Skessuhorn - 07.03.2018, Blaðsíða 21
MIÐVIKUDAGUR 7. MARS 2018 21
Aðalfundur
Við höldum 1. vetrardag hátíðlegan og
blásum til veislu í Kaupfélagi Borgfirðinga
laugardaginn 25. október 2008 kl. 12-15
Flugger litir veita ráðgjöf og verða með tilboð
Mjólka kynnir vörur sínar
Kynning á hreinsiefnum frá Kemi
Kynning og tilboð á Kerckhaert
járningavörum, umboðsmaður
á staðnum, býður upp á ís
* Vetrarskeifurnar með
breiða teininum komnar *
Tískusýning á vetrarfatnaði,
tilboð á fatnaði frá 66°N
10 - 50 % afsláttur af völdum vörum
í versluninni
Royal Canin, glaðningur fylgir
öllum pokum af hunda-og kattamat.
Umboðsmaður á staðnum
Kaffi og rjómaterta
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
8
Aðalfundur Kaupféla s Borgfirði ga
verður haldinn að Hótel Borgarnesi
þriðjudaginn 13. mars 2018 og hefst kl. 20:30
Dagskrá:
1. Venjuleg aðalfundarstörf samkvæmt samþykktum
félagsins.
2. Önnur mál.
Skv. 14. gr. samþykkta KB þá hafa allir félagsmenn aðgang að
fulltrúafundum og hafa þar málfrelsi og tillögurétt.
Borgarnesi, 26. febrúar 2018
Stjórn Kaupfélags Borgfirðinga
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
8
Laus störf hjá Akraneskaupstað
Eftirfarandi störf eru laus til umsóknar:
Leikskólinn Vallarsel
Starf matráðs
Vinnuskólinn (sumarstörf)
Störf flokkstjóra við vinnuskólann, fyrir 20 ára og eldri
Nánari upplýsingar um störfin ásamt umsóknareyðublöðum
má finna á heimasíðu Akraneskaupstaðar, www.akranes.is.
VÍKURVAGNAR EHF.
Víkurvagnar ehf. | Hyrjarhöfða 8 | 110 Reykjavík
Sími 577 1090 | vikurvagnar.is | sala@vikurvagnar.is
Setjum undir á staðnum
Dráttarbeisli
Á bænum Nýp á Skarðsströnd hafa
hjónin Sumarliði Ísleifsson og
Þóra Sigurðardóttir undanfarin ár
rekið lítið gistiheimili. „Við höfum
verið með gistingu í nokkur ár, auk
þess að standa fyrir ýmsum menn-
ingarviðburðum hér. Gistiheimil-
ið er staðsett í gamla íbúðarhúsinu
og hlöðunni sem við sameinuðum
á sínum tíma. Núna erum við að
útbúa gistirými í gömlu viðbyggðu
útihúsunum, fjárhúsunum og fjós-
inu, aðeins að stækka við okkur,“
segir Sumarliði en fyrir eru að-
eins tvö herbergi á gistiheimilinu
á Nýp, sem stundum hefur verið
nefnt „minnsta gistihús á Íslandi“.
„Við náum kannski ekki að halda
titlinum lengur,“ segir Sumarliði
léttur í bragði, „þó það séu ekki
nema þrjú herbergi sem við erum
að bæta við þessi tvö sem fyrir eru.
Helst hefðum við viljað vera áfram
minnsta gistihús landsins en það er
kannski ekki raunhæft. En við vilj-
um gjarnan halda öllu smáu í snið-
um,“ bætir hann við.
Gamalt fær
nýtt hlutverk
Sumarliði og Þóra festu kaup á
jörðinni Nýp árið 2001. Íbúðar-
húsið var reist árin 1936 og 1937
en hafði þá staðið autt síðan jörðin
fór í eyði seint á sjöunda áratugn-
um. Þau hjónin endurgerðu íbúð-
arhúsið og hlöðuna og sameinuðu
í eitt, sem fyrr segir. Nú halda þau
áfram endurbyggingu húsanna á
Nýp. „Það hefur verið skemmti-
legt að vinna með svona gömul
rými og gefa þeim nýtt hlutverk,
eins og að útbúa gistingu í gömlu
útihúsunum,“ segir Sumarliði.
„Dóttir okkar og maðurinn
hennar eru bæði arkitektar í Nor-
egi. Þau hafa unnið að hönn-
un með liðsinni samstarfsmanns
þeirra sem er arkitekt í London.
Þau þrjú mynda arkítektateym-
ið StudioBua og taka að sér ýmis
verkefni hér heima og erlendis.
Hluti af ástæðu þessara fram-
kvæmda, en þó ekki aðalástæðan,
er að sameina þessa krafta okkar
og takast á við þetta verkefni sam-
an,“ segir Sumarliði. „En auðvitað
er ástæðan líka sú að við vildum
gera útihúsin að mannabústað og
bæta við gistrými. Gistingin hef-
ur gengið mjög vel, nánast alltaf
verið fullt og með þessari viðbót
viljum við auka þjónustuna. Nýju
herbergin verða þannig öll með
sér baði og aðeins veglegri en þau
sem fyrir eru,“ segir hann.
Stefnt að opnun í maí
Til verksins segir Sumarliði að þau
hafi notið liðsinnis góðra manna á
svæðinu. „Eiríkur Kristjánsson er
húsameistarinn og ásamt honum
er Guðmundur Gíslason, bóndi í
Fagradal. Síðan hafa fleiri úr ná-
grenninu komið að verkinu. Steyp-
an kom frá Reykhólum, múrarinn
er Herbert Baxter úr Borgarfirðin-
um, píparann fáum við frá Reyk-
hólum og málarinn, Logi Bjarna-
son, kemur úr Borgarfirðinum
einnig. Bjarnheiður Jóhannsdótt-
ir er að forma flísar fyrir okkur
úr Dalaleirnum, þær fara í gólfið.
Allur mannskapurinn kemur því af
Vesturlandinu,“ segir hann.
Aðspurður segir Sumarliði upp-
haf framkvæmda hafa verið síðla
hausts og stefnt sé að opnun nýju
gistirýmanna í vor. „Í nóvem-
ber var steypt það sem þurfti að
steypa. Síðan hófust smiðirnir
handa og eru um þessar mundir
að ljúka við að klæða húsin að inn-
an. Ég á von á því að smiðirnir og
múrarinn ljúki sinni vinnu að inn-
an á næstu tveimur vikum eða svo.
Að því búnu kemur málarinn, sem
var hér í gær að mæla upp, og ætl-
ar að drífa í að mála og smiðirnir
snúa sér að því sem eftir er utan-
dyra,“ segir Sumarliði. „Við von-
umst síðan til að geta opnað nýju
rýmin um miðjan maí, en ætlum
að sjálfsögðu að halda smá opnun-
arveislu fyrst. Það verður að halda
gott partí fyrir vini og nágranna og
alla þá sem lagt hafa hönd á plóg,“
segir Sumarliði léttur í bragði að
endingu.
kgk
Herbergjum fjölgað á Nýp
Ekki lengur minnsta gistihús landsins
Sumarliði Ísleifsson og Þóra Sigurðardóttir á Nýp.
Verið að steypa plötu í gömlu útihúsunum á Nýp í nóvember.
Ljósm. Þóra Sigurðardóttir.
„Minnsta gistihús landsins“ sem Sumarliði og Þóra hafa undanfarið starfrækt í
gamla íbúðarhúsinu á Nýp. Með endurbyggingu útihúsanna sem gistirýma bætast
þrjú herbergi við þau fjögur sem fyrir eru.
Unnið í þakinu. Ljósm. Þóra Sigurðardóttir.
www.skessuhorn.is