, fimmtudaginn 18. janúar, í topps-
lag gegn Breiðabliki í Borgarnesi.
Snæfell leikur hins vegar á sunnu-
daginn, 21. janúar, þegar liðið tekur
á móti Gnúpverjum.
kgk
Skallagrímur sótti sigur í Stykkishólm
Stórleikur Christian Covile dugði heimamönnum ekki til að knýja fram sigur gegn
toppliði Skallagríms. Ljósm. úr safni/ kgk.
Körfuknattleiksdeild Skallagríms
hefur slitið samstarfi við Ricardo
González Dávila, þjálfara meistara-
flokks kvenna og yngri flokka hjá
félaginu. Frá þessu er greint í til-
kynningu á Facebook-síðu félagsins
á sunnudag. Þar kemur einnig fram
að unnið sé að ráðningu nýs þjálfara
kvennaliðsins, en Skallagrímur er í
harðri baráttu um sæti í úrslitakeppni
Domino‘s deildar kvenna. Sömuleið-
is er unnið að því að finna þjálfara til
að hafa umsjón með þeim æfingum
yngri flokka félagsins sem Richardo
hafði á sinni könnu. „Körfuknatt-
leiksdeild Skallagríms þakkar þjálfar-
anum og fjölskyldu hans öflugt fram-
lag til félagsins og óskar þeim góðs
gengis í þeim verkefnum sem þau
taka sér fyrir hendur í framtíðinni,“
segir í tilkynningunni.
Í gærmorgun var síðan greint frá
því að félagið hefði samið við Ara
Gunnarsson um þjálfun meistara-
flokks kvenna út keppnistímabilið.
Fyrsti leikur Skallagríms undir hans
stjórn verður Vesturlandsslagurinn
gegn Snæfell í kvöld, miðvikudaginn
17. janúar. Sá leikur fer fram í Borg-
arnesi. kgk
Skallagrímur
skiptir um þjálfara
Ricardo González Dávila fer yfir málin með leikmönnum kvennaliðs Skallagríms
fyrr í vetur. Ljósm. Skallagrímur.
Skagamaðurinn Tryggvi Hrafn Har-
aldsson, leikmaður sænska úrval-
seildarliðsins Halmstads BK, skor-
aði fjórða mark Íslands þegar lið-
ið vann stórsigur á Indónesíu, 0-6 í
vináttuleik í Indónesíu á fimmtudag.
Var þetta fyrsta mark Tryggva fyrir
A landsliðið.
Mark Tryggva er ekki síst merki-
legt fyrir þær sakir að foreldrar hans,
Haraldur Ingólfsson og jónína Víg-
lundsdóttir, hafa bæði skorað mörk
fyrir A landslið Íslands. jónína skor-
aði tvö mörk í ellefu leikjum fyr-
ir Íslands hönd á árunum 1993 til
1997 og Haraldur skoraði eitt mark
í 20 landsleikjum á árunum 1990
til 1996. Ritstjórn er ekki kunnugt
um annan markaskorara landslið-
anna sem báðir foreldrar hafa einnig
skorað fyrir A landslið Íslands. kgk
Mótanefnd hestamannafélaganna
sem staðið hafa að KB mótaröðinni
í hestaíþróttum í Borgarnesi hefur
ákveðið að tvö mót verða haldin í
KB mótaröðinni í vetur. Fyrra mót-
ið verður laugardaginn 24. febrúar
og seinna mótið laugardaginn 24.
mars og fara bæði fram í Reiðhöll-
inni Faxaborg. Flokkaskipting er
þannig að keppt verður í barna-
flokki, unglingaflokki, ungmenna-
flokki og 1. flokki og 2. flokki full-
orðinna. Eingöngu verður um ein-
staklingskeppni að ræða þetta árið,
segir í tilkynningu frá nefndinni.
Á mótinu laugardaginn 24. febrú-
ar verður keppt í tölti, barnaflokki
og 2. flokki, í tölti T7 (hægt tölt,
svo snúið við, frjáls ferð á tölti). Þá
mun verða keppt í unglingaflokki,
ungmenna og 1. flokki í tölti T3
(hægt tölt svo snúið við, hraða-
breytingar á tölti og greitt tölt)
Á mótinu 24. mars verður keppt
í fjórgangi. Börn og 2. flokkur
keppa í fjórgangi V5 (frjáls ferð á
tölti, brokk, fet og stökk). Ungling-
ar, ungmenni og 1. flokkur keppa í
fjórgangi V2 (hægt tölt, brokk, fet,
stökk, greitt tölt).
Að báðum mótum loknum munu
fimm efstu í hverjum flokki verða
verðlaunaðir fyrir samanlagðan ár-
angur beggja mótanna. „Við hvetj-
um fólk til að hafa samband ef það
hefur tök á að vinna á mótunum.
Skráningargjald verður 2500 fyr-
ir fullorðna og ungmenni og 2000
fyrir börn og unglinga,“ segir í til-
kynningu frá mótsnefnd.
mm
Haldin verða tvö KB mót Fetað í fótspor
foreldranna
Frá verðlaunaafhendingu fyrir fjórgang í ungmennaflokki á síðasta ári.
Ljósm. úr safni Skessuhorns/ iss.
Mannamót – mikilvægur vettvangur í ferðaþjónustu
Pennagrein
Tryggvi Hrafn Haraldsson fagnar
marki með ÍA síðasta sumar.
Ljósm. úr safni/ gbh.