Skessuhorn


Skessuhorn - 07.03.2018, Blaðsíða 17

Skessuhorn - 07.03.2018, Blaðsíða 17
MIÐVIKUDAGUR 7. MARS 2018 17 ið er mikið til. Hugsun mín er að skila Húsafellsstað eftir mína daga eins fallegum og mér er unnt. Mér finnst ánægjulegt að hægt verði að fræðast um þá arfleiðs sem við Húsfellingar eigum og að hér sé borin virðing fyrir sögunni. Sag- an er svo miklu dýrmætari en all- ir heimsins peningar og skipt- ir okkur öll máli. Huldufólkið er að hjálpa til við þetta allt saman, huldufólkið sem ég trúi á og Thor benti svo réttilega á,“ segir Páll á Húsafelli. Hann vitnar einnig í Ásmund Sveinsson sem sagði eitt sinn: „Börn augans eru svo mikil- væg og oft vanmetin.“ Gömlu sporin Þegar sjá mun fyrir endann á þeirri uppbyggingu sem nú er langt kom- in í tengslum við gömlu útihúsin á Húsafelli og byggingu steinahúss- ins, stendur til að komið verði á fót sjálfseignarstofnun í kringum listasafnið og sýningarhald, áður en opnað verður með formlegum hætti. Þannig verði lögð áhersla á að formfesta þá umgjörð sem í kringum listasafnið verður. „Okkar markmið er að setja á stofn sjálfs- eignarstofnun og mun hún fá nafn- ið Gömlu sporin. Við erum í fyrsta lagi að safna saman í nokkur hús innan lítillar þyrpingar, þeirri arf- leifð sem hér á Húsafelli er. Sagan sem bókstaflega drýpur af hverj- um steini,“ segir Helgi Eiríksson. „Vissulega er það Páll á Húsafelli sem leggur þessu safni mest til, því hann er í okkar huga einn merk- asti núlifandi listamaður sem þjóð- in á og hér hefur hann stundað list sína frá unga aldri. Það er í raun óvenjulegt út af fyrir sig að hér sé að rísa listasafn um svona sprell- lifandi mann eins og Palla,“ segir Helgi og brosir og bendir á að Páll verði ekki sextíu ára fyrr en á næsta ári. Engu að síður hefur honum hlotnast margvíslegur heiður, svo sem fálkaorðan, um hann hefur verið skrifuð bók og gerðar tvær heimildamyndir. „Það er engu að síður framtíð- arsýn okkar að rifja upp þá sögu sem Húsafell hefur að geyma, sýna staðnum og fólkinu aftur í aldir tilhlýðilega virðingu. Sýnilegasti hluti þeirrar sögu hefur óneitan- lega verið skráður á síðustu fimm- tíu árum með starfi Páls. Í ljósi þess að hann á ekki afkomendur ætlar hann að leggja sín verk inn í sjálfseignarstofnunina Gömlu sporin. Það er hans vilji að skapa safninu fasta og trausta umgjörð og að hún verði best tryggð inn- an sjálfseignarstofnunar. Slík félög eiga sig sjálf eins og felst í orðanna hljóðan,“ segir Helgi. Tenging við forfeður í gegnum steininn Þessi uppbygging og lagfæring gömlu útihúsanna á Húsafelli hófst af krafti árin eftir bankahrun. „Reyndar hafði Rúnar Hermanns- son smiður nokkru áður lagfært mikið gamla súrheysturninn hér, sett á hann þak með kvistum í fjór- ar höfuðáttirnar þar sem ég get unnið við listsköpun mína. Hann skipti turninum upp í þrjár hæðir. Í kjallara og á jarðhæð, sem gengið er inn í, eru höggmyndir sem kom- ið hefur verið fyrir á veggjum, en uppi gefur að líta vatnslitamynd- ir, þrykk og fleira,“ segir Páll. „Þar hef ég meðal annars unnið svell- þrykk og steinþrykksmyndir. Það er einmitt gaman að segja frá því að ég hef verið að vinna með sama hráefni og legsteinasmiðirnir hér forðum. Ég myl steininn niður og nota liti hans í ýmis verk sem ég hef verið að gera. Steinhörpurn- ar mínar eru þar að auki náttúru- legur steinn sem ég vinn lítið eða ekkert. Finn hljóminn í þeim og raða upp og geri hljóðfæri. Þann- ig má segja að tenging mín við þá sem lifað hafa hér í aldir sé steinn- inn, þetta fallega efni sem hér er að finna.“ Gamalt hús með sál Undanfarin sex til átta ár hefur svo komist meiri skriður á endur- byggingu í og við gömlu útihús- in. Bergþór og Hrefna á Húsafelli gáfu Páli sinn hluta í gamla fjós- inu ásamt landspildu og var svæð- ið í framhaldinu skipulagt. Fjós- ið hafði þá þjónað sem hesthús um hríð en líkt og með eldri útihús til sveita farið að láta á sjá. Það var Svellþrykksmynd af söngkonunni Björk.Harpa sem unnin er úr blómstönglum rabararbara. Páll og sjálfsmynd í fjósloftinu. Samlokusteinar Páls eru einstakir. Hér er tveir karlar með hatta, þeir Kjarval og Páll á Hjálmsstöðum afi Páls. Lag eftir Pál á Húsafelli, sem Snorri Sigfús Birgisson útsetti, og er að finna á diskinum Kom skapari með Kammerkór Suðurlands er nú tilnefnt til Íslensku tónlistarverðlaunanna. Spilað á steinhörpu. Bakvið listamanninn eru myndir af fólki sem tengist tónlist og hörpuleik sérstaklega. „Huldufólkið er að hjálpa til við þetta allt saman, huldufólkið sem ég trúi á og Thor benti svo réttilega á,“ segir Páll sem hér stendur við málverk af gengnum vini hans. Framhald á næstu síðu

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.