Skessuhorn - 07.03.2018, Page 5
MIÐVIKUDAGUR 7. MARS 2018 5
Leiklistarklúbbur Nemendafélags Fjölbrautaskóla Vesturlands á Akranesi er að hefja sýningar á
söngleiknum „Með allt á hreinu“. Frumsýningin er 10. mars n.k. í Bíóhöllinni á Akranesi.
Þar verður mikið fjör og möguleiki á að Egill Ólafsson eða hinn sanni ,,Stinni stuð" láti sjá sig.
Nánar um sýningar inni á
www.her-nuna.is
Styrkleikarnir þínir
Þú lærir að finna og nýta persónulega
styrkleika (VIA) sem eykur sjálfstraust
og vellíðan.
Næsta námskeið verður næstu fjögur þriðju-
dagskvöld í Café Kaju.
Nánar tiltekið 13. og 27. mars, og 3. og
10. apríl, frá 19:30 til 21:30.
Verð er 16.000 kr. innifalið eru námskeiðsgögn
og hressing.
Kennari er Steinunn Eva Þórðardóttir,
reyndur sálfræðikennari og lýðheilsufræð-
ingur með diplóma í jákvæðri sálfræði,
stofnandi Hér núna.
Skráning er á facebook:
@hernuna eða í síma 893-1562
Fréttaveita Vesturlands
www.skessuhorn.is
Bjarni Benediktsson fjármála- og
efnahagsráðherra hefur fyrir hönd
íslenska ríkisins afhent óbyggða-
nefnd kröfur ríkisins um þjóðlendur
á svonefndu svæði 9B, sem tekur til
Snæfellsness ásamt hluta úr Borg-
arbyggð og Dalabyggð, þ.e. fyrr-
um Kolbeinsstaðahreppi og Skóg-
arstrandarhreppi. Óbyggðanefnd er
sjálfstæð úrskurðarnefnd sem starfar
á grundvelli þjóðlendulaga nr. 58 frá
1998. Tilkynning um kröfurnar var
birt í Lögbirtingablaðinu 23. febrú-
ar síðastliðinn en útdrátt úr kröfu-
lýsingu ráðherra er að finna í aug-
lýsingu hér í blaðinu í dag.
Svæðið sem nú er gerð krafa um
þjóðlendur í nær yfir Snæfellsbæ, og
þar með talið m.a. allan Snæfellsjökul,
Grundarfjarðarbæ, Eyja- og Mikla-
holtshrepp, Helgafellssveit, Stykkis-
hólmsbæ ásamt hluta Borgarbyggð-
ar og Dalabyggðar. Þjóðlendukröfur
ríkisins ná til fimm sérgreindra hluta
svæðisins, það er 1) Eyrarbotns, 2)
Snæfellsjökuls, 3) lands sunnan og
austan Snæfellsjökuls, 4) landsvæðis
milli Hraunhafnardals, Mælifells og
Bjarnarfossdals og 5) fjalllendis milli
Elliða og Lágafells, auk Baulárvalla.
Nánari lýsingu krafna og yfirlitskort
er að finna á vefsíðunni obyggda-
nefnd.is og má þar m.a. finna 70
síðna skjal ásamt kortum af því svæði
sem ráðherra ásælist fyrir hönd ríkis-
ins. Einnig má nálgast upplýsingar á
skrifstofum viðkomandi sveitarfélaga
og sýslumannsembættis. Í auglýsingu
er skorað á þá sem telja til eignar-
réttinda eða annarra réttinda á þeim
svæðum sem ríkið gerir kröfur til
að lýsa kröfum sínum skriflega fyrir
óbyggðanefnd í síðasta lagi föstudag-
inn 25. maí nk.
mm
Óbyggðanefnd lýsir kröfum í land á Snæfellsnesi